Innlent

„Rang­færslur og jafn­vel hreinar lygar“

Agnar Már Másson skrifar
Ólafur segir Þorgerði tala í „götustelpustíl“ og segir hana mega róa sig.
Ólafur segir Þorgerði tala í „götustelpustíl“ og segir hana mega róa sig. Samsett Mynd

„Mér finnst þetta fyrst og fremst bara sorglegt,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sem telur ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnars utanríkisráðherra í sinn garð vart svaraverð. „Af því að ég er nú búinn að fylgjast í áratugi með utanríkisráðherrum Íslands og ég hef aldrei fyrr upplifað að sá sem gegnir þeirri trúnaðarstöðu í íslenska lýðveldinu leyfi sér svona bull.“

Þorgerður Katrín sagði við Vísi fyrr í dag að í samt-lum erlendis hefðu ráðamenn gert athugasemdir við ummæli Ólafs er varða Rússland og Úkraínu.

Þorgerður hefur áður gagnrýnt forsetann fyrrverandi vegna færslu hans á miðlinum X þar sem hann lýsti nýrri Norðurslóðastefnu Rússa sem „lykilskjali“ fyrir alla þá sem láta sig alþjóðamál eða málefni Norðurslóða varða.

„Ég veit nú ekki hvort að þessi götustelpustíll í umræðum um utanríkismál sé við hæfi eða svara verður,“ segir Ólafur Ragnar í samtali við Vísi. 

„Af því að þetta er náttúrulega alveg ný tegund af rugli sem maður hefur aldrei séð áður í umræðu um íslensk utanríkismál.“

„Vitna í einhverja nafnlausa menn í Munchen“

Í viðtali á Sprengisandi í október uppnefndi hún Ólaf Ragnar „Rússagælu“.

„[Þorgerður] var þar með stóryrtar yfirlýsingar um að ég hefði lýst yfir stuðningi við sjónarmið Lavrovs, sem er náttúrulega algjörlega tilhæfulaust og á sér enga stoð í raunveruleikanum,“ bætir Ólafur við um Sprengisandsviðtalið.

„Og þegar á það var bent að ég hefði aldrei nokkru sinni lýst yfir stuðningi við nein sjónarmið Lavrovs eftir að innrásin var gerð í Úkraínu þá hleypur hún í það í dag að vitna í einhverja nafnlausa menn í Munchen,“ segir hann og vísar til þeirra ráðamanna sem Þorgerður sagðist hafa rætt við um þessi mál.

Hann segir að utanríkisráðherra eigi að halda sig við „efnisríkari“ umræður um utanríkismál sem byggi á staðreyndum og greiningu.

„Það eina hálmstrá sem hún hefur hangið í er að ég vakti athygli á því – eins og ég geri oft þegar svona grundvallarskjöl birtast á vettvangi alþjóðamála – að í fyrsta skipti í mörg ár hefðu rússnesk stjórnvöld birt ítarlega greinargerð um stefnu sína á norðurslóðum,“ bætir Ólafur við og segist ennig hafa vakið athygli á nýrri öryggisstefnu Bandaríkjanna á sínum tíma jafnt sem nýrri stefnu ESB um norðurslóðir.

Lán að svona „veruleikafirrtur“ stjórnmálamaður sé ekki að semja við ESB

„Mér finnst þetta í raun og veru bæði svona sorglegt og ekki svaravert, að umræða um utanríkismál af hálfu ráðherrans sé komin á þetta stig að vera bara rangfærslur og jafnvel hreinar lygar sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum,“ segir Ólafur Ragnar.

Vísar hann þar til niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar þegar meirihluti kjósenda greiddi atkvæði gegn því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið.

„Ég hef nú fylgst lengi með Þorgerði Katrínu og þá held ég að hún væri nú tími til komin að róa sig aðeins niður og reyna að ná áttum í því hvert það á að stefna með lýðveldið,“ segir Ólafur.

Hann telur það hafa verið „lán fyrir lýðveldið að svona veruleikafirrtur ráðherra, eins og þessi ummæli gefa til kynna, hefði ekki fengið umboð til að semja um framtíð Íslands við Evrópusambandið.“

Áður verið í eldlínunni vegna ummæla um Rússland

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem afstaða Ólafs Ragnar í málefnum Úkraínustríðsns sætir gagnrýni. 

Í mars 2022, hlaut hann gagnrýni eftir að hann sagði að Ólafur Ragnar að stækkun Atlantshafsbandalagsins til austurs hefði leitt til stærsta stríðs í Vestur-Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, NATO hefði í það minnsta ekki komið í veg fyrir það.

 Mánuði síðar önnur samfélagsmiðlafærsla hans gagnrýni þar sem hann endurbirti viðtöl við almenning í Rússlandi. Fólkið sem rætt var við í myndbandið lýsti yfir stuðningi við innrásina og sagði að Úkraína ætti í raun ekki að vera til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×