Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Rakel Sveinsdóttir skrifar 27. október 2026 07:03 Hvers vegna freistumst við frekar til þess að kaupa okkur nammi við kassann síðdegis eða þegar við erum þreytt? Og hvernig getum við spornað við því? Vísir/Einar Árnason Klukkan er orðin rúmlega fimm síðdegis. Vinnudagurinn gekk vel en var bissí; fundir, svara tölvupóstum, leysa úr flækjum, taka ákvarðanir. Í dag er hlutverkið okkar að koma við í búðinni og grípa í soðið.
Meira að segja megrunin hefur gengið ágætlega í dag og það sem fyrirhugað er í kvöldmat er ágætlega hollt og gott. Áður en þú veist af er samt komið súkkulaðistykki á færibandið við afgreiðslukassann. Eða lakkríspoki. Eitthvað til að gæða sér á strax. Í bílnum á leiðinni heim? Í alvörunni! Hvers vegna gerist þetta aftur og aftur hjá okkur? Er þetta skortur á aga? Við viljalaust verkfæri þegar kemur að þessu gamalkunna trixi búðareigenda, að stilla góðgætinu svona sýnilega upp við afgreiðslukassann. Erum við kannski bara aumingjar? Nei, málið er að þótt okkur líði oft eins og viljastyrkurinn einfaldlega hverfi og við séum að svíkja öll loforðin okkar (finnum það svo vel um leið og súkkulaðistykkið er búið) erum við reyndar að upplifa eitthvað sem frekar mætti segja að snúist um líffræði og sálfræði. Til viðbótar við afar úthugsaða verslunarhönnun. Málið er þetta: Það er til fyrirbæri sem kallast ákvarðanaþreyta (e. decision fatigue). Hugmyndin á bak við þessa þreytu er að viljastyrkurinn okkar sé meira eins og vöðvi sem verður þreyttur eftir daginn. Sem þýðir að viljastyrkurinn okkar er ekki eitthvað óþrjótandi eða óbrjótandi persónueinkenni okkar. Þegar við erum orðin svolítið þreytt. Eins og eftir vinnu. Er þessi vöðvi einfaldlega orðinn svolítið þreyttur líka. Og þá… lætur hann stundum undan. Enda svo sem ekkert skrýtið. Því allt frá því að við vöknum á morgnana erum við að taka ákvarðanir. Í hvaða fötum ætlum við í vinnuna? Hvað ætlum við að borða í morgunmat? Stærri og smærri atriði eru einfaldlega metin og ákvörðuð allan daginn. Sem þýðir að stundum þegar við komum loksins að kassanum er vitsmunalegi bensíntankurinn okkar einfaldlega orðinn svolítið tómur. Heilinn leitar ósjálfrátt að auðveldustu leiðinni til að fá skjóta dópamínhleðslu og glúkósa: Súkkulaðið er svarið! Auðvitað vita verslanir þetta mætavel. Því auðvitað er það engin tilviljun að nammi sé svona sýnilegt við hvern kassa. Einföldustu ráðin eru kannski þessi: Borðaðu eitthvað áður en þú ferð í búðina Fylgdu innkaupalista Beindu athyglinni markvisst að öðru en namminu þegar þú ert kominn á kassann.
Góðu ráðin Sjálfið okkar Tengdar fréttir Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Hafið þið lent í því að upplifa ykkur alveg skelþunn eftir mannamót án þess að það komi áfengi nokkuð við? 7. september 2026 07:03 Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Æi, okkur líður öllum svona stundum: Það er eitthvað í gangi hjá okkur, jafnvel eitthvað sem er að, og við erum einfaldlega fullviss um að allir séu þvílíkt að taka eftir því eða velta sér upp úr því. 1. september 2026 07:01 „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ „Því gleði er ekkert feik,“ segir Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona. Sem mælir með því að við einfaldlega klæðum okkur í gleðina. Svona eins og við séum að klæða okkur í buxur. Eða einhverja aðra flík. 8. maí 2026 07:01 Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Við tölum oft um bestu útgáfuna okkar. Þessa eftirsóttu útgáfu sem gerir okkur sterkari, hamingjusamari, kátari og svo framvegis. Best í samskiptum, best í að nýta styrkleikana okkar og svo framvegis og svo framvegis. 21. apríl 2025 08:01 Sjálfið okkar: „Mér tekst þetta örugglega ekki“ „Ég sótti um starfið en fæ það örugglega ekki.“ „Ég ákvað að slá til en veit auðvitað að það er vonlaust.“ „Ég get þetta pottþétt ekki.“ 8. ágúst 2024 07:00 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Fleiri fréttir Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Hafið þið lent í því að upplifa ykkur alveg skelþunn eftir mannamót án þess að það komi áfengi nokkuð við? 7. september 2026 07:03
Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Æi, okkur líður öllum svona stundum: Það er eitthvað í gangi hjá okkur, jafnvel eitthvað sem er að, og við erum einfaldlega fullviss um að allir séu þvílíkt að taka eftir því eða velta sér upp úr því. 1. september 2026 07:01
„Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ „Því gleði er ekkert feik,“ segir Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona. Sem mælir með því að við einfaldlega klæðum okkur í gleðina. Svona eins og við séum að klæða okkur í buxur. Eða einhverja aðra flík. 8. maí 2026 07:01
Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Við tölum oft um bestu útgáfuna okkar. Þessa eftirsóttu útgáfu sem gerir okkur sterkari, hamingjusamari, kátari og svo framvegis. Best í samskiptum, best í að nýta styrkleikana okkar og svo framvegis og svo framvegis. 21. apríl 2025 08:01
Sjálfið okkar: „Mér tekst þetta örugglega ekki“ „Ég sótti um starfið en fæ það örugglega ekki.“ „Ég ákvað að slá til en veit auðvitað að það er vonlaust.“ „Ég get þetta pottþétt ekki.“ 8. ágúst 2024 07:00