Hreyfingar mælast og aukin vöktun Bjarki Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2026 07:33 Loftmynd af Svínafellsjökli og Svínafellsheiði. Óstöðuga hlíðin, sem nú er vöktuð vegna nýlegra hreyfinga, sést fyrir ofan jökulinn. Veðurstofan Skriðuvöktunarkerfi á Svínafellsheiði hefur greint hreyfingar síðustu tæpu tvær vikur. Hreyfingar á svæðinu hafa aldrei mæst með svo skýrum hætti frá því að vöktun hófst haustið 2018. Veðurstofan hefur aukið vöktun, greiningu og eftirfylgni.
Mælingar hófust á Svínafellsheiði fyrir átta árum eftir að 1,7 kílómetra langt sprungukerfi varð að fullu ljóst. Frá því hafa hreyfingar verið mjög litlar og heildarfærsla á síritandi mælitækjum verið innan við einn sentímetri, þar til 23. september síðastliðinn. Síðan þá hefur aflögunin mælst einn til þrír sentimetrar. „Ekki hefur mælst færsla á öðrum GPS-stöðvum á og í nágrenni Öræfajökuls sem bendir eindregið til þess að hreyfingarnar séu staðbundnar í Svínafellsheiði og engin merki hafa komið fram um tengsl við breytingar á eldstöðinni,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Ekki bráð hætta Hreyfingarnar séu hægar og bendi ekki til bráðrar hættu á berghlaupi. Slíkar breytingar á hreyfihraða séu ekki óþekktar og á þessu stigi sé ekki hægt að segja með vissu hvernig þróunin verður. „Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki talin vera bráð hætta á berghlaupi, en það mat getur breyst ef frekari breytingar verða á mældum hreyfingum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á stöðugleika svæðisins. Að mati sérfræðinga kalla þær hreyfingar sem nú hafa mælst ekki á sérstakan viðbúnað að svo stöddu, umfram aukna vöktun, greiningu og eftirfylgni af hálfu Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Sú niðurstaða var tekin í samráði við Almannavarnir og Lögregluna á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni. Skoða að endurmeta hættumat Líklegast er að berghlaup sem félli úr hlíðinni og á jökulinn myndi stöðvast á jöklinum og ekki ná í lónið fyrir framan sporð hans og því ekki ógna byggð. „Ekki er þó hægt að útiloka að mjög stórt hlaup nái niður að jökuljaðrinum og hugsanlega í lónið og geti valdið flóði. Hættumatið byggir á líkanreikningum frá 2018 til 2020 og verið er að skoða hvort endurmeta þurfi það í ljósi nýrra gagna,“ segir í tilkynningunni. Ætla á vettvang Mögulegt er að aukinn vatnsþrýstingur innan fjallsins sé að valda hreyfingunum. Úrkoma hefur mælst yfir meðallagi og hopun jökla hefur áhrif á stöðugleika hlíða fyrir ofan þá. „Fyrirhugað er að fara á vettvang þegar aðstæður leyfa, mæla fasta mælipunkta, taka myndir með dróna og yfirfara mælibúnað. Einnig er til skoðunar að bæta við GPS-mælistöð til að fá betri yfirsýn yfir hreyfingarnar. Veðurstofan hefur upplýst almannavarnir um stöðuna og er í samráði við þær um næstu skref og upplýsingagjöf til íbúa,“ segir í tilkynningunni.
Sveitarfélagið Hornafjörður Veður Jöklar á Íslandi Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Jarðskjálftar í Öræfajökli geta flýtt fyrir berghlaupi Jarðfræðingur, sem rannsakar gliðnunarsprungu ofan Svínafellsjökuls, óttast að yfirstandandi jarðhræringar í Öræfajökli geti flýtt fyrir stóru berghlaupi niður á skriðjökulinn. 16. júlí 2018 21:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Sjá meira
Jarðskjálftar í Öræfajökli geta flýtt fyrir berghlaupi Jarðfræðingur, sem rannsakar gliðnunarsprungu ofan Svínafellsjökuls, óttast að yfirstandandi jarðhræringar í Öræfajökli geti flýtt fyrir stóru berghlaupi niður á skriðjökulinn. 16. júlí 2018 21:00