Úkraína
58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 78 ›
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. Erlent 1.12.2021 21:46
Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. Erlent 26.11.2021 17:00
Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi. Erlent 24.11.2021 11:59
Rannsaka skyndilegt andlát fulltrúa í nefnd gegn spillingu Úkraínska lögreglan rannsakar nú skyndilegt andlát ungs þingmanns í leigubíl í höfuðborginni Kænugarði í dag. Þingmaðurinn átti sæti í þingnefnd gegn spillingu. Erlent 8.10.2021 14:48
Nokkrar tilgátur en enginn handtekinn eftir morðtilræði í Úkraínu Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir bíl eins nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu í gær. Tilgátur eru um að óánægðir óligarkar eða jafnvel rússnesk stjórnvöld hafi fyrirskipað tilræðið. Erlent 23.9.2021 09:21
Skotið á aðstoðarmann Úkraínuforseta Ökumaður bifreiðar nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu særðist þegar skotið var á bílinn í morgun. Ráðgjafinn slapp ómeiddur en úkraínskir embættismenn lýsa árásinni sem morðtilræði. Erlent 22.9.2021 11:21
Handhafi næstelsta heimsmetsins látinn Besti sleggjukastari sögunnar, Úkraínumaðurinn Júrí Sedykh, lést í gær af völdum hjartaáfalls, 66 ára að aldri. Sport 15.9.2021 13:01
MH17: Ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syninum í hans hinstu för Faðir fórnarlambs sem lést þegar MH17, farþegaflugvél Malaysian Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syni hans í sinni hinstu för. Bakpokinn fannst nánast óskemmdur í braki vélarinnar. Erlent 10.9.2021 23:31
Fundu lík þúsunda fórnarlamba Stalíns í Úkraínu Líkamsleifar allt frá fimm til átta þúsund manns fundust í 29 fjölgagröfum á framkvæmdasvæði í borginni Odessu í sunnanverðri Úkraínu. Talið er að fólkið hafi verið fórnarlömb sovésku leynilögreglunnar í tíð alræðisherrans Jósefs Stalín. Erlent 26.8.2021 12:05
Þvertekur fyrir að Sjísjov hafi svipt sig lífi Maki hvítrússnesks aðgerðasinna, sem fannst látinn í almenningsgarði í Úkraínu, segist ekki trúa því að hann hafi svipt sig lífi. Vinir hans telja að hann hafi verið myrtur og vettvangur sviðsettur. Erlent 6.8.2021 13:44
Tsimanouskaya komin með landvistarleyfi í Póllandi Hvítrússneski spretthlauparinn Krystsina Tsimanouskaya hefur sótt um pólitískt hæli í Póllandi og hefur þegar fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum og ætlar að fljúga til Póllands á næstu dögum. Tsimanouskaya er nú stödd í pólska sendiráðinu í Tókýó í Japan en hún var stödd þar til að keppa á Ólympíuleikunum. Erlent 2.8.2021 13:19
Shevchenko hættur með Úkraínu Úkraínska knattspyrnugoðsögnin Andriy Shevchenko mun ekki halda áfram þjálfun úkraínska landsliðsins. Fótbolti 2.8.2021 08:00
Kvenhermenn í Úkraínu fá þægilegri hælaskó Varnarmálaráðuneyti Úkraínu hefur tilkynnt að kvenkyns hermenn muni fá „þægilegri“ hælaskó til að klæðast eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að láta herkonurnar marséra í háum hælum. Erlent 8.7.2021 14:41
Hvíta-Rússland lokar landamærunum að Úkraínu vegna meints vopnasmygls Hvíta-Rússland hefur lokað landamærum sínum að Úkraínu. Ástæðan er sú að Hvít-Rússar segja að vopnum hafi smyglað yfir landamærin og inn í landið. Erlent 2.7.2021 23:01
Aðalmeðferð hafin vegna gröndunar MH17 Í gær hófst aðalmeðferð í máli hollenska ríkisins gegn fjórum sakborningum sem grunaðir eru um að hafa skotið niður Boeing 777 flugvél Flugfélags Malasíu. Erlent 8.6.2021 12:09
Rússar reiðir vegna nýs landsliðsbúnings Úkraínu Rússnesk yfirvöld hafa brugðist harkalega við nýrri landsliðstreyju úkraínskra karlaliðsins í knattspyrnu. Treyjan sýnir útlínur landsins, þar á meðal Krímskaga sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014. Fótbolti 7.6.2021 10:36
Kanna hvort úkraínskir embættismenn hafi reynt að hjálpa Trump Alríkissaksóknarar í New York rannsaka nú hvort að hópur úkraínskra núverandi og fyrrverandi embættismanna hafi reynt að hafa áhrifa á bandarísku forsetakosningarnar í nóvember. Þeir kunni að hafa dreift misvísandi upplýsingum um Joe Biden til að hjálpa Donald Trump að landa sigri. Erlent 27.5.2021 23:44
