Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. ágúst 2026 14:25 Carola Häggkvist sló í gegn sem unglingur á níunda áratugnum og hefur verið ein vinsælasta söngkona Svíþjóðar síðan. Carola Häggkvist, ein ástsælasta söngkona Norðurlanda og sigurvegari Eurovision, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu þar sem hún flytur lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögur úr eigin lífi.
Carola hefur verið meðal skærustu stjarna sænskrar dægurtónlistar í meira en fjóra áratugi. Frá því hún sló í gegn með laginu „Främling“ árið 1983 hefur hún selt milljónir platna og skipað sér sess sem einn vinsælasti tónlistarmaður Norðurlanda. Hún hefur í þrígang keppt í Eurovision fyrir hönd Svíþjóðar, 1983, 1991 og 2006, og vann árið 1991 með laginu „Fångad av en stormvind“ og hafði þar betur gegn Stebba og Eyfa sem sungu „Nínu“ og enduðu í fimmtánda sæti. Hún leggur nú af stað í tónleikaferðalag um Norðurlönd þar sem hún býður áhorfendum inn í persónulegan heim sinn. Ásamt píanóleikaranum Will Oaks mun hún flytja lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögum og minningum úr lífi sínu. Carola hefur í þrígang keppt í Eurovision, lenti í þriðja sæti 1983, sigraði keppnina árið 1991 og endaði í fimmta árið 2006. Á efnisskránni verða ekki aðeins sígild lög á borð við „Främling“, „Fångad av en stormvind“ og „Säg mig var du står“, heldur einnig lög sem Carola hefur sjaldan eða aldrei áður flutt á tónleikum. Úr verður iinnileg kvöldstund þar sem tónlist og sögur mynda eina heild. Tónleikaferðalagið tengist útgáfu fyrstu sjálfsævisögu Carola, Jag är Carola, þar sem hún segir í fyrsta sinn frá ævi sinni með eigin orðum. Sú einlæga nálgun endurspeglast í tónleikunum sem verða bæði persónulegri og nánari en það sem áhorfendur eiga að venjast. Íslenskir tónleikagestir fá því einstakt tækifæri til að sjá eina stærstu tónlistarstjörnu Norðurlanda í allt öðru ljósi en áður – í sýningu þar sem tónlistin, sögurnar og lífsreynslan fá að njóta sín. Miðasala á tónleikana hefst föstudaginn 14. ágúst á harpa.is, tix.is og í síma 528-5050.
Tónleikar á Íslandi Svíþjóð Eurovision Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið