Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Agnar Már Másson skrifar 23. september 2026 19:30 Joost Klein vakti mikla lukku sem fulltrúi Hollendinga í Eurovision í Svíðþjóð 2024. getty Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.
NPO, hollenska ríkissjónvarpið, staðfesti þátttöku sína í tilkynningu í dag þrátt fyrir að sjónvarpsstöðin AVROTROS, sem heyrir undir NPO og hefur séð um framlag Hollendinga í Eurovision undanfarin ár, hefði neitað að taka þátt í keppninni í ár. AVROTROS ákvað að draga Holland úr keppninni árið 2026 eftir að Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) leyfði Ísrael að keppa. Sjónvarpsstöðin ákvað einnig að sniðganga keppnina í ár, sem til stendur að halda í Búrgas í Búlgaríu, og sagði að þær breytingar sem sambandið hefði innleitt dygðu ekki til að keppnin héldi „sjálfstæðu og hlutlausu eðli“ sínu. Sjá meira: Eurovision Því fól AVROTROS ríkissjónvarpinu ábyrgð á þátttöku Hollendinga en NPO hefur nú ákveðið að taka samt þátt í keppninni eftir að hafa átt í samræðum við fulltrúa EBU. NPO skrifar í tilkynningu að EBU hafi tekið mikilvæg skref hvað varðar reglur söngvakeppninnar. Jet de Ranitz, stjórnarformaður NPO, segir í tilkynningu að hún skilji að þátttakan kunni að vekja blendnar tilfinningar meðal Hollendinga en að stofnunin hafi óskað sérstaklega eftir því við EBU að sambandið geri „sameiningareðli keppninnar aftur að miðpunkti viðburðarins, í ljósi tíma ólgu í alþjóðastjórnmálum, stríðs og pólitískrar sundrungar“. Írar mæta ekki og Spánverjar efins Rúv hefur enn ekki tekið ákvörðun um þátttöku Íslands í ár og sagði stjórnarformaðurinn við Vísi fyrr í mánuðinum að ákvörðun þess efnis yrði líklegast ekki tekin fyrr en í desember. Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Spánverjar eiga einnig eftir að taka ákvörðun en þar hefur útvarpsstjórinn José Pablo López þó lagt til að Spánn haldi sig frá keppni, að því er Euronews greina frá. Belgíska ríkissjónvarpið tilkynnti í dag að það myndi taka þátt í keppninni. Litháíska ríkissjónvarpið gerði slíkt hið sama í gær.
Eurovision Ísrael Holland Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Ríkisútvarpið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira