Innlent

Hreyfingar mælast og aukin vöktun

Bjarki Sigurðsson skrifar
Loftmynd af Svínafellsjökli og Svínafellsheiði. Óstöðuga hlíðin, sem nú er vöktuð vegna nýlegra hreyfinga, sést fyrir ofan jökulinn.
Loftmynd af Svínafellsjökli og Svínafellsheiði. Óstöðuga hlíðin, sem nú er vöktuð vegna nýlegra hreyfinga, sést fyrir ofan jökulinn. Veðurstofan

Skriðuvöktunarkerfi á Svínafellsheiði hefur greint hreyfingar síðustu tæpu tvær vikur. Hreyfingar á svæðinu hafa aldrei mæst með svo skýrum hætti frá því að vöktun hófst haustið 2018. Veðurstofan hefur aukið vöktun, greiningu og eftirfylgni.

Mælingar hófust á Svínafellsheiði fyrir átta árum eftir að 1,7 kílómetra langt sprungukerfi varð að fullu ljóst. Frá því hafa hreyfingar verið mjög litlar og heildarfærsla á síritandi mælitækjum verið innan við einn sentímetri, þar til 23. september síðastliðinn. Síðan þá hefur aflögunin mælst einn til þrír sentimetrar.

„Ekki hefur mælst færsla á öðrum GPS-stöðvum á og í nágrenni Öræfajökuls sem bendir eindregið til þess að hreyfingarnar séu staðbundnar í Svínafellsheiði og engin merki hafa komið fram um tengsl við breytingar á eldstöðinni,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.

 Ekki bráð hætta

Hreyfingarnar séu hægar og bendi ekki til bráðrar hættu á berghlaupi. Slíkar breytingar á hreyfihraða séu ekki óþekktar og á þessu stigi sé ekki hægt að segja með vissu hvernig þróunin verður. 

„Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki talin vera bráð hætta á berghlaupi, en það mat getur breyst ef frekari breytingar verða á mældum hreyfingum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á stöðugleika svæðisins. Að mati sérfræðinga kalla þær hreyfingar sem nú hafa mælst ekki á sérstakan viðbúnað að svo stöddu, umfram aukna vöktun, greiningu og eftirfylgni af hálfu Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Sú niðurstaða var tekin í samráði við Almannavarnir og Lögregluna á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni. 

Skoða að endurmeta hættumat

Líklegast er að berghlaup sem félli úr hlíðinni og á jökulinn myndi stöðvast á jöklinum og ekki ná í lónið fyrir framan sporð hans og því ekki ógna byggð. 

„Ekki er þó hægt að útiloka að mjög stórt hlaup nái niður að jökuljaðrinum og hugsanlega í lónið og geti valdið flóði. Hættumatið byggir á líkanreikningum frá 2018 til 2020 og verið er að skoða hvort endurmeta þurfi það í ljósi nýrra gagna,“ segir í tilkynningunni. 

Ætla á vettvang

Mögulegt er að aukinn vatnsþrýstingur innan fjallsins sé að valda hreyfingunum. Úrkoma hefur mælst yfir meðallagi og hopun jökla hefur áhrif á stöðugleika hlíða fyrir ofan þá. 

„Fyrirhugað er að fara á vettvang þegar aðstæður leyfa, mæla fasta mælipunkta, taka myndir með dróna og yfirfara mælibúnað. Einnig er til skoðunar að bæta við GPS-mælistöð til að fá betri yfirsýn yfir hreyfingarnar. Veðurstofan hefur upplýst almannavarnir um stöðuna og er í samráði við þær um næstu skref og upplýsingagjöf til íbúa,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×