„Ég mun sakna þín, sonur“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. október 2026 10:48 Sjónvarpsfeðgarnir Bryan Cranston og RJ Mitte á SAG-verðlaununum árið 2014. Getty Hollywood-stjarnan Bryan Cranston syrgir leikarann RJ Mitte sem féll frá í gær en þeir léku feðga í fimm þáttaraðir af sjónvarpsþáttunum Breaking Bad. Cranston fer fögrum orðum um Mitte og segir það harmafregn að leikarinn hafi stytt sér aldur. Hann hafi elskað Mitte og muni sakna hans. Roy Frank Mitte lést í heimabæ sínum, Brownsville í Texas-ríki, í gær aðeins 34 ára að aldri og greindu fjölmiðlar vestanhafs frá því að hann hefði stytt sér aldur. Mitte lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta á ferli sínum en var þekktastur fyrir að leika Walter White yngri í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad (2008-13). Hann lætur eftir sig unnustuna Kennedy Suarez. Fjöldi fólks hefur minnst leikarans, þar á meðal Bryan Cranston sem lék Walter White, föður Mitte, í fyrrnefndum þáttum og skrifaði falleg minningarorð um Mitte á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. „Ég skrifa þessi orð í kvöld fullur örvæntingar. RJ Mitte, ljúfur sonur minn í Breaking Bad, er látinn,“ skrifar Cranston. „Ég kynntist honum þegar hann var aðeins fjórtán ára gamall þegar hann var ráðinn til að leika Walter White yngri, hlutverk sem hann lék af þvílíkri gleði og áhugasemi. Hann fæddist með heilalömun (e. cerebral palsy) en lét þá áskorun aldrei nokkurn tímann vera afsökun fyrir neinu. Hann tókst á við krefjandi tökuálagið af mikill staðfestu.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Ég veit að ég elskaði hann“ „Hann hlustaði alltaf á ráðleggingarnar sem sjónvarpsforeldrar hans (Anna Gunn og ég) gáfu honum en verandi unglingur þá hunsaði hann þær stundum stríðnislega til að læra á erfiða mátann. Hann var ein af stjörnum vinsæls sjónvarpsþáttar en var samt krakki,“ skrifar Cranston. „Þessi krakki var frekar hrár þegar við byrjuðum að taka upp fyrsta þáttinn í febrúar 2007 en smátt og smátt fylgdumst við með honum vaxa í virkilega flottan leikara. Hann nýtti reynslu sína af þættinum til að vera ötull talsmaður fyrir leikara með fatlanir og leiddi mannúðarsamtök sem einblíndu á að hjálpa samfélagi fatlaðra,“ skrifar hann. Mitte og Cranston í hlutverkum sínum í Breaking Bad.AMC „Öll þessi fyrirheit og hæfileikar eru nú orðin að miklum missi. Það er sérstaklega átakanlegt að frétta að hann hafi stytt sér aldur. Af hverju?“ „Við sendum hvor öðrum skilaboð fyrir nokkrum vikum til að reyna að finna út úr því hvenær við gætum hist í hádegisverði. Ég veit ekki hvort sá hádegisverður hefði breytt framtíð hans...“ skrifar Cranston. „En ég veit að ég elskaði hann og naut þess innilega að vera með honum í gegnum árin í þáttunum og eftir að sviðsljósið á Breaking Bad dofnaði... Ég mun sakna þín, sonur“ Að lokum hvetur hann alla þá sem eru að íhuga sjálfsvíg að leita sér hjálpar hjá viðeigandi samtökum. „Það er alltaf von,“ skrifar Cranston að lokum. Bíó og sjónvarp Bandaríkin Geðheilbrigði Hollywood Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira
Roy Frank Mitte lést í heimabæ sínum, Brownsville í Texas-ríki, í gær aðeins 34 ára að aldri og greindu fjölmiðlar vestanhafs frá því að hann hefði stytt sér aldur. Mitte lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta á ferli sínum en var þekktastur fyrir að leika Walter White yngri í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad (2008-13). Hann lætur eftir sig unnustuna Kennedy Suarez. Fjöldi fólks hefur minnst leikarans, þar á meðal Bryan Cranston sem lék Walter White, föður Mitte, í fyrrnefndum þáttum og skrifaði falleg minningarorð um Mitte á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. „Ég skrifa þessi orð í kvöld fullur örvæntingar. RJ Mitte, ljúfur sonur minn í Breaking Bad, er látinn,“ skrifar Cranston. „Ég kynntist honum þegar hann var aðeins fjórtán ára gamall þegar hann var ráðinn til að leika Walter White yngri, hlutverk sem hann lék af þvílíkri gleði og áhugasemi. Hann fæddist með heilalömun (e. cerebral palsy) en lét þá áskorun aldrei nokkurn tímann vera afsökun fyrir neinu. Hann tókst á við krefjandi tökuálagið af mikill staðfestu.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Ég veit að ég elskaði hann“ „Hann hlustaði alltaf á ráðleggingarnar sem sjónvarpsforeldrar hans (Anna Gunn og ég) gáfu honum en verandi unglingur þá hunsaði hann þær stundum stríðnislega til að læra á erfiða mátann. Hann var ein af stjörnum vinsæls sjónvarpsþáttar en var samt krakki,“ skrifar Cranston. „Þessi krakki var frekar hrár þegar við byrjuðum að taka upp fyrsta þáttinn í febrúar 2007 en smátt og smátt fylgdumst við með honum vaxa í virkilega flottan leikara. Hann nýtti reynslu sína af þættinum til að vera ötull talsmaður fyrir leikara með fatlanir og leiddi mannúðarsamtök sem einblíndu á að hjálpa samfélagi fatlaðra,“ skrifar hann. Mitte og Cranston í hlutverkum sínum í Breaking Bad.AMC „Öll þessi fyrirheit og hæfileikar eru nú orðin að miklum missi. Það er sérstaklega átakanlegt að frétta að hann hafi stytt sér aldur. Af hverju?“ „Við sendum hvor öðrum skilaboð fyrir nokkrum vikum til að reyna að finna út úr því hvenær við gætum hist í hádegisverði. Ég veit ekki hvort sá hádegisverður hefði breytt framtíð hans...“ skrifar Cranston. „En ég veit að ég elskaði hann og naut þess innilega að vera með honum í gegnum árin í þáttunum og eftir að sviðsljósið á Breaking Bad dofnaði... Ég mun sakna þín, sonur“ Að lokum hvetur hann alla þá sem eru að íhuga sjálfsvíg að leita sér hjálpar hjá viðeigandi samtökum. „Það er alltaf von,“ skrifar Cranston að lokum.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Geðheilbrigði Hollywood Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira