Innlent

Skringi­leg túlkun á regn­bogafánanum og aukið eftir­lit í Grinda­vík

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Stjórnarmaður Samtakanna 78 segir það skringilega nálgun að líta svo á að hinsegin fáninn sé útilokandi fyrir þá sem ekki tilheyra hinsegin samfélaginu. Engin þörf sé á að færa slíka umræðu inn í íslenskt samfélag eða pólitík. Formaður Miðflokksins sagði í viðtali í gær að fáninn væri þvingandi.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar og rætt við Jóhannes Þór Skúlason, gjaldkera Samtakanna 78. Hann segir umræðuna ekki nýja af nálinni og hluta af bylgju sem ríði nú yfir Evrópu og Ameríku.

Þá heyrum við af stöðunni í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna en formaður FÍA var ósáttur með útspil Icelandair í gær.

Í Grindavík er lögð aukin áhersla á eftirlit með jarðhræringum vegna fólksfjölda í bænum. Næstum því helmingi meira af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi nú en fyrir síðustu eldgos.

Mótmæli eru skipulögð í Frakklandi og víðar í Evrópu um helgina líkt og síðustu helgar. Fjölda lestarstöðva í París verður lokað og útgöngubann verður í gildi í nótt.

Þá heyrum við frá starfsmanni Palm Desert-borgar í Kaliforníu en þar fengu menn innblástur frá Akureyri sem hann segir að hafi gefist vel. Einnig verður fjallað um hrekkjavökuna en í kvöld má búast við að mörg börn verði á ferli í sælgætisleit.

Í íþróttum förum við yfir úrslit í Bónus-deildinni og heyrum í fyrrum landsliðsmanninum Hólmari Erni Eyjólfssyni sem lagði skóna á hilluna eftir að tímabilinu í Bestu-deildinni lauk.

Allt þetta í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×