Íslandsbanki
6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Segir svör Bjarna yfirgengilega ósvífin og ófullnægjandi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur nú sent frá sér svör við spurningum um hæfi til Umboðsmanns alþingis. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir ekki standa stein yfir steini í svörum Bjarna. Innlent 14.6.2023 15:21
Spá talsverðri hjöðnun verðbólgu í júní Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni hjaðna hratt á næstu mánuðum og að ársverðbólga muni mælast 8,7 prósent í júnímánuði. Það yrði í fyrsta skipti í heilt ár þar sem ársverðbólgan fer undir níu prósent. Viðskipti innlent 14.6.2023 13:55
„Fýsilegasti kosturinn“ að Kvika selji TM til Íslandsbanka Jakobsson Capital telur líklegt að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku ljúki þannig að tryggingafélagið TM og Kvika eignastýring, sem greiningarfyrirtækið verðmetur á samtals 57 milljarða króna, verði seld til Íslandsbanka. Á meðan markaðsvirði Kviku er svona lágt þykir greinandanum sala eigna fýsilegasti kosturinn í stöðunni en eftir stæði mjög arðsamt lánasafn. Innherji 9.6.2023 12:16
Verðlagning íslenskra banka leitar í sama horf og norrænna Snörp gengislækkun á undanförnum mánuðum veldur því að markaðsvirði íslenskra banka er nú orðið sambærilegt og bókfært virði eiginfjár. Lækkunin helst í hendur við meðaltalsþróun hjá fimm stærstu bönkum á hinum Norðurlöndunum, að sögn sjóðstjóra, en það má rekja til þess að horfur séu á minni arðsemi, hægari vöxt í vaxtartekjum, meiri kostnaði og aukinnar áhættu í rekstri. Innherji 9.6.2023 08:29
Verðmat Íslandsbanka hækkar þrátt fyrir dekkri horfur í efnahagslífinu Verðmat Íslandsbanka hækkar um átta prósent þrátt fyrir að horfur í efnahagslífinu séu dekkri en við gerð síðasta verðmats. Vaxtamunur bankans hefur aukist en vaxtatekjur eru styrkasta stoð bankarekstrar og helsti virðishvati hans. Vaxtahækkanir Seðlabanka hafa almennt jákvæð áhrif á vaxtamun auk þess sem starfsmenn bankans hafa verið iðnir við að sækja handa honum fé á fjármagnsmarkaði, segir í verðmati. Innherji 27.5.2023 12:01
Erlendir fjárfestar ekki átt stærri hlut í Íslandsbanka frá skráningu Á sama tíma og Capital Group lauk við sölu á eftirstandandi hlutum sínum í Marel fyrr í þessum mánuði hefur bandaríski sjóðastýringarrisinn haldið áfram að stækka við stöðu sína í Íslandsbanka en samanlagður eignarhlutur erlendra sjóða í bankanum er nú farinn að nálgast tíu prósent. Samkvæmt nýju verðmati er bankinn metinn á liðlega 19 prósent yfir núverandi markaðsgengi. Innherji 26.5.2023 15:37
Íslenskir neytendur geti ekki leitað til íslenskra dómstóla Formaður Neytendasamtakanna segir sýknun Íslandsbanka í máli sem karlmaður höfðaði með aðkomu samtakanna gegn Íslandsbanka vera gífurleg vonbrigði. Dómnum verði áfrýjað til Landsréttar en hann bindur annars vonir við að Evrópskir dómstólar taki upp hanskann fyrir neytendur. Neytendur 25.5.2023 21:55
Grunnrekstur Kviku verið á pari eða umfram spár síðustu fjórðunga Hagnaður af grunnrekstri Kviku banka, sem undanskilur fjárfestingastarfsemi TM, var um 40 prósentum yfir áætlunum á fyrsta fjórðungi þessa árs og nam tæplega 1.200 milljónum króna. Að sögn forstjóra félagsins hefur grunnreksturinn gengið vel, sem endurspeglast í sífellt meiri umsvifum, en nýjar upplýsingar sem bankinn hefur birt sýna að hann hefur verið í samræmi við eða umfram spár frá því í ársbyrjun 2022. Innherji 22.5.2023 17:51
Útgáfan endurspeglar varkárni í tvísýnu efnahagsástandi Íslandsbanki ákvað að gefa út almenn skuldabréf í vikunni, þrátt fyrir óhagfellda þróun á skuldabréfamarkaði, í því skyni að byggja upp trú erlendra fjárfesta á bréfum íslenskra banka og til að sýna varkárni á tímum sem litast af viðvarandi markaðssveiflum. Innherji 12.5.2023 09:47
Umbi vill skýrari svör frá Bjarna um Íslandsbankasöluna Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra. Innlent 8.5.2023 11:24
Ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu við Kviku Hluti af stefnumótun Íslandsbanka sem samþykkt var í mars var að horfa til vaxtar. Skoða átti tækifæri á sviði trygginga og í eignastýringu. Bankastjóri Íslandsbanka sagði að Kvika ræki tryggingafélag og væri öflugt á sviði eignastýringar. „Það var því ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu,“ en Íslandsbanki á ekki tryggingafélag. Innherji 5.5.2023 16:30
Meta stöðu sameinaðs félags og skoða sameiningu nánar í kjölfarið Viðræður um samruna Íslandsbanka og Kviku eru umfangsmiklar. Bæði félög hafa ráðið fjárhagslega ráðgjafa og er unnið að því að meta samlegð af samruna bankanna og í senn meta stöðu sameinaðs félags á markaði. Viðskipti innlent 3.5.2023 20:45
Kristín tekur við fræðslustjórn og Elfa nýr deildarstjóri vörumerkis Íslandsbanka Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka. Greint var frá því í morgun að Björn Berg Gunnarsson, sem hefur starfað við bankann í sextán ár, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu, hafi látið af störfum. Viðskipti innlent 2.5.2023 14:45
Björn Berg hættir hjá Íslandsbanka Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka, er hættur störfum fyrir bankann. Hann hefur starfað fyrir bankann í sextán ár. Viðskipti innlent 2.5.2023 09:13
Rakel nýr regluvörður Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Rakel Ásgeirsdóttur í stöðu regluvarðar hjá bankanum. Hún tekur við starfinu af Rut Gunnarsdóttur sem tók við stöðunni árið 2015 og sagði starfinu lausu í mars. Viðskipti innlent 28.4.2023 13:56
Útlit fyrir bætta afkomu bankanna á grunni stóraukinna vaxtatekna Greinendur telja að rekstur Íslandsbanka muni batna verulega á milli ára á fyrsta ársfjórðunga og sama skapi er útlit fyrir að rekstur Arion banka muni ganga enn betur en fyrir ári. Vaxtatekjur Íslandsbanka hafa aukist mikið síðustu fjórðunga og spá greinendur að sá mikli vöxtur haldi áfram. Því er útlit fyrir að hagnaður stóru viðskiptabankanna tveggja sem skráðir eru í Kauphöll muni aukast á fyrsta ársfjórðungi og að arðsemi eiginfjár verði yfir markmiðum stjórnenda þeirra. Innherji 24.4.2023 16:56
Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skuldabréfafjárfesta Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna. Innherji 24.4.2023 10:45
Mastercard hafar Íslandsbanka fengu sjokk í morgun Villur hafa komið upp á Mastercard greiðslukortum Íslandsbanka eftir aurarnir voru felldir niður á laugardag. Villurnar eru hins vegar að koma fram núna í morgun. Dæmi eru um að færslur séu að hundraðfaldast, en einnig eru villur í hina áttina. Viðskipti innlent 17.4.2023 11:27
Hvetur hluthafa að tryggja að bankinn geti boðið „samkeppnishæf“ starfskjör Bankastjóri Landsbankans brýnir hluthafa, þar sem íslenska ríkið er fyrirferðarmest með 98 prósenta hlut, og bankaráð að „sjá til þess“ að bankinn sé samkeppnishæfur þegar kemur að kjörum starfsfólks. Forsvarsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) gagnrýndu hvernig staðið var að kjaraviðræðum við bankastarfsmenn fyrr í vetur á nýlega afstöðnum aðalfundum Íslandsbanka og Landsbankans og varaformaður samtakanna sagði mikilvægt að koma á fót kaupaukakerfi hjá Íslandsbanka. Innherji 15.4.2023 15:25
Engin viðlíka ákvæði um kveikjuviðburð í AT1-bréfum bankanna AT1-gerningar Arion banka og Íslandsbanka nytu ávallt forgangs fram yfir hlutafé ef á það myndi reyna en í skilmálum skuldabréfanna er ekki að finna sambærileg ákvæði í skilmálum sömu bréfa hjá Credit Suisse. Þetta kemur fram í svari frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands við fyrirspurn Innherja. Innherji 5.4.2023 11:02
Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára. Innherji 5.4.2023 07:01
Hildur ráðin forstöðumaður Eignastýringar Íslandsbanka Hildur Eiríksdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Eignastýringar Íslandsbanka, en hún hefur að