
FH

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - ÍBV 27-31 | ÍBV stal heimavallarréttinum
ÍBV er komið í forystu í undanúrslitum gegn FH í Olís-deild karla í handknattleik eftir sigur í fyrsta leik liðanna í Kaplakrika í kvöld.

Meira en þrjátíu ár síðan FH tókst síðast að slá ÍBV út úr úrslitakeppninni
FH-ingar taka í kvöld á móti Eyjamönnum í fyrsta leiknum í undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild karla í handbolta.

Veðjar á að ÍBV landi titlinum: „Þetta verður svakaleg viðureign“
„Eyjamenn líta virkilega vel út og ef ég ætti að veðja á eitthvað lið til að vinna titilinn þá myndi ég veðja á ÍBV, en þetta verður svakaleg viðureign,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Fram, sem rýndi í undanúrslitarimmurnar í Olís-deild karla í handbolta.

Elfar Árni: Rosalega gott að vera kominn aftur á völlinn
KA vann góðan 4-2 sigur á FH á Greifavellinum á Akureyri í dag í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Fimm mörk litu dagsins ljós í seinni hálfleik eftir rólegan fyrri hálfleik. Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði fjórða mark KA í dag með glæsilegu skot í vinkilinn fjær og var ánægður að leik loknum.

Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 4-2 | Fimm mörk í síðari hálfleik þegar KA vann sinn annan sigur
KA vann góðan 4-2 sigur á FH á Greifavellinum á Akureyri í fimmtu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Eftir rólegan fyrri hálfleik litu fimm mörk dagsins ljós í fjörugum seinni hálfleik. Með sigrinum fer KA í átta stig og lyftir sér upp fyrir FH í 4. sæti. FH í 5. sæti með sjö stig.

„Ég er mjög mikill aðdáandi Eyjunnar en held að FH sé sterkari“
Logi Geirsson hefur meiri trú á FH en ÍBV í einvígi liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 2-0 | Vísað á dyr með fölsuð skilríki
Íslands- og bikarmeistarar Vals áttu ekki í teljandi vandræðum með að vinna spræka nýliða FH í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld.

„FH spurði mig ekkert að því“
„Mér fannst þetta bara góður leikur hjá báðum liðum. FH er erfitt að spila á móti, erfitt að vinna. Við berum mikla virðingu fyrir þeim og þegar upp er staðið er ég bara mjög sáttur með að vinna 2-0,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir sigurinn gegn FH í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag.

„Virkaði sem sirkus alla vikuna“
„Þetta virkaði sem sirkus alla vikuna,“ sagði Guðmundur Benediktsson, Gummi Ben, um hið svokallaða „vallarugl“ fyrir leik FH og KR í Bestu-deild karla sem fram fór á laugardaginn.

Kjartan Henry: Nánast draumi líkast
Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður FH, var að vonum ánægður eftir 3-0 sigur liðsins á KR í dag þar sem hann skoraði tvö mörk.

Umfjöllun og viðtöl: FH - KR 3-0 | Ósigrandi á Miðvellinum
FH valtaði fyrir KR á gulum Miðvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Kjartan Henry Finnbogason reyndist sínum gömlu félögum en skoraði tvö mörk. Það fyrra einkar glæsileg bakfallsspyrna og það síðara einföld afgreiðsla af stuttu færi.

Segja ákvörðun KSÍ íslenskri knattspyrnu ekki til heilla
Stjórn knattspyrnudeildar FH sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem félagið gagnrýnir vinnubrögð Knattspyrnusambands Íslands í kjölfar þess að KSÍ varð ekki við ósk félagsins um að fresta leik FH og KR sem átti að fara fram á Kaplakrikavelli í kvöld.

Leikur FH og KR var aðeins í nokkra klukkutíma í Árbænum
FH spila ekki á Würth vellinum í Árbæ á morgun eins og tilkynnt var fyrr í dag. Leikurinn hefur verið færður aftur í Hafnarfjörð.

