Lausnir á löngum biðlista barna Kolbrún Baldursdóttir skrifar 19. mars 2020 08:00 Í svari frá velferðarsviði kom fram að í desember 2019 biðu um 750 börn eftir að hitta sérfræðinga hjá skólaþjónustu. Það ár bárust 2162 beiðnir til skólaþjónustu Reykjavíkurborgar vegna 1875 barna. Málum hefur fjölgað milli ára um 23%. Fjöldi barna sem biðu eftir fyrstu þjónustu voru 452 börn, þar af 297 eftir þjónustu sálfræðinga. Eftir talmeinafræðingi biðu 121 barn. Annar hópur barna beið eftir meiri og frekari þjónustu og voru þau 307 talsins. Þessi börn voru fyrst á biðlista eftir fyrstu þjónustu en þar sem metið var að þau þyrftu frekari þjónustu fóru þau aftur á biðlista. Í millitíðinni má gera ráð fyrir að þau hafi fengið snemmtæka íhlutun og jafnvel einhverjar skimun á sínum vanda. Rúmlega helmingur beiðna til skólaþjónustu eru vegna einbeitingarerfiðleika (ADHD). Ég hef lagt fram í borgarstjórn nokkrar tillögur sem lúta að lausnum vegna langra biðlista og sem miða að því að gera þjónustuna skilvirkari og faglegri. Á fundi borgarstjórnar 17. mars stóð til að leggja fram tillögu um að um að velferðarráð leiti eftir að formgera samstarf skólaþjónustu og Þroska- og hegðunarstöðvar (ÞHS) í þeim tilgangi að vinna saman að málum barna þar sem aðkoma barnalæknis er nauðsynleg. Málum var öllum frestað nema einu á þessum fundi og mun ég því leggja þessa tillögu fram á næsta fundi borgarstjórnar. Með samstarfi sérfræðinga skólaþjónustu og Þroska- og hegðunarstöðvar myndu biðlistar styttast og börnin fá fyrr þá þjónustu sem þau þarfnast. Aðrar tillögur Flokks fólksins sem lagðar hafa verið fram eru:1. Að fjölga stöðugildum sálfræðinga2. Að færa aðsetur sálfræðinga frá þjónustumiðstöðvum inn í skólana3. Að börn skulu ávallt hafa biðlistalaust aðgengi að sérfræðingum4. Að skólasálfræðingar heyri undir skóla- og frístundaráð. Mikið álag er á sérfræðinga skólaþjónustunnar. Skortur er auk þess á úrræðum og bjargráðum fyrir tvítyngd börn í leik- og grunnskólum. Stöðugildi sálfræðinga í grunnskólum eru 15.60 á 15.000 börn sem þýðir gróflega að hver sálfræðingur/stöðugildi þjónustar 1000 börn. Dæmi eru um að einn sálfræðingur sinni þremur skólum. Í desember sl. lagði ég fram breytingatillögu við fjárhagsáætlun um að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs yrðu hækkaðar um 40,5 m.kr. til að ráða tvo sálfræðinga og einn talmeinafræðing til eins árs. Tillagan var felld. Árið 2018 lagði Flokkur fólksins fram tillögu um að hver skóli hefði sálfræðing a.m.k. í 40% starfshlutfalli með aðsetur í skólunum. Meirihlutinn í velferðarráði var á öðru máli og mat svo að „vænlegra til árangurs væri að halda áfram á þeirri braut að samþætta þjónustu sálfræðinga annarri þjónustu á vegum þjónustumiðstöðva í hverfum“ eins og sagði í kynningu sviðsins frá 17. ágúst 2018. Til þess að barn geti notið þjónustu sálfræðings sem best er mikilvægt að sálfræðingurinn hafi aðsetur í skólanum. Hér má vísa í skýrslu innri endurskoðunar sem kom út í júlí 2019 um rekstrarramma skóla. Í henni kom fram skýrt ákall um nærveru sálfræðinga í skólum m.a. til að létta á álagi kennara. Þjónustumiðstöðvar eru óþarfa milliliður í þessu tilliti og hamla aðgengi barna að sálfræðingum skóla. Þjónustumiðstöðvar mætti auk þess sameina. Veita snemmtæka íhlutun á kostnað greininga Skóla- og velferðaryfirvöld í borginni segja að með aukningu snemmtækrar íhlutunar sé minni þörf á greiningum og þar með aðkomu sálfræðinga. Snemmtæk íhlutun felur í sér að byrjað er að vinna strax með börnum sem eru ekki að fylgja jafnöldrum sínum í þroska. Í löndum sem við berum okkur saman við er minna um alls kyns greiningar en þar virðast börnum líða almennt betur eftir því sem kannanir sýna. Aukning á vanlíðan barna á Íslandi endurspeglast í niðurstöðum PISA og skýrslum landlæknisembættisins. Þrátt fyrir að nú sé snemmtæk íhlutun meginreglan er biðlisti til sérfræðinga mjög langur. Ástæðan kann að vera að börn þurfa að bíða of lengi eftir sérfræðiaðstoð hvort heldur greiningum eða viðtölum. Margir foreldrar fara með með börn sín til sjálfstætt starfandi sérfræðinga en það er ekki á færi allra. Vandi sumra barna verður einfaldlega ekki ljós nema með fyrirlögn kvarða og prófana. Börnin sem þola bið og þola ekki bið Vissulega er reynt að forgangsraða í skólaþjónustunni og málum sem metin eru að þoli ekki bið er sinnt fyrr. Ef mál barns er metið þannig að það þoli ekki bið má telja fullvíst að vandinn hefur einhvern aðdraganda, jafnvel langan. En hvað með börnin sem sögð eru þola bið. Mál sem þola bið þurfa iðulega að bíða lengi. Í svari frá velferðarsviði segir að flest mál hafni í 3. flokki en það er flokkur mála sem þolir „bið“ samkvæmt flokkunarmati. Þegar barn hefur beðið lengi eftir þjónustu hefur vandi þess oft undið upp á sig og getur á einni svipstundu orðið bráður vandi sem ekki hefði orðið hefði barnið fengið fullnægjandi aðstoð á fyrri stigum. Skóla- og velferðaryfirvöld borgarinnar tala um að skólaþjónusta sé samfelld, heildstæð og óháð staðsetningu. Í dag er þjónustan því miður fæst af þessu. Velta má upp þeirri spurningu hvort verið sé að framfylgja lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla? Höfundur er borgarfulltrúi Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kolbrún Baldursdóttir Skóla - og menntamál Reykjavík Mest lesið Halldór 17.05.2025 Halldór Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Kærleikurinn pikkaði í mig Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Torfærur, hossur og hristingar! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. skrifar Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Kærleikurinn pikkaði í mig Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Torfærur, hossur og hristingar! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson skrifar Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Um sjónarhorn og sannleika Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við? Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Málþóf og/eða lýðræði? Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar? Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð í beinni Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Atvinnufrelsi! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir skrifar Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar Sjá meira
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar
Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar
Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun