Lífið

Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það er af mörgu að taka í fjörutíu ára sögu Sýnar og Stöðvar 2. Hér að neðan má sjá brot af því besta.
Það er af mörgu að taka í fjörutíu ára sögu Sýnar og Stöðvar 2. Hér að neðan má sjá brot af því besta.

Sýn fagnar fjörutíu ára afmæli einkarekins sjónvarps en Stöð 2 fór í loftið þann 9. október 1986. Í tilefni afmælisins hefur Vísir tekið saman vinsæl brot úr smiðju Stöðvar 2 og Sýnar síðustu fjörutíu árin. 

Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu.

Kryddsíld hefur verið fastur liður á gamlársdag. Hér má sjá brot af því besta. Hún verður á sínum stað á Sýn á gamlársdag.

Ísland í dag er eitt rándýrt vörumerki í sjónvarpi þó það liggi í smá dvala um þessar mundir. Eitt af eftirminnilegustu viðtölunum í þættinum voru við Jón stóra.

Jón Ársæll fór um víðan völl í þáttum sínum Sjálfstæðu fólki. Þar var rætt við alls konar fólk, allt frá Völu Grand til Hemma Gunn og Stefáns Karls.

Idol-ið var vinælt sjónvarpsefni og margar stjörnur sem slógu í gegn eins og Jóna Margrét sem í dag starfar sem útvarpskona á FM957.

Ófá börnin fóru á kostum í Jólastjörnunni þar sem Björgvin heitinn Halldórsson leitaði að efnilegum söngvurum. Þeirra á meðal var Íva Marín Adrichem

Logi Bergmann var í stóru hlutverki um árabil á Stöð 2 og stýrði ýmsum þáttum auk þess að lesa fréttir. Salka Sól fór á kostum í þættinum Logi og rappaði fréttirnar.

Dramatíkin og gleðin voru allsráðandi í Allir geta dansað. Regína Ósk og Max voru á meðal keppenda en eins og í öllum keppnum þá er bara einn sigurvegari.

Margir hlógu sig máttlausa yfir Svínasúpunni og þetta atriði er mörgum í fersku minni.

Þórunn Antonína og Nilli voru í aðalhlutverkum í þáttunum Týnda kynslóðin. Skyrglíma þeirra vakti mikla athygli.

Auddi og Sveppi hafa verið fastagestir á skjánum í ýmsum þáttum. Hér bregða þeir á leik með Bubba Morthens og Ara Eldjárn.

Spaugstofan færði sig frá RÚV yfir á Stöð 2. Pálmi Gestsson var í aðalhlutverki í þessum eftirminnilega atriði með vísun í vinsælt suður-kóreskt popplag.

Gyða Sól er einn furðulegasti karakterinn í Fóstbræðrum sem mörgum fannst á undan sinni kynslóð í gríni og glennsi.

Sindri Sindrason las fréttir um árabil og skellti sér í heimsókn til frægra Íslendinga í samnefndum þáttum. Margir horfðu á þáttinn þegar Ragnhildur Steinunn var sótt heim.

Fréttaskýringaþátturinn Kompás var endurvakinn fyrir nokkrum árum. Þar er stunduð rannsóknarblaðamanneska og hér var kafað ofan í fylliefni. Kona sem lenti í lífshættu sagði sögu sína.

Strákarnir í Draumaseríunni vekja alltaf lukku og ekki síst hjá yngri kynslóðinni. Hér fer kviknakinn Pétur Jóhann í brasilískt vax í Alheimsdraumnum.

Verzlóstrákarnir í Áttunni brölluðu ýmislegt skemmtilegt í sínum þáttum.

Ilmur Kristjánsdóttir fór á kostum í sjónvarpsþáttunum Ástríði.

Gestir í þáttunum Bannað að hlæja voru undir mikilli pressu að vera fyndnir. Þá er gott að vera sérfræðingur í eftirhermum.

Opin sambönd virðast sífellt verða algengari. Í Draumahöllinni með Sögu og Steinda kynntumst við pari sem útskýrði hvernig opna sambandið virkaði. Sitt sýndist hverjum.

Kristján Már Unnarsson hefur líklega sagt fleiri fréttir af flugbransanum en nokkur annar. Þættir hans Flugþjóðin hafa notið mikilla vinsælda. Hér slakar hann á með áhöfn Air Atlanta í Kenýa.

Sindri Sindrason hélt utan um þættina Fósturbörn á Sýn þar sem mörg sorgarsagan var sögð.

Ása Ninna reyndi að koma fólki saman í þáttunum Fyrsta blikinu þar sem fólk lagði ýmislegt á sig.

Ásdís Rán er hin eina sanna Ísdrottning og tók Ósk Norðfjörð tali í þáttunum Heimur Ísdrottningarinnar.

Pétur Jóhann Sigfússon fór á kostum í þáttunum Hlemmavídeó sem Siggi sem komst á séns eins og sést í myndbandinu að neðan.

Lóa Pind hefur kynnst Íslendingum um allan heim til að svara spurningunni hvar sé best að búa.

Ingó veðurguð fékk góða gesti í heimsókn á föstudagsvöldum í þáttunum Í kvöld er gigg. Hér syngur Einar Ágúst Esjuna.

Ísland got talent var afar vinsæl þáttur og margar stjörnurnar urðu til. Jón Arnór Pétursson átti ótrúlegt kvöld þegar hann sýndi töfrabrögð aðeins sjö ára gamall.

Það getur ýmislegt gerst hjá Evu Laufeyju og Gumma Ben í Ísskápastríði. Hér lenda Eva Laufey og Selma Björnsdóttir í tómu basli.

Magni Ásgeirsson sló í gegn í Kvöldstund með Eyþóri Inga þegar hann rifjaði upp gamla takta úr raunveruleikaþáttunum Rockstar Supernova.

Kórar Íslands komu saman í samnefndum þáttum og öttu keppni undir stjórn Frikka Dórs sem komst ekki hjá því að taka lagið.

Hvernig á að vera sannur herramaður? Þeirri spurningu var svarað með kómískum þætti í Mannasiðum með Gillz.

Það er auðvelt að sitja heima í stofu og svara spurningum en það er annað að vera í sviðsljósinu í beinni útsendingu. Þá geta málin vandast.

Ása Ninna fór á flakk um sveitirnar og ræddi um rómantík á býlum landsins. Þar voru margar sögur sagðar eins og af kálfakaupum á klósettinu.

Viktor var opinskár um fegrunaraðgerðir sínar í þáttunum Tilbrigði um fegurð.

Í þáttunum Viltu finna milljón opnaði fólk sig um fjárhagslega stöðu sína og fékk góð ráð. 

Strákarnir í Æði fara sínar eigin leiðir. Hér var Raggi Kjartans með í gríninu.

Vart þarf að taka fram að stiklað er á mjög stóru hér að ofan úr gullkistu Stöðvar 2 og Sýnar í gegnum árin. Fólk getur gert sér glaðan dag á sjónvarpsvef Sýnar þar sem má finna fleiri stórkostleg brot úr öllum áttum.


Tengdar fréttir

Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“

Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Stöðvar 2 og af því tilefni verður sýndur afmælisþáttur í kvöld þar sem litið verður yfir farin veg og rætt við ýmsar stjörnur, gamlar og nýjar, sem settu svip sinn á stöðina. Vala Matt verður á sínum stað með græna pennan og Simmi Vill mætir með handrið sem hann braut eftirminnilega af Fokker-flugvél við tökur á Idol stjörnuleit.

Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna

„Þetta var erilsamur, spennandi og ógleymanlegur dagur,“ segir Gurmel Singh, tæknistjóri frá Sony, sem öll spjót beindust að á Krókhálsi í október 1986 þegar fyrsta einkarekna sjónvarpsstöðin átti að fara í loftið á Íslandi. Pressan var mikil enda beindist kastljós heimsins að Íslandi vegna leiðtogafundarins í Höfða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.