Innlent

Á áttunda tug taka af­stöðu til sakar í Landsbankamálinu

Árni Sæberg skrifar
Þinghaldinu er streymt í dómsal 102.
Þinghaldinu er streymt í dómsal 102. Vísir/Anton

Söguleg þingfesting er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem 71 sætir ákæru. Ákærðu er skipt upp í hópa og þingfestingunni er streymt í annan sal.

Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmikil fjársvik af Landsbankanum og peningaþvætti í tengslum við þau. Einn sætir aðeins ákæru til upptöku á Gucci-tösku. Í heildina eru því 71 ákærðir í málinu.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á milli klukkan 10 og 16 og tveir salir dómhússins við Lækjartorg verða notaðir svo allir ákærðu og verjendur þeirra geti fylgst með því sem fer fram.

Áður en þingfestingin hófst formlega ræddu margir verjendur við Barböru Björnsdóttir, dómara í málinu, og fóru yfir skipulag dagsins og hvar umbjóðendur þeirra ættu að vera. Einhvers konar hópaskiptingarkerfi hefur verið komið upp.

Túlkur og verjandi fara yfir skipulagið.Vísir/Anton Brink

Auk ákærðu og verjenda þeirra verður nokkur fjöldi túlka viðstaddur þingfestinguna, enda tala ákærðu alls sex erlend tungumál.

Þingfesting byrjaði á þeim Saslauskas og Sodys, sem neita báðir sök í málinu, mótmæla upptökukröfu og krefjast sýknu af einkaréttarkröfu Landsbankans, sem nemur tæplega 100 milljónum króna.


Tengdar fréttir

Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna

Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×