Innlent

Fluttur með björgunar­skipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Flutningurinn gekk mjög vel.
Flutningurinn gekk mjög vel. Björgunarfélag Vestmannaeyja

Flytja þurfti sjúkling á hæsta forgangi með björgunarskipingu Þór til Landeyjahafnar í gærkvöldi þegar þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki lent í Vestmannaeyjum vegna þoku. 

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út á hæsta forgangi (F1) í gærkvöldi þegar flytja þurfti sjúkling frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Í tilkynningu frá Björgunarfélaginu kemur fram að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi ekki getað lent í Vestmannaeyjum vegna þoku.

Því hafi vakthafandi læknir óskað eftir því að björgunarfélagið flytti sjúklinginn með björgunarskipinu Þór upp í Landeyjahöfn.

„Þaðan hélt hann áfram með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Útkallið gekk hratt fyrir sig og Þór var kominn í Landeyjahöfn 30 mínútum eftir boðun,“ segir í tilkynningu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×