Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 18:03 Moroccanoil er vinælt hárvörumerki og er selt víða á hárgreiðslustofum og snyrtivöruverslunum á Íslandi. Moroccanoil Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni.
Moroccanoil hefur síðastliðin sex ár verið einn stærsti bakhjarl Eurovision. Fyrst um sinn var samningur milli fyrirtækisins og keppninnar undirritaður til fimm ára en var síðan framlengdur. Frá því að samstarfið hófst hafa flytjendur keppninnar gengið „túrkíslitaða dregilinn“ í aðdraganda keppninnar, en túrkísblár er vörumerkjalitur fyrirtækisins. Samkvæmt umfjöllun sænska miðlilsins Aftonbladet sendi stjórn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva frá sér yfirlýsingu til samstarfsstöðva í Evrópu þar sem greint er frá því að Moroccanoil hafi ákveðið að framlengja ekki samstarfssamning sinn við keppnina. Eurovision verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári.EPA Samstarf Morocconoil og Eurovision hefur verið umdeilt í gegnum tíðina en fyrirtækið hefur lengi verið á sniðgöngulista ýmissa samtaka sem sniðganga vörur frá Ísrael. Meðal annars samtakanna BDS Ísland og er Moroccanoil meðal fyrirtækja á sniðgöngulista á íslensku síðunni Sniðganga fyrir Palestínu. Sjá einnig: Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu Í gær var greint frá því að breytingar hafi verið gerðar á reglum keppninnar þegar kemur að rétti sigurþjóða til þess að halda keppnina. Í þeim kveður á um að þjóðir sem standi í stríði eða vopnuðum átökum megi ekki halda keppnina. Stjórn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva geti í þeim aðstæðum framkvæmt öryggismat og falið annarri þjóð að halda keppnina. Ef sigurþjóðin er talin ófær til þess að halda keppnina verður annar gestgjafi fundinn til þess að halda keppnina. Ísland tók ekki þátt í Eurovision í ár en tekin var ákvörðun um það í desember í fyrra. Vísað var til þess að þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hefði valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings. Önnur lönd sem ekki tóku þátt voru Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar. Ekki náðist í Stefán Eiríksson, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, við vinnslu fréttarinnar.
Eurovision Eurovision 2027 Búlgaría Ísrael Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Fleiri fréttir Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira