Innlent

Flestir neita sök og um­fangs­mikil réttar­höld í vændum

Árni Sæberg skrifar
Ákærðir menn og verjendur streymdu í dómsali 101 og 102 í morgun.
Ákærðir menn og verjendur streymdu í dómsali 101 og 102 í morgun. Vísir/Anton Brink

Langflestir ákærðu í Landsbankamálinu svokallaða neita sök. Fjórir hafa játað sök samkvæmt varakröfu. Þetta gerir það að verkum að halda þarf aðalmeðferð með allt að 53 ákærðum. Líklega þarf að leigja sal undir aðalmeðferðina.

Þingfesting í málinu hófst klukkan 10 í morgun og salir 101 og 102 í dómhúsinu við Lækjartorg hafa verið teknir frá til klukkan 16 síðdegis.

Ákærðu í málinu eru alls 71 en einn þeirra sætir aðeins upptökukröfu í málinu. Vegna þess mikla fjölda sem sætir ákæru var þeim verið skipt upp í sjö hópa en lokið var við að fá aftstöðu meðlima sjöunda hópsins laust fyrir klukkan 12:30. 

Farið yfir skipulagið.Vísir/Anton Brink

Þá var gert hádegishlé og eftir það verður farið yfir hvernig skal farið með þá ákærðu sem ekki tókst að birta ákæruna fyrir og þá sem ekki mættu í þingfestinguna, þrátt fyrir heppnaða birtingu.

Fjórir játuðu

Við þingfestinguna játuðu fjórir ákærðu sök samkvæmt varakröfu ákæruvaldsins um peningaþvætti af gáleysi og ákæruvaldið féllst á þær málalyktir. Átján ákærðu fengu frest til þess að gefa upp afstöðu sína til 11. nóvember næstkomandi, þegar fyrirtaka verður í málinu. 

35 ákærðu neita sök í málinu, þar á meðal mennirnir tveir sem ákærðir eru fyrir að hagnýta sér galla í netbanka Landsbankans, sem var tilkominn vegna villu hjá Reiknistofu bankanna, til þess að svíkja út tæplega 96 milljónir króna.

14 ákærðu mættu ekki og boðuðu ekki forföll. Vænta má að útivistardómur falli í tilfelli þeirra flestra. Það þýðir að málið verður dómtekið án þess að þeir haldi uppi vörnum og sekt þeirra telst sönnuð.

Allt að 53 í aðalmeðferð

Ákveði allir átján sem fengu frest að halda uppi vörnum í málinu verða alls 53 sem það gera í aðalmeðferð. Dag- og staðsetning aðalmeðferðar verður ákveðin utan réttar þegar fyrirtakan hefur ferið fram þann 11. nóvember. 

Vænta má að Héraðsdómur Reykjavíkur þurfi að taka sal á leigu undir aðalmeðferðina enda rúmast svo umfangsmikil aðalmeðferð ekki í dómhúsinu við Lækjartorg.


Tengdar fréttir

Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna

Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök.

Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að streyma þingfestingu í fjölmennasta sakamáli Íslandssögunnar yfir í annan sal í dómhúsinu við Lækjartorg. Sjötíu sæta ákæru í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×