Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 11. október 2026 22:01 Andrea segir algengar staðalímyndir um OCD hafa orðið til þess að hvorki hún sjálf né fólkið í kringum hana áttaði sig á því hvað amaði að henni. Samsett „Þetta var bara túlkað eins og ég væri frek eða þrjósk. Það var ekkert verið að hugsa: „Kannski er eitthvað annað í gangi.“ Svo var náttúrulega líka þessi staðalímynd um OCD. Ég passaði ekkert sérstaklega inn í hana.“
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar hún var aðeins þriggja ára en það var ekki fyrr en árið 2024 sem hún fékk greiningu. OCD er geðröskun sem einkennist meðal annars af endurteknum og óvelkomnum hugsunum, hugarmyndum eða hvötum sem geta valdið miklum kvíða og vanlíðan. Einstaklingar með röskunina geta einnig fundið fyrir sterkri þörf til að framkvæma ákveðnar athafnir eða fylgja tilteknum reglum til þess að draga úr vanlíðan. Þótt margir tengi OCD fyrst og fremst við þrif, hreinlæti eða stanslausa þörf fyrir skipulag þá getur röskunin birst með ýmsum hætti, og einkennin eru ekki alltaf sýnileg öðrum. Dagana 11. til 17. október fer fram alþjóðleg vitundarvika um áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD. Í tilefni hennar ákvað Andrea að segja opinberlega frá reynslu sinni og birti færslu á TikTok þar sem hún rakti sögu sína. Með frásögninni vonast hún til að auka skilning á röskuninni og hjálpa öðrum sem glíma við sambærileg einkenni. Óttaðist froðu þriggja ára gömul Elstu minningar Andreu um einkennin tengjast ótta við froðu. „Ég hef alltaf verið með þessa minningu, um að vera með fóbíu fyrir froðu. Síðan fannst vídeó fyrir nokkrum árum þar sem ég er þriggja ára og er að horfa á bróður minn í froðubaði. Ég segi: „Ég vil ekki fara í svona.“ Og mamma segir: „ Já, ég veit það, þú vilt ekki fara í froðubað.“ Þannig að þar byrjar þetta.“ Frá unga aldri var Andrea einnig mjög matvönd og borðaði meðal annars hvorki ávexti né grænmeti. Síðar átti óttinn við ákveðnar fæðutegundir eftir að verða stór hluti af þeirri meðferð sem hún fór í vegna OCD. Þegar hún var komin í sjötta bekk í grunnskóla fór hún að forðast yngri bróður sinn þar sem hún upplifði hann og hluti sem hann hafði snert sem „ óhreina.“ Fyrstu einkenni Andreu birtust meðal annars í miklum ótta við froðu og ákveðnar fæðutegundir.Aðsend „Þetta hafði gríðarlega mikil áhrif á daglegt líf. Ég forðaðist bróður minn og vildi ekki að fólk kæmi inn í herbergið mitt. Það mátti ekki þrífa inni hjá mér, koma við dótið mitt eða sitja á stólnum mínum. Annars gat ég orðið ógeðslega reið. En ég talaði ekkert upphátt um hugsanirnar. Fólk sá hegðunina hjá mér, en vissi ekkert endilega hvað var á bak við hana.“ Opin dós gat tekið yfir athyglina Grunnskólaárin gengu að mestu ágætlega en í framhaldsskóla komu upp aðstæður sem reyndust Andreu erfiðar. Þar á meðal voru opnar gos og orkudrykkjadósir sem samnemendur hennar höfðu á borðunum í kennslustundum. Óttinn við að innihaldið myndi hellast yfir hana gerði það að verkum að hún átti erfitt með að einbeita sér að öðru. Andrea lýsir því hvernig hversdagslegar aðstæður, sem flestir leiða varla hugann að, gátu valdið henni verulegri vanlíðanAðsend „Þá fór ég alltaf að fókusera á dósina, ég bara varð að passa að hún dytti ekki á mig. Ég passaði líka að hafa töskuna mína ekki þeim megin sem dósin var, heldur frekar þar sem enginn var. Þetta voru alltaf svona mjög litlir hlutir sem tóku rosalega stórt pláss í huganum á mér.“ Möguleikinn á OCD hafði verið nefndur við Andreu áður en hún fékk greininguna en hún hafnaði honum. Í hennar huga snerist röskunin fyrst og fremst um ákveðnar endurteknar athafnir, eins og að stíga ekki á strik eða kveikja og slökkva ljós þrisvar sinnum í hvert skipti. Hún kannaðist ekki við sjálfa sig í þeirri lýsingu. Ég var ekkert að tala um þetta af því að ég vissi ekkert hvað fólk ætti þá eftir að segja. Ef ég gat ekki snert eitthvað gat fólk sagt: „Af hverju snertirðu þetta ekki bara? Hvað er að þér?“ En ég bara gat það ekki. Auk þess að óttast ákveðna hluti þá hefur Andrea glímt við ágengar hugsanir um meðal annars ofbeldi og kynferðislegar athafnir. Hugsanirnar geta komið upp fyrirvaralaust, hvort sem hún er í skólanum, vinnunni eða úti að ganga, og snúast um hluti sem hún hefur alls engan áhuga á að gera. „Ég sé kanski hníf, og mamma mín stendur einhvers staðar nálægt, og þá hugsa ég: „Stingdu hana.“ Og þá kemur strax upp önnur hugsun: „Nei, nei, nei, mig langar það ekki neitt.“ Ég hef engan áhuga á því en heilinn minn er sannfærður um það. Hann er bara: „Jú, þú vilt gera þetta.“ Sérstaklega áður en ég var greind var ég bara: „Hvað er að mér? Er ég vond manneskja?