Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. október 2026 10:11 Feðgarnir Arnar Jóhann og Herbert með yngsta fjölskyldumeðliminum. Popparinn Herbert Guðmundsson fékk í byrjun árs óvæntan tölvupóst frá Arnari Jóhanni Ragnarssyni sem taldi Herbert vera föður sinn. DNA-próf staðfesti faðernið og hafa feðgarnir síðan þá verið að kynnast. Arnar er áttunda barn Herberts, þar af það sjöunda sem er blóðtengt honum.
Smartland greindi frá þessum tíðindum og ræddi við Herbert um týnda soninn. „Mér finnst þetta bara æðislegt. Ég á sjö börn fyrir og þetta er áttunda barnið,“ sagði Herbert við Smartland. Alls á hann eina dóttur og sjö syni, þar af einn sem er uppeldissonur hans. Herbert var í heimsókn hjá vini sínum, tónlistarmanninum Geir Ólafs, í Kólumbíu í janúar þegar Arnar sendi honum tölvupóstinn og sagði bráðabirgða DNA-próf benda til þess að Herbert væri faðir hans. Arnar er fæddur árið 1993 og úr Vestmannaeyjum sem vakti minningar hjá Herberti. „Ég hafði farið til Eyja árið 1992 og var að skemmta á níunda áratugar þemakvöldi hjá Pálma Lór, sem var með veitingastað í Eyjum. Þar hitti ég yndislega konu og við náðum ofsalega vel saman,“ sagði Herbert í viðtalinu. „Ekkert vesen, engin skömm“ Feðgarnir hittust svo í fyrsta sinn og fengu sér pítsu þegar Herbert kom heim frá Kólumbíu og voru tveir synir hans, Róbert Már og Guðmundur, einnig með í för. Þar tóku feðgarnir DNA-próf og var sýnunum úr því komið áleiðis til Bandaríkjanna í rannsókn. Tveimur vikum síðar hafi niðurstaðan legið fyrir og staðfest faðernið. „Mér finnst þetta bara æðislegt. Ég var ofsalega þakklátur. Þetta var algjör gleði og það tóku allir ofsalega vel í þetta,“ sagði Herbert um það sem hefði farið í gegnum huga hans þegar niðurstaðan lá fyrir. Hann gaf síðan út lagið „Þakklæti“ í sumar til heiðurs Arnari. „Þetta er mikil gleði, bæði hans megin og mín megin. Ekkert vesen, engin skömm, engin neikvæðni og allir góðir,“ sagði Herbert við viðbrögð fjölskyldnanna. Eyru og höku föðurins Ekki nóg með að fá nýjan son heldur varð Herbert líka afi í þrettánda sinn þegar Arnar eignaðist dóttur 1. apríl síðastliðinn. „Þá eignaðist hann litla dúllu sem er algjör prinsessa, svo yndislega falleg,“ sagði Herbert um sonardótturina við Smartlans. Feðgarnir eigi tónlistina sameiginlega og Herbert segir Arnar spila frábærlega á gítar. Þá beri sonurinn líka ákveðin útlitseinkenni föðurins. „Hann er mjög líkur móðurættinni. En þegar maður skoðar hann náið er hann með eins eyru og ég og líka höku eins og ég. Svo er litla stelpan hans svolítið lík afa sínum. Hún er með hökuna mína og er svolítið rauðbirkin, eins og ég var þegar ég var krakki,“ sagði Herbert.
Ástin og lífið Fjölskyldumál Vestmannaeyjar Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira