Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Agnar Már Másson skrifar 29. október 2026 23:59 Landsréttur tók málið fyrir. Vísir/Viktor Freyr Landsréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir manni sem var dæmdur fyrir að nauðga vinkonu sinni er hún svaf í gestaherbergi á heimili hans eftir að þau höfðu verið saman á þorrablóti á Austurlandi.
Maðurinn var fyrst sakfelldur í Héraðsdómi Austurlands í desember 2025, þar sem hann var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í gestaherbergi á heimili sínu með því að hafa lagst við hlið konunnar, sem hafi vaknað við að hann væri að káfa á rassi hennar með hendinni og setja getnaðarlim sinn við endaþarmsop hennar. Hann hafi í tvígang reynt að þröngva limnum í endaþarm konunnar þrátt fyrir að hún færði sig frá honum. Auk tveggja ára fangelsisdóms var honum gert að greiða 1,6 milljónir króna. Með dómi Landsréttar var tekið undir mat héraðsdóms um að slá yrði varnagla við frásögn mannsins um óminni hans, en hann hafði frá upphafi borið fyrir sig algjört minnisleysi um atvik málsins vegna áfengisneyslu. Þá hefði framburður konunnar verið trúverðugur og stöðugur og studdist hann á sinn hátt framburði annarra vitna sem hún hafði samband við eftir atvikið. Landsréttur taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru og var hinn áfrýjaði dómur staðfestur. Fraus skelfingu lostin Brotið átti sér stað í febrúar árið 2024. Í dómnum er minnst á að þau hafi verið á skemmtun á þorrablóti fyrr um kvöldið. Konan var góð vinkona sambýliskonu mannsins og gisti oft hjá þeim og þá alltaf í gestaherbergi á heimili þeirra. Þau þrjú fóru saman á þorrablótsskemmtun þar sem mikið var drukkið en sambýliskonan fór heim í háttinn um klukkan 1. Konan kom síðar ein heim um klukkan 4 og skömmu síðar kom maðurinn ásamt tveimur vinum sínum. Þau spjölluðu fjögur saman og spiluðu spurningaspil. Hún fór svo í háttinn og þeir héldu heim skömmu síðar. Konan lýsti því fyrir dómi að hafa vaknað við það að einhver væri kominn upp í rúmið og stryki á henni rassinn. Sá hafi reynt að þrýsta hörðum getnaðarlim að endaþarmsopi hennar. Kvaðst hún hafa verið mjög hrædd, með hjartað á „skrilljón“. Hún hafi frosið og hennar fyrstu viðbrögð hafi verið að látast vera sofandi. Síðan hafi hún fært sig svo ofar í rúmið en hann fylgt á eftir og reynt aftur. Þá hafi hún fært sig upp að veggnum og hann hætt. Hún hafi verið hreyfingarlaus þar til hún taldi hann hafa sofnað. Þegar hún sneri sér við hafi hún ekki séð skýrt hvern um væri að ræða en taldi strax að þetta væri maðurinn. Hún hafi síðan farið niður þar sem hún hafi séð föt mannsins á gólfinu en engan mann. Hún hafi náð sambandi við vinkonur sínar sem sóttu hana nokkru síðar. Konan læsti sig þá inni á salerni meðan hún beið eftir að aðrar vinkonur hennar kæmu að sækja hana. Þegar þær komu að sækja konuna nærri kl. 7 fór önnur þeirra upp í gestaherbergið og dró hún sængina frá andliti mannsins í rúminu og sagðist þar hafa séð að það var ákærði, sofandi. Hún hafi sagt konunni frá því í bílnum fyrir utan heimili sitt og brotaþoli hafi brotnað niður. Móðir vinkonunnar hringdi þá í neyðarlínuna klukkan 8 að morgni. Baðst afsökunar en dró afstöðuna svo til baka Um klukkan 10 var maðurinn handtekinn á heimili sínu. Við réttarlæknisfræðilega skoðun á brotaþola fannst roði rétt ofan við endaþarmsop en ekki sár. Engin nothæf DNA-sýni tengdu aðilana saman. Á leiðinni heim frá lögreglustöðinni þennan morgun sendi maðurinn konunni skilaboð þar sem hann baðst afsökunar. Seinna um sumarið, þegar sögur fóru á kreik, sendi maðurinn aftur skilaboð og sagðist ekki myndu rengja frásögn hennar. Síðar dró hann þá afstöðu til baka og sagði sjálfur fyrir dómi að þau hefðu verið tilraun til að „stöðva blæðinguna“.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira