Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Kaffi Flauel 28. október 2026 08:27 „Fólk segir mér hvað það kunni vel að meta framtakið og að það ætli að passa upp á staðinn. Fólki finnst það eiga í honum. Þetta er okkar staður,“ segir Karen Olga Ársælsdóttir en hún opnaði kaffihús í Selási. Ilmandi kaffi, freistandi tertur og léttar kvöldveitingar eru meðal þess sem tekur á móti gestum á Kaffi Flauel í Selási. Karen Olga Ársælsdóttir opnaði kaffihúsið í ágúst eftir að hafa lengi saknað þess að geta rölt á notalegt hverfiskaffihús. Nú hittast þar nágrannar yfir kaffibolla, vinir setjast niður með vínglas og börnin úr hverfinu líta inn eftir snúð. „
Markmið mitt var að búa til þennan samastað. Stað þar sem fólk getur hist og fundið að það tilheyri,“ segir Karen Olga Ársælsdóttir, eigandi og stofnandi Kaffi Flauels, sem opnaði formlega 8. ágúst eftir langan undirbúning. Karen flutti heim frá Danmörku árið 2014 og settist að í Árbænum. Þar fann hún fljótt fyrir samheldni íbúanna en saknaði þess að geta farið stutt frá heimilinu til að hitta fólk yfir góðu kaffi. „Ég sá að það vantaði samkomustað fyrir fólk, sérstaklega fólk sem þekkist af öðrum vettvangi. Nágranna og foreldra barna sem hafa verið saman í skóla. Börnin vaxa úr grasi og þá vantar kannski stað til að halda þessum tengslum við. Krakkarnir halda áfram að nota körfuboltavöllinn og leikvöllinn en það vantaði samkomupunkt fyrir fullorðna án þess að þurfa að fara langar leiðir.“ Hugmyndin fylgdi Karen í tíu ár. Hún velti fyrir sér staðsetningum og reyndi að planta hugmyndinni hjá öðrum í von um að einhver tæki af skarið. „Allir voru sammála um að það þyrfti að gera þetta en enginn tók af skarið. Svo er auðvitað alltaf nóg annað að gera í lífinu,“ segir hún. Þegar nýtt fjölbýlishús reis hinum megin við götuna þar sem hún býr, með atvinnuhúsnæði á jarðhæð, ákvað hún að festa kaup á einu bili og koma málunum af stað. „Það var ekkert endilega ætlunin að fara sjálf í rekstur. Ég keypti húsnæðið fyrst og fremst til að tryggja að þarna kæmi kaffihús,“ segir Karen. Við tók undirbúningur, leyfisveitingar og ýmis formsatriði sem tóku lengri tíma en hún hafði vonast til. Á meðan jókst eftirvæntingin í hverfinu. „Ég gat varla labbað út í Krónu án þess að einhver væri að spyrja hvernig gengi. Allir voru svo spenntir. Maður vildi auðvitað standa undir væntingunum.“ Kaffi, kökur og notalegar kvöldstundir Á Kaffi Flauel eru eðalkaffi og tertur í aðalhlutverki og hægt að setjast niður yfir kaffibolla og kökusneið eða hittast eftir vinnudaginn. Gestir hafa líka kallað eftir stað til að njóta léttra veitinga á kvöldin og úrvalið hefur þróast í takt við óskir þeirra. „Við finnum að það er mikil eftirspurn eftir léttum veitingum á kvöldin og mætum því með smurðum samlokum og léttum bita og snarli sem er mjög vinsælt. Fólk kemur í vínglas og pítuplatta eða fær sér pretzels og bjór. „Við finnum að fólk kann að meta að geta skroppið á notalegan stað í hverfinu og fengið sér eitthvað gott. Við hlustum á gestina okkar og leitum stöðugt leiða til að gera Kaffi Flauel enn betra.“ Smurbrauðs- og brauðtertukvöld eru meðal hugmynda á teikniborðinu, ásamt kynningu á gerjuðum drykkjum og öðrum skemmtilegum uppákomum t.d prjónakvöldum. Karen segir ánægjulegt að geta þróað staðinn í samtali við gestina og brugðist við nýjum hugmyndum. „Við erum auðvitað alltaf opin fyrir samstarfi við annað hæfileikafólk í nágrenninu, þetta snýst bara um að gera eitthvað skemmtilegt," segir Karen. Börnin eigi þar líka sinn sess. „Við erum beint á móti skóla og hingað koma krakkar sjálfir að fá sér snúð. Við viljum mæta þeim hópi líka. Það er svo gaman að geta stjórnað þessu sjálf og brugðist hratt við hugmyndum.“ Dóttir Karenar vinnur með henni og rekstrarstjórinn Kristín heldur utan um almennt skipulag. „Kristín er algjör stjarna í eldhúsinu. Þetta er samstarfsverkefni okkar, ásamt hinu starfsfólkinu.“ „Þetta er okkar staður“ Kaffihúsið tekur þrjátíu gesti í sæti innandyra og átta utandyra. Bak við húsið er garður og rólegt umhverfi sem meðal annars hefur nýst mæðrahópum. Prjónahópar hittast reglulega á staðnum og ýmsir hópar úr hverfinu hafa þegar gert heimsóknir á Kaffi Flauel að hluta af sinni rútínu. „Hér er öruggt útisvæði fyrir vagnana og foreldrar geta komið hingað, nært sig aðeins og slakað á. Svo kemur sundhópur úr hverfinu reglulega, kennararnir úr skólanum hérna á móti líta við eftir vinnudaginn og prjónahópur hittist hér. Leikskólarnir hafa líka verið að panta borð á starfsdögum. Nærumhverfið er eiginlega allt saman í liði.“ Viðtökurnar hafa farið vel fram úr björtustu vonum og einlægur áhugi nágranna á nýja staðnum er bæði dýrmætur og drífandi. Karen segir íbúana duglega að láta ánægju sína í ljós og greinilegt sé að margir hafi saknað þess sama og hún. „Það hefur verið þvílík ásókn og mér þykir svo vænt um þessar góðu undirtektir. Fólk segir mér hvað það kunni vel að meta framtakið og að það ætli að passa upp á staðinn. Fólki finnst það eiga í honum. Þetta er okkar staður.“ Karen er bæði þroskaþjálfi og viðskiptafræðingur og félagslegi þátturinn hefur verið lykilatriði frá upphafi. Fyrir henni felst ánægjan bæði í því að bjóða góðar veitingar og að sjá fólk njóta samverunnar. „Það skiptir mig máli að fólk hafi tækifæri til tengslamyndunar og hafið góðan vettvangt til þess. Við viljum auðvitað öll finna að við tilheyrum einhverstaðar og hér stendur fólk með sínu hverfi. Maður er Árbæingur fyrst og fremst. Markmiðið var að skapa þennan samastað hér í hverfinu og mér finnst ég hafa náð því að mestu leyti. Ég er allavega mjög stolt.“
Matur Veitingastaðir Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu Sjá meira