„Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Smári Jökull Jónsson skrifar 29. október 2026 14:00 Halla er í stjórn FÁSES en VÆB tók síðast þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision þegar keppnin fór fram í Basel í Sviss. Vísir/Hulda Margrét Yfirgnæfandi meirihluti er mótfallinn því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða, en þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni.
Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátttökuríkja. Könnunin var gerð dagana 2.–7. október og fengust svör frá rúmlega níu hundruð einstaklingum. 74,6 prósent svöruðu spurningunni neitandi, um hvort Ísland ætti að taka þátt ef Ísrael verður með. Í gær var greint frá því að Ísland væri ekki á lista Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva yfir þátttökuþjóðir. Er þetta örlítið hærra hlutfall en í könnun sem gerð var í desember í fyrra þegar spurt var um afstöðu fólks til ákvörðunar stjórnar RÚV að taka ekki þátt. Hlutfall þeirra sem vilja að Ísland taki þátt er hæst í aldreinum 60-69 ára eða 36,4 prósent en lægst á meðal 18-29 ára en þar vilja 17,8 prósent aðspurðra að Ísland taki þátt þó Ísrael sé á meðal þátttökuríkja. Halla Ingvarsdóttir, stjórnarkona í FÁSES, Félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, segir stjórn félagsins ekki taka afstöðu í málinu. „Félagsmenn okkar hafa allavegana skoðanir á þessu máli, það bara má hver og einn hafa sína skoðun og við virðum það. Við erum ekki í sniðgöngu á þessu,“ sagði Halla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Næstum óeðlilegt af hverju er ekki verið að tala um þetta“ FÁSES sé enn þá hluti af alþjóðlegum samtökum og úthluti meðal annars miðum til þeirra sem vilja upplifa Eurovision á staðnum. Hljóðið í áhugafólki í öðrum löndum sé misjafnt. „Stundum er ekkert talað um þetta og bara haldið áfram á fullri ferð eins og ekkert sé. Svona næstum því óeðlilegt af hverju það er ekkert verið að tala um þetta. En í öðrum félögum, sem eru miklu færri, er þetta rætt og talið stórt mál,“ segir Halla og bætir við að ómögulegt sé að spá fyrir um hvort Ísland muni einhvern tíman taka þátt í Eurovision á ný. Stjórn FÁSES sem kjörin var á aðalfundi þann 9. október.FÁSES „Þetta er allt breytingum háð. Eurovision er 70 ára fyrirbæri og margir hafa ekki verið með lengi, maður veit aldrei.“ Sjálfri finnst henni ekki mjög sárt að Ísland sé ekki með en hins vegar sakni hún innlendu söngvakeppninnar. „Hún þarf ekki að vera háð Eurovision og það er svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni. Okkur líður mjög mörgum þannig.“
Eurovision Eurovision 2027 Ríkisútvarpið Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Sjá meira