Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Bandaríski grínistinn Kathy Griffin er kominn með nýjan kærasta. Sá ku vera 22 ára og því munar ekki nema 43 árum á parinu. Griffin hefur verið opin með ástarmál sín síðustu ár og sérstaklega áhuga sinn á yngri mönnum. Lífið 10.7.2026 13:54
Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Grasasnarnir í Jackass binda endi á sögu sína með nýrri kvikmynd sem samanstendur að mestu leyti af gömlum atriðum úr seríunni auk nokkurra nýrra sena og dálitlu af áður óséðu efni. Kvikmyndin er frábær kynning á bestu bitum þeirra félaga en nýrri senurnar einkennast af ófrumleika og áhættuleysi sem dregur myndina töluvert niður. Gagnrýni 10.7.2026 07:02
Bonnie Tyler er látin Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“. Tónlist 9.7.2026 09:23
Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Fyrsta kvikmynd „gervigreindarleikkonunnar“ Tilly Norwood, sem uppskar gríðarlega reiði í kvikmyndabransanum þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í fyrra, er farin í framleiðslu. Myndin heitir Misaligned og er lýst sem gamandrama um gervigreindarveru. Bíó og sjónvarp 6. júlí 2026 16:30
Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um áströlsku poppstjörnuna Kylie Minogue í hlaðvarpsviðtali í síðustu viku. Albanese spilaði útgáfu af Ríða, drepa, giftast þar sem hann sagðist vilja giftast, deita og ríða Minogue. Lífið 6. júlí 2026 10:16
Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Frægustu stjörnurnar voru að sjálfsögðu mættar í eitt stærsta brúðkaup ársins hjá Taylor Swift og Travis Kelce. Mikil leynd var yfir öllu sem tengdist brúðkaupinu en talið er að um þúsund manns hafi verið á gestalistanum. Lífið 5. júlí 2026 09:34
Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Í nýjustu kvikmyndinni um Skósveinana svokölluðu kemur fram að þeir hafi þjónað mörgum af helstu skúrkum mannkynssögunnar. Leikstjóri teiknimyndanna segir aftur á móti að þeir hafi ekki þjónað Adolf Hitler Þýskalandskanslara í seinni heimsstyrjöldinni. Bíó og sjónvarp 4. júlí 2026 22:06
Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í það heilaga í New York-borg í gærkvöldi. Gríðarstór veisla var haldin í Madison Square Garden en mikil leynd var yfir athöfninni. Grínistinn Adam Sandler gaf hjónin saman. Lífið 4. júlí 2026 08:19
Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Slúðurmiðlar vestanhafs fóru á flug eftir að myndir náðust af leikaranum Tobey Maguire, sem er þekktastur fyrir að leika köngulóarmanninn, í nánum samskiptum við tónlistarkonuna Ice Spice í risapartýi Michaels Rubin í New York. Virtust þau vera að kyssast en í kjölfar fréttaflutnings af málinu hafnaði Ice Spice því og sagðist einungis hafa deilt rafrettu með leikaranum. Lífið 3. júlí 2026 14:05
Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Fyrsti viðburður í brúðkaupshátíð Taylor Swift og unnusta hennar, fótboltakappans Travis Kelce, er sagður hafa farið fram í gær. Fyrsti viðburður var kvöldverður í aðdraganda brúðkaups þeirra um helgina í Madison Square Garden í New York. Lífið 3. júlí 2026 09:07
Muniz skilinn Bandaríski leikarinn og NASCAR-ökuþórinn Frankie Muniz, sem er þekktastur fyrir að leika Malcolm í miðjunni, og eiginkona hans, Paige Price, eru skilin eftir sex ára hjónaband og tíu ára samband. Lífið 2. júlí 2026 10:02
„Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Leikkonan og leikstjórinn Olivia Wilde segir að fjölmargar lygasögur hafi farið á kreik við tökur á kvikmyndinni Don't Worry Darling sem kom út árið 2022. Hún hafi viljað verja sjálfa sig en segir að sér hafi verið alfarið bannað að tjá sig. Lífið 1. júlí 2026 20:01