FH og KR mætast í Árbænum
Leikur FH og KR í Bestu deild karla verður leikinn á Würth vellinum í Árbænum á morgun.

„Hlaut að koma að því að maður færi að skora“
„Ég var í handbolta og frjálsum en var aldrei 100 prósent eins og í fótboltanum. Ég er sjöfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur bikarmeistari með FH í yngri flokkum í handbolta en hætti árið 2016,“ segir Örvar Eggertsson, hinn 24 ára gamli kantmaður HK, sem hefur byrjað sumarið með látum.

Félögin selja hamborgara, bjór og varning fyrir tugi milljóna
KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag.

Leikmenn Vals með hæstu launin
Það er óhætt að segja að stórveldið Breiðablik sé í sérflokki er kemur að launum og tengdum gjöldum hjá félögum á Íslandi.

Breiðablik hefur fengið 390 milljónir frá UEFA á tveimur árum
KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - FH 4-1 | Þægilegt hjá Þrótti
Þróttur vann sterkan sigur á FH í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í sumarsnjóveðri í Laugardalnum á miðvikudagskvöldið.

Oliver til ÍBV
Fótboltamaðurinn Oliver Heiðarsson er genginn í raðir ÍBV frá FH. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV.

KSÍ hafnaði beiðni FH um frestun
„Leikurinn verður á föstudaginn. Mótanefnd KSÍ hafnaði ósk FH um frestun á leiknum,“ segir Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, varðandi ósk FH um að fresta leik liðsins gegn KR í Bestu deild karla.

„Spurning hvort það þýði ónýtur völlur í allt sumar?“
Eins og stendur er Kaplakrikavöllur ekki í góðu standi en stórleikur FH og KR á að fara fram á vellinum á föstudaginn.

FH-ingar bjóða Gylfa velkominn á æfingar
Gylfi Þór Sigurðsson er uppalinn hjá FH og sumir sjá það sem möguleika fyrir Gylfa að koma sér aftur í leikform með því að spila með FH-liðinu í Bestu deildinni í simar.

FH sækir tvo leikmenn á lokametrum félagskiptagluggans
Arna Eiríksdóttir og Heidi Giles hafa gengið til liðs við FH fyrir komandi átök í Bestu deildinni.

Lítið um skipti á lokadögum félagaskiptagluggans
Félagskiptagluggin lokar á miðnætti annað kvöld og ólíklegt er að margar hræringar í viðbót verði fyrir lok gluggans.

„Það var allt annað að sjá okkur í dag“
Ásgeir Eyþórsson, varnarmaður Fylkis, stangaði boltann í netið þegar hann skoraði þriðja mark sinna manna í 4-2 sigri á FH í 3. umferð Bestu deildarinnar.

„Þau öskruðu nafnið mitt og ég skilaði mínu“
Hinn tvítugi sóknarmaður Fylkis, Óskar Borgþórsson, skoraði fjórða mark sinna manna og gulltryggði 4-2 sigur gegn FH í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - FH 4-2 | Nýliðarnir komnir á blað
Nýliðar Fylkis eru komnir á blað í Bestu deild karla eftir 4-2 sigur á FH í 3. umferð en þetta var fyrsta tap FH á tímabilinu.

Besta spáin 2023: Stutt stopp hjá FH
FH er nýliði í deildinni eftir að hafa farið ósigrað í gegnum 1.deildina. Munurinn á deildunum er hins vegar mikill og því þarf allt að ganga upp hjá Hafnarfjarðarliðinu svo ekki fari illa.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - FH 24-33 | FH sendi Selfoss í sumarfrí
Selfoss er úr leik eftir að hafa fengið skell gegn FH á heimavelli. Leikurinn endaði með níu marka sigri FH-inga 24-33. Gestirnir settu tóninn strax í upphafi leiks og sigurinn var gott sem kominn í hálfleik.Tímabilinu er lokið hjá Selfyssingum en FH mætir ÍBV í undanúrslitum.