Lífið

Aníta Briem og Haf­þór ó­létt á ný

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Aníta og Hafþór þegar þau tilkynntu fyrri óléttu sína.
Aníta og Hafþór þegar þau tilkynntu fyrri óléttu sína.

Aníta Briem og Hafþór Waldorff eiga von á sínu öðru barni saman. Þau segja að sér hafi ekki dottið í hug að þetta væri mikill möguleiki eftir að hafa eignast sitt fyrra barn með glasafrjóvgun.

Aníta greinir frá málinu í einlægri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Hún og Hafþór eignuðust dóttur í nóvember 2024 en fyrir átti Aníta eina dóttur. Parið hefur unnið náið saman í kvikmyndageiranum og búa þau saman í vesturbæ Reykjavíkur.

„Þakklæti ofan á allt heimsins þakkæti. Lítil sál hreiðraði um sig og ætlar að koma í mömmu og pabbafang í mars,“ skrifar Aníta. „Eftir að hafa farið í glasafrjóvgun með Lúnu okkar datt okkur ekki í hug að þetta væri mikill möguleiki. Hjartað er fullt.“


Tengdar fréttir

Dóttir Anítu Briem og Hafþórs komin með nafn

Dóttir Anítu Briem leikkonu og Hafþórs Waldorff er komin með nafn. Stúlkunni var gefið nafnið Lúna. Stúlkan kom í heiminn þann 13. nóvember síðastliðinn og er þeirra fyrst barn saman. Fyrir á Aníta eina dóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.