Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík „Fyrstu myndböndin af mér að koma fram eru frá því að ég er í kringum tíu ára syngjandi á Mærudögum á Húsavík svo að þetta kviknaði mjög snemma,“ segir tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson. Hann tekur þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins með lagið Like You og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið. Tónlist 23.1.2025 07:01
Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Söngkonan Yuval Raphael verður fulltrúi Ísraels í Söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, eftir að hafa borið sigur úr bítum í forkeppninni þar í landi. Hún er ein þeirra sem lifði af árás Hamas-liða á tónlistarhátíðina Nova sjöunda október 2023. Erlent 23.1.2025 00:03
Erlend Eurovision-stjarna mætir á Söngvakeppnina Erlend Eurovision-stjarna sem Íslendingar þekkja mun koma fram á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar. Uppselt er á úrslitakvöldið sem fer fram þann 22. febrúar næstkomandi í Gufunesi en enn eru til miðar á hin úrslitin og á fjölskyldurennsli daginn fyrir úrslit. Þá hefur röð laganna verið ákveðin og þeim gefin kosninganúmer. Lífið 22.1.2025 16:47
Hera gerir upp skítkastið: Lágværi meirihlutinn jafn sekur og háværi minnihlutinn Lífið 20.1.2025 07:02
Af og frá að Iceguys taki þátt í Söngvakeppninni Það kom aldrei til tals hjá strákunum í einni vinsælustu hljómsveit landsins Iceguys að taka þátt í Söngvakeppninni í ár. Þetta segir umboðsmaður sveitarinnar. Lífið 7. janúar 2025 13:32
Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025 Ekkert einvígi verður í Söngvakeppninni 2025 heldur mun stigahæsta lagið í úrslitum bera sigur úr býtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem fram kemur að keppnin fari fram þrjár helgar í febrúar. Lífið 3. janúar 2025 15:01
Einkavæðingaráform gætu hrakið Ísrael úr Eurovision Stríðsrekstur Ísraela á Gasa og víðar fyrir botni Miðjarðarhafs leiddi til mikilla mótmæla þegar Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, fór fram í Malmö í Svíþjóð í maí síðastliðinn. Nú er hugsanlegt að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni, þó af allt annarri ástæðu. Erlent 18. desember 2024 08:38
Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Þrír reynsluboltar í Eurovision vilja keppa fyrir hönd Svíþjóðar í keppninni á næsta ári. Þá hefur ein frægasta kynbomba landsins jafnframt skráð sig í undankeppnina en listi yfir keppendur í Melodifestivalen hefur nú verið birtur í sænskum miðlum. Lífið 26. nóvember 2024 14:32
Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti „Ég var meira jólabarn þegar ég var barn. Nú á ég tvö börn og þá snúast jólin eiginlega bara um þau,“ segir tónlistarmaðurinn og Eurovision stjarnan Daði Freyr. Daði virðist þó kominn í jólagírinn þar sem hann var að senda frá sér nokkrar jólaábreiður og stendur fyrir jólatónleikum í Gamla bíói í desember. Samhliða því stefnir fjölskyldan á að flytja aftur til Íslands. Tónlist 19. nóvember 2024 11:03
Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Íris Hólm Jónsdóttir, tónlistar- og leikkona, og Arnar Jónsson tónlistarmaður eru nýtt par. Parið hefur verið að stinga saman nefjum undanfarna mánuði og virðist ástin blómstra á milli þeirra. Lífið 14. október 2024 13:02
Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Breski söngvarinn Martin Lee, einn liðsmanna sveitarinnar Brotherhood of Man, er látinn. Hann lést á sunnudaginn, 77 ára að aldri. Lífið 2. október 2024 12:14
Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári RÚV mun halda sig við Söngvakeppnina á næsta ári til þess að velja framlag Íslands í Eurovision og mun hún fara fram í febrúar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem segir að þegar hafi verið opnað fyrir innsendingar á lögum og að til skoðunar sé breytt fyrirkomulag á vali á sigurvegara. Lífið 20. september 2024 15:26
Ísland mun taka þátt í Eurovision Ísland mun taka þátt í Eurovision á næsta ári. Þetta kemur fram í svörum frá Ríkisútvarpinu til fréttastofu. Áður hafði ákvörðun um þátttöku í keppninni verið frestað. Fram kemur að fyrirkomulag á vali á framlagi Íslands verði kynnt síðar. Lífið 13. september 2024 15:18
Fresta ákvörðun um þátttöku í Eurovision Ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision á næsta ári hefur verið frestað þar til í næstu viku. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, sagði fyrr í vikunni að ákvörðunin yrði tekin í þessari viku en henni hefur verið frestað þar til eftir helgi. Ísland lenti í seinasta sæti á Eurovision í ár. Lífið 6. september 2024 15:10
Ræðst á morgun hvort Ísland taki þátt í Eurovision Ríkisútvarpið mun á morgun tilkynna hvort Ísland muni taka þátt í Eurovision í Basel á næsta ári. Fararstjóri íslenska hópsins sagði eftir keppnina í ár að hann gerði ráð fyrir því að Ísland tæki aftur þátt í ár, en ekkert væri meitlað í stein. Lífið 4. september 2024 12:46
Hinn rekni Eurovision fari á Íslandi Joost Klein, hollenski keppandinn í Eurovision í ár sem jafnframt var sá fyrsti til þess að vera rekinn úr keppninni er staddur á Íslandi. Þessu greinir hann frá á samfélagsmiðlinum Instagram. Lífið 3. september 2024 09:25
Orðið ljóst hvaða svissneska borg mun hýsa Eurovision í maí Eurovision-keppnin mun fara fram í svissnesku borginni Basel í maí á næsta ári. Lífið 30. ágúst 2024 08:37
Eurovision 2025 verður haldið í Basel eða Genf Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin annað hvort í Basel eða Genf á næsta ári. Lokaákvörðun verður tekin í lok þessa mánaðar. Lífið 19. ágúst 2024 21:48
Hætt að rannsaka mál hollenska Eurovision-farans Sænsk yfirvöld hafa hætt rannsókn á máli Joost Klein, hollenska keppandans í Eurovision sem rekinn var úr keppni í Malmö í maí eftir meintar hótanir gegn ljósmyndara. Samkvæmt ríkissaksóknara eru ekki næg sönnunargögn í málinu. Lífið 12. ágúst 2024 16:14
Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Fráfarandi forseti Íslands segist hafa tekið ígrunaða ákvörðun um að horfa ekki á fyrra undankvöld Eurovision í ár en gert Heru Björk Þórhallsdóttur keppanda Íslands grein fyrir því að hún ætti ekki að þurfa að gjalda fyrir að vera fulltrúi Íslands. Innlent 31. júlí 2024 22:30
Freista þess að koma í veg fyrir Eurovision með íbúakosningu Kristilegi íhaldsflokkurinn Eidgenössisch-Demokratische Union (EDU) hyggst freista þess að koma í veg fyrir að Eurovision fari fram í Sviss á næsta ári, með því að knýja fram íbúakosningar um fjárveitingar til þeirra borga sem vilja halda keppnina. Erlent 12. júlí 2024 11:52
Vandaði Eurovision ekki kveðjurnar á tónleikum Hollenski tónlistarmaðurinn Joost Klein sem rekinn var úr Eurovision söngvakeppninni í ár fyrstur allra sagði söngvakeppninni til syndanna áður en hann hóf raust sína á tónleikum í Vancouver í Kanada. „Fokk Eurovision!“ sagði hann á sviðinu. Lífið 29. maí 2024 10:44
Ætluðu að draga sig úr Eurovision fram á síðustu stundu Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) tókst af afstýra því á síðustu stundu að sex lönd hættu við þátttöku í Eurovision lokakeppninni í ár. Þetta kemur fram í umfjöllun norska blaðsins VG þar sem segir að 25 mínútum fyrir keppni hafi allt stefnt í að löndin myndu ekki taka þátt. Lífið 28. maí 2024 14:54
Fleiri sniðgengu en ekki Fleiri slepptu því að horfa á keppniskvöld Íslands í Eurovision þriðjudagskvöldið 7. maí heldur en horfðu. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar Prósents en þar kemur fram að tæplega þriðjungur þjóðarinnar hafi horft á umrætt Eurovision kvöld. Lífið 14. maí 2024 11:26
Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Fulltrúi Hollands í Eurovision sem var meinuð þátttaka á úrslitakvöldinu klukkustundum fyrir keppni verður að líkindum ákærður fyrir hótanir að sögn sænsku lögreglunnar. Hinn 26 ára gamli Joost Klein komst á spjöld sögunnar því engum keppanda hefur áður verið vísað úr keppni. Lífið 14. maí 2024 10:56