Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. ágúst 2026 07:00 Gugga skemmti sér með Patreki Jaime og Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, á Þjóðhátíð. Guðrún Svava Egilsdóttir skellti sér á Þjóðhátíð í Eyjum og hélt þar skemmtilegt vídjóblogg sem hægt er að sjá í nýjasta þætti af Gugga fer á djammið. Þar kemur ýmislegt við sögu, þar á meðal skutlglaðar löggur, kampavínsskenkjandi bæjarstjóri og twerkandi Þjóðhátíðargestir.
Gugga var stödd í eyjum með samstarfsfélögum sínum á útvarpsstöðinni FM957, þeim Patreki Jaime, Rikka G, Agli Ploder, Guðjóni Smára, Andra Björns, Jónu Margréti og Jóhönnu Helgu. Lögreglunnar verðir tóku vel á móti FM-genginu og skutluðu þeim á áfangastað. Patrekur Jaime bíður eftir fari. „Löggan er að fara að skutla þeim upp á hótel. Þetta er náttúrulega ekki hægt,“ má heyra undrandi Rikka G segja í byrjun þáttar. „Er það ekki eðlilegt?“ spyr þá Gugga. „Nei, það er alls ekki eðlilegt. Það er eiginlega bara alveg...“ segir Rikki áður en Gugga grípur fram í fyrir honum og lætur Egil Ploder bera fyrir sig ferðatöskuna inn í lögreglubíl. „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó,“ bætir Rikki við áður en einn lögregluþjónninn segir: „Hvað gerir maður ekki fyrir celebs?“ Þvínæst mátti sjá ferðalag útvarpsmannanna um borð í lögreglubílnum þar sem Patrekur Jaime passaði sig að spenna bílbeltið verandi umkringdur lögreglumönnum. Loksins fór Gugga í gúmmíbát Gugga lét svo loksins verða af því að upplifa langþráðan draum um að ferðast með gúmmíbát, sannkölluð Gugga í gúmmíbát. Erfiðlega gekk þó að setja björgunarvesti á Gugguna. „Sorrý, ég er með smá stór brjóst,“ má heyra hana segja meðan starfsmaður Island Adventures bisaði við að festa á hana vestið. Gugga ferðaðist síðan í kringum Heimaey á gúmmíbátnum áður en hún skellti sér í dalinn þar sem hún hitti fyrir twerkandi Þjóðhátíðargesti og kampavínsskenkjand bæjarstjóra. Hægt er að horfa á nýjasta þáttinn í heild sinni hér að neðan:
Gugga fer á djammið Vestmannaeyjar Þjóðhátíð í Eyjum FM957 Samkvæmislífið Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira