Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Af myndum að dæma hefur stærðar gámur steypst niður af Fjósakletti og lent á hvolfi við leikvöllinn í Herjólfsdal. Fréttastofu bárust þessar myndir úr Herjólfsdal í Vestmannaeyjum síðdegis í dag. Gámurinn, sem er mjög stór, hefur með einhverju móti oltið og skilið djúpar rákir eftir sig í hlíðinni. Innlent 6.4.2026 17:02
„Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Fjöldi björgunarsveitarmanna í Vestmannaeyjum stóð í ströngu við að festa þakkjöl sem var við það að losna af húsi í Fjólugötu í dag. Innlent 6.4.2026 14:52
Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Danska fyrirtækið DHI vinnur nú að tillögum er varða lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar í samvinnu við Vegagerðina. Reiknað er með niðurstöðum vinnunnar nú í vor og í kjölfarið verður það stjórnvalda að ákveða næstu skref. Innlent 4.4.2026 18:01
Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. Innlent 23. mars 2026 13:07
Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Rannsóknarboranir til þess að kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja hefjast í næsta mánuði. Þær fara annars vegar fram á Eiðinu á Heimaey og hins vegar í Landeyjasandi við bæinn Kross. Innlent 19. mars 2026 09:50
Setning Arndísar Báru framlengd um ár Dómsmálaráðherra hefur framlengt setningu Arndísar Báru Ingimarsdóttur í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum til tólf mánaða. Hún gegnir embættinu fyrir þingmann. Innlent 18. mars 2026 13:16
Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Ein þeirra sem hefur kært útboð Vestmannaeyjabæjar á heilsurækt við íþróttamiðstöð bæjarins segir svo virðist sem að það hafi verið sniðið að World Class. Það sé eina fyrirtækið í heiminum sem uppfylli skilmála útboðsins. Viðskipti innlent 18. mars 2026 07:01
Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars. Skoðun 17. mars 2026 12:48
Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Hópur sem sóttist eftir að reka heilsuræktarstöð í Vestmannaeyjum er sagður hafa kært nýtt útboð bæjarins á rekstrinum. Bærinn réðst í nýtt útboð eftir að kærunefnd taldi hann hafa staðið rangt að upphaflegri auglýsingu eftir rekstraraðila og að hann væri bótaskyldur. Innlent 16. mars 2026 11:30
Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Eyþór Harðarson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum segist ekki sækjast eftir bæjarstjórastarfi falli það honum í skaut að leiða meirihluta. Innlent 14. mars 2026 14:25
Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun. Nítján íslensk skip sinntu loðnuveiðunum að þessu sinni. Viðskipti innlent 12. mars 2026 21:00
Eyjamenn grjótharðir við svörtu og hvítu reitina Taflfélag Vestmannaeyja (TV) fagnaði Íslandsmeistaratitli í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Þetta er fyrsti stigur TV-inga á ferlinum en félagið á einmitt 100 ára afmæli á árinu. Sport 10. mars 2026 15:18
Bjóða upp á tjaldsvæði inni Gestum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina mun nú standa til boða að tjalda innandyra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjóðhátíðargestir leita inn fyrir dyr Herjólfshallar með tjöldin meðferðis. Innlent 9. mars 2026 12:09
Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo karlmenn fyrir að hafa stolið miklu magni af endurvinnanlegum dósum úr söfnunargámum íþróttafélagsins ÍBV í Vestmannaeyjum. Karlmennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri búsettir í Eyjum. Innlent 4. mars 2026 08:48
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi. Innlent 3. mars 2026 16:30
„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp. Innlent 3. mars 2026 13:02
Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Innlent 2. mars 2026 17:07
Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum rann út í gærkvöldi. Fjórtán einstaklingar buðu sig fram og verða því í kjöri í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars. Innlent 28. febrúar 2026 14:48
Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. Innlent 27. febrúar 2026 12:59
Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru. Innlent 27. febrúar 2026 11:06
Trausti vill snúa aftur Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars. Innlent 25. febrúar 2026 20:56
Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni. Lífið 23. febrúar 2026 21:27
Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Tæplega 70 prósent Vestmannaeyinga segjast ánægðir með störf Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra en þó hyggjast talsvert fleiri kjósa Sjálfstæðisflokkinn en H-listann samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Innlent 14. febrúar 2026 12:23