Trump hafi nú engu að tapa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. nóvember 2026 09:25 Donald Trump notar mikið tilskipanir til að fara fram hjá þinginu. EPA Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata. Ákveðið frost gæti verið fram undan á þinginu. Bandaríkjaforseti hafi nú engu að tapa. „
Þetta er aðeins meiri sigur Demókrata en menn gerðu ráð fyrir. Það stefndi flest í þessa átt og kannanir voru búnar að sýna þetta en ég held að óvissan hafi verið í því að kannanir hafa haft rangt fyrir sér áður,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, sem ræddi niðurstöður kosninganna í Bítinu á Bylgjunni. Á þessari stundu er Demókrataflokkurinn talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins en enn er ekki búið að telja öll atkvæðin. „Þetta er algjört afhroð Repúblikana. Miklu frekar en sigur Demókrata,“ segir Eiríkur. Ræður enn utanríkismálum Donald Trump Bandaríkjaforseti var áberandi í kosningabaráttunni þrátt fyrir að vinsældir hans mælist í sögulegu lágmarki meðal flokksmanna Repúblikanaflokksins. Hann lofaði oft að ef að Repúblikanar myndu sigra báðar deildirnar fengju allir Bandaríkjamenn fimm þúsund Bandaríkjadali. Eftir að niðurstöðurnar urðu að mestu ljósar segir Eiríkur að nú hafi Trump engu að tapa. „Hann hafði þessum kosningum að tapa en héðan í frá hefur hann engu að tapa. Hann á ekkert undir pólitískt, hann getur ekki boðið sig fram aftur og það eru ekki aðrar kosningar svo að því leytinu til eru engin bönd sem halda honum í þeim efnum.“ Hingað til hafi Trump stjórnað landinu að mestu með tilskipunum og farið langt fram hjá þinginu. Eiríkur telur að hann muni halda því áfram og gefa í en þingið geti þó haldið honum í skefjum þegar kemur að innanríkismálum. Trump hafi þó enn mikil völd þegar kemur að utanríkismálum. „Það er ekkert sem takmarkar möguleika hans á að hreyfa sig utanlands. Þá getur vel verið að fókusinn færist þangað,“ segir hann. Eiríkur Bergmann segir stefna í mikinn oddvitaslag í Samfylkingu.Vísir/Anton Brink „Það sem er stórmerkilegt við niðurstöður þessara kosninga er að það er viðbragð Íran að loka Hormússundi sem skilar þessu. Það viðbragð við árásunum hækkar eldsneytisverð í Bandaríkjunum og það er algjörlega kristalskýrt að það eru þessar verðlagshækkanir og þessi aðþrenging sem skila þessari niðurstöðu.“ Einnig hafi tollar sem forsetinn hefur sett á einnig haft töluverð áhrif á matvælaverð sem leiðir til eins konar lífskjarakrísu vestanhafs. Áhugaverðar niðurstöður Eiríkur telur að nú gæti verið frost fram undan í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að þingið nái lögum í gegnum báðar deildirnar enda þau á borði forsetans til staðfestingar. Sömuleiðis mun þingið ekki taka í gegn beiðnir forsetans. „Það er fátt sem demókratar með meirihluta í deildum þingsins geta gert upp á eigin spýtur,“ segir Eiríkur. Kosningarnar hafi samt sem áður leitt í ljós nokkrar áhugaverðar niðurstöður. „Fyrsti músliminn í Michigan, fyrstu svörtu konuna í öldungadeildarsæti, það er ýmislegt sem virðist vera áhugavert við þessar niðurstöður.“
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Bítið Bylgjan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira