Innlent

Tengsl séu milli ger­enda og fórnar­lambsins í Breið­holti

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hins látna er minnst á horni Hraunbergs og Austurbergs.
Hins látna er minnst á horni Hraunbergs og Austurbergs. Vísir/Viktor Freyr

Meðal þess sem til rannsóknar er í manndrápsmálinu í Breiðholti eru tengsl á milli aðila málsins. Eftir því sem lögregla kemst næst þekktust gerendur og þolendur en að sögn yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði er sá þáttur málsins áfram til skoðunar.

Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins en þeir eru allir íslenskir líkt og maðurinn sem lést en hann var á fertugsaldri. Þá er annar á sjúkrahúsi alvarlega slasaður en ástand hans var sagt stöðugt í tilkynningu lögreglu um málið fyrir hádegi. Í frétt RÚV segir að tveir mannanna sem eru í haldi séu feðgar.

Í samtali við E. Agnesi Eide Kristínardóttur, yfirlögregluþjón á rannsóknarsviði lögreglu, segir hún að ekki sé vitað meira um atburðarásina en það sem greint var frá í tilkynningu lögreglu í dag. Til átaka hafi komið milli mannanna og voru þrír sárir eftir.

Rýna áfram í atburðarásina

E. Agnes segist ekki geta staðfest hvort árásarvopnið sé fundið líkt og fram hafi komið í frétt mbl.is né hvort málið sé rannsakað sem manndráp í lagalegum skilningi.

„Við erum á þeim stað að það sé einn látinn eftir hnífsstungu og það er bara spurning með hvaða hætti það gerist.“

Eftir því sem lögregla komist næst séu einhver tengsl á milli gerenda og fórnarlambsins.


Tengdar fréttir

Andlát í Breiðholti til rannsóknar

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt en í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír menn hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×