Danny Glover með Alzheimer Bandaríski leikarinn Danny Glover greindi frá því í dag að hann væri kominn með Alzheimer-sjúkdóm og hefði glímt við hann síðustu þrjú ár. Hann segist byrjaður að finna fyrir áhrifum sjúkdómsins á talanda sinn, hreyfingu og minningar. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 16:10
Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Fyrirsætan og söngkonan Cara Delevingne staðfestir að hún og leikkonan Amber Heard hafi átt í ástarsambandi fyrir um áratugi síðan. Stöllurnar unnu saman að kvikmyndinni London Fields ásamt þáverandi eiginmanni Heard, Johnny Depp, og höfðu verið vinkonur lengi áður en meira gerðist að sögn Delevingne. Lífið 1. júlí 2026 15:00
Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Síminn hefur til skoðunar að framleiða íslenska útgáfu af raunveruleikaþáttunum Love Island. Til skoðunar er að taka upp þættina á Möltu. Samtal er sagt vera í gangi á milli Símans, Sagafilm og bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV vegna þáttanna. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 14:29
Michael Byrne er látinn Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 10:13
Mormónastjarna kemur út úr skápnum Raunveruleikastjarnan Layla Taylor úr alræmdu þáttunum Secret Lives of Mormon Wives hefur fundið ástina með nýrri kærustu. Taylor kom út sem tvíkynhneigð í hlaðvarpi Jay Shetty og segir að strangt trúarlegt uppeldið hafi gert henni erfitt að skilja kynhneigð sína. Lífið 30. júní 2026 13:00
Lést af völdum alnæmis Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, lést úr alnæmi að sögn réttarlæknis. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að Chase væri látin þrjátíu og fimm ára að aldri. Lífið 29. júní 2026 21:10
Synir Britney gengu tískupallinn í París Jayden James og Sean Preston, synir hinnar heimsfrægu söngkonu Britney Spears, vöktu athygli og lukku á tískuvikunni í París á dögunum þegar þeir gengu tískupallinn fyrir hátískuhönnuði. Strákarnir, sem eru nítján og tuttugu ára gamlir, eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Tíska og hönnun 29. júní 2026 13:14
Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Bandaríski Hollywood leikarinn Jesse Eisenberg segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Mark Zuckerberg og því hafi hann hafnað leikstjóranum og handritshöfundinum Aaron Sorkin um að snúa aftur til leiks og leika forstjóra Facebook í kvikmyndinni Social Reckoning sem nú er í bígerð. Lífið 29. júní 2026 08:01
Sambandi Cox og McDaid lokið Sambandi bandarísku leikkonunnar Courteney Cox og tónlistarmannsins Johnny McDaid er lokið. Þau hafa verið saman í um tíu ár en bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að þau séu hætt saman. Lífið 27. júní 2026 20:41
Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Bachelorette-sería mormónaskvísunnar Taylor Frankie Paul kann að vera tekin til sýninga strax í næsta mánuði. Það er slúðurmiðillinn TMZ sem greinir frá og hefur eftir heimildarmönnum að eftirvinnsla þáttanna hafi aldrei verið stöðvuð heldur hafi klipparar haldið áfram að vinna þættina. Lífið 25. júní 2026 16:09
Hvað veistu um... Ross í Friends? Miklar líkur eru á að flestir þeir sem hafi átt sjónvarp eða haft aðgang að sjónvarpi eða streymisveitum hafi horft á þættina um Vini, eða Friends. Þættirnir eru með þeim allra vinsælustu í sjónvarpssögunni og eiga margir til að vísa í stakar línur úr þáttunum og rifja upp einstök atriði. Lífið 24. júní 2026 20:01
Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Poppstjarnan knáa Olivia Rodrigo hefur sett á laggirnar tónlistarhátíð í Kaliforníu þar sem einungis tónlistarkonur koma fram. Rodrigo stígur sjálf á stokk ásamt úrvalsliði einhverra öflugustu tónlistarkvenna í heimi. Tónlist 23. júní 2026 10:01