“ Brast í grát hjá sálfræðingi Það var árið 2024 sem Andrea fékk loks skýringu á einkennunum. Hún var þá í viðtölum hjá sálfræðingi vegna annarra mála og fór í mat þar sem meðal annars var fylgst með viðbrögðum hennar við ákveðnum hlutum og matvælum. „Í einu prófinu sem var gert þá fór ég bara að gráta. Þá varð náttúrulega svolítið augljóst að þarna var eitthvað mikið í gangi. Hún ákvað svo að senda mig á OCD-námskeið. Ég ákvað að fara á það og það breytti rosalega miklu fyrir mig. Það var ekki þannig að ég væri bara allt í einu læknuð, heldur lærði ég loksins hvað ég væri að glíma við og hvernig ég gæti unnið með það.“ Á námskeiðinu var lögð áhersla á að takast smám saman á við það sem Andrea hafði forðast árum saman. Þar kom meðal annars aftur við sögu óttinn við froðu auk þess sem hún þurfti að vinna með óhreina diska og ýmsa ávexti. Hún gantast með að þetta hafi að mörgu leyti verið eins og á leikskóla. „Þarna var maður að gera allskonar hluti sem fyrir flestum eru algjörlega hversdagslegir, en fyrir mig var þetta bara eitt það erfiðasta sem ég hef gert.“ Andrea ákvað að sega frá reynslu sinni á TikTok í tengslum við alþjóðlega vitundarviku OCD, sem stendur yfir dagana 11. til 17. október.Aðsend Hugsanirnar eins og þrumuský Eitt af því sem Andrea tók með sér af námskeiðinu var einföld myndlíking um ágengar hugsanir sem hefur reynst henni vel. Með henni lærði hún að leyfa ágengum hugsunum að koma, og fara. „Það kemur þrumuský og það er vont veður. Síðan líður það hjá og það kemur sól aftur. Mér fannst rosalega gott að hugsa um þetta þannig. Bara að muna: Þetta líður hjá. Hugsunin þarf ekki að þýða neitt meira en það að hún kom.“ Auk námskeiðsins tekur Andrea lyf sem hafa hjálpað henni. Röskunin er þó enn til staðar og suma daga reynist erfiðara en aðra að nýta sér aðferðirnar sem hún hefur lært. „Ég er á lyfjum og þau hjálpa. Svo hefur námskeiðið kennt mér hvað ég get gert þegar ég fæ þessar hugsanir og hvernig ég get reynt að komast fram hjá þeim. Markmiðið er að gera það sem mig langar til að gera í staðinn fyrir það sem OCD-ið vill. En það koma líka dagar þar sem ég gefst upp og leyfi hugsununum að vinna. Ég reyni samt alltaf mitt besta.“ Erfiðleikar við að losa sig við hluti hafa einnig fylgt Andreu. Í bílskúr fjölskyldunnar eru kassar af dóti sem hún þarf nú að fara í gegnum flutninga. „Ég fæ rosalega mikla tilfinningalega tengingu við hluti sem ég þarf ekkert að eiga. Ég held líka að ég sannfæri mig um að ég muni þurfa þá. Ég átti til dæmis penna sem virkaði ekki en ég var samt sannfærð um að ég þyrfti þennan penna. Sama með föt sem ég mun aldrei nota aftur, passa ekki á mig og eru ekki einu sinni minn stíll lengur. Samt er ég bara: „Nei, ég verð að eiga þetta. Munurinn er kannski sá að aðrir eiga einn eða tvo svona hluti en ég finn þessa tengingu við allt.“ Fékk skilaboð frá ókunnugu fólki Viðbrögðin við TikTok-færslunni urðu meiri en Andrea hafði átt von á. Hún fékk meðal annars persónuleg skilaboð frá fólki sem þakkaði henni fyrir að segja frá og lýsti því hvað það væri gott að vita að aðrir glímdu við sambærilega erfiðleika. „Mér finnst mjög erfitt að opna mig en ég hugsaði einhvern veginn: „Af hverju ekki? Hvað er það versta sem getur gerst?“Ég vil miklu frekar reyna að hjálpa öðrum. Svo fór ég að fá persónuleg skilaboð frá ókunnugu fólki sem var bara: „Takk fyrir að deila, mér finnst svo gott að vita að ég sé ekki ein. Þá fannst mér þetta eiginlega alveg þess virði. Ég sé alls ekki eftir því að hafa birt færsluna.“ Með því að stíga fram vill Andrea vinna gegn ranghugmyndum um OCD og vekja athygli á því að röskunin getur birst á mun fjölbreyttari hátt en margir gera sér grein fyrir.Aðsend Móðir Andreu tók þátt í fræðsluhluta OCD-námskeiðsins þar sem aðstandendum var meðal annars kennt hvernig hægt væri að styðja þá sem glíma við röskunina. Andrea leggur mikla áherslu á að fólk sýni erfiðleikunum skilning og nefnir sem dæmi hversu miklu það hafi skipt að fá hvatningu til að takast á við verkefnin á námskeiðinu í stað þess að heyra að hún ætti einfaldlega að láta sig hafa það. „Mér finnst rosalega mikilvægt fyrir fólk sem er ekki með OCD að vita hvað þetta er og geta hjálpað. Það skiptir miklu máli að fá stuðning frá fólki í kringum sig. Það hjálpar miklu meira að fá að heyra:“ Vel gert, þú ert að gera þitt“ heldur en: „Gerðu þetta bara.“ Sumir eiga mjög erfitt með að skilja þetta. En maður þarf ekki endilega að skilja allt til að geta stutt manneskjuna.“
Geðheilbrigði Samfélagsmiðlar Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Fleiri fréttir Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Sjá meira