Óttast að Rússar undirbúi innlimun Austur-Úkraínu Forseti Úkraínu hefur áhyggjur af því að útgáfa rússneskra stjórnvalda á vegabréfum fyrir íbúa austanverðrar Úkraínu sé fyrsta skrefið í að Rússland innlimi svæðið líkt og það gerði með Krímskaga. Hann átelur vestræn ríki fyrir að hafa sýnt Rússum of mikla linkind að undanförnu. Erlent 20.5.2021 16:20
Rannsaka atlögu Giuliani að sendiherranum í Kænugarði Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú hlut Rudys Giuliani, persónulegs lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í því að ryðja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr vegi árið 2019. Húsleit var gerð á heimili og skrifstofu Giuliani vegna rannsóknarinnar í vikunni. Erlent 30.4.2021 22:15
Húsleit gerð á heimili Rudys Giuliani Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili og skrifstofu Rudys Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York og persónulegs lögmanns Donalds Trump fyrrverandi forseta, á Manhattan í dag. Leitin er sögð liður í rannsókn á því hvort að Giuliani hafi starfað fyrir erlend ríki á laun. Erlent 28.4.2021 18:32
35 ár frá sprengingunni í Tsjernobyl 35 ár eru liðin frá því að einn kjarnakljúfur orkuversins í Tsjernobyl bræddi úr sér og sprakk í loft upp. Þarna varð annað tveggja stærstu kjarnorkuslysa heimsins. 31 starfsmaður og slökkviliðsmaður dó í slysinu sjálfu og strax í kjölfar þess. Þar af flestir vegna mikillar geislavirkni. Erlent 26.4.2021 13:00
Börn getin eftir Tsjernóbyl-slysið erfa ekki skaðann sem foreldrarnir urðu fyrir Einstaklingar sem urðu fyrir geislamengun í Tsjernóbyl arfleiða börnin sín ekki að þeim skaða sem þeir kunna sjálfir að hafa orðið fyrir. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar á börnum foreldra sem unnu við hreinsun eftir kjarnorkuslysið. Erlent 23.4.2021 08:17
Rússar draga hersveitir sínar til baka Fjöldi rússneskra hersveita var í dag skipað að yfirgefa landamærin að Úkraínu og snúa aftur í herstöðvar sínar. Mikil spenna hefur verið milli ríkjanna undanfarnar vikur og hafa miklar áhyggjur ríkt um yfirvofandi borgarastríð í austurhluta Úkraínu með aðild Rússa. Erlent 22.4.2021 17:28
Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. Erlent 21.4.2021 12:55
Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa. Erlent 19.4.2021 16:25
Veðjað á að hugsanlegur fundur Putíns og Bidens verði í Tékklandi eða á Íslandi Efnt hefur verið til veðmáls þar sem talið er líklegast að fundur leiðtoga hinna fornu stórvelda verði haldinn í Tékkalandi en Ísland kemur þar fast á hæla. Innlent 17.4.2021 11:32
Biden og Pútín ræddu um Úkraínu í símtali Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu var á meðal þess sem bar á góma í símtali Joes Biden Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í dag. Biden hvatti Pútín til að draga úr spennunni við nágrannaríkið en lagði jafnframt til að þeir hittust til fundar á næstu mánuðum. Erlent 13.4.2021 16:02
Spennan magnast áfram í Úkraínu Rússar segja Bandaríkjamönnum hollast að halda sig vel frá Krímskaga og segja að siglingar herskipa í Svartahafi sé ögrun gagnvart Rússlandi. Þetta hafa rússneskir miðlar eftir Sergei Ríabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Erlent 13.4.2021 11:08
Segja Pútín hunsa viðræðubeiðni Ráðamenn í Úkraínu segja að Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hafi ekki svarað beiðni um að ræða við Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu. Úkraínumenn hafi beðið um að fá að ræða við forsetann rússneska vegna gífurlegrar hernaðaruppbyggingu Rússa við landamæri Úkraínu. Erlent 12.4.2021 14:22
Segir „ögranir“ Rússa geta leitt til átaka Varnarmálaráðherra Úkraínu segir að stjórnarherinn gæti dregist inn í harðari átök í austurhluta landsins vegna ögrana Rússa. Vaxandi spenna er nú í Úkraínu vegna vaxandi vígbúnaðar Rússa nærri landamærunum. Erlent 10.4.2021 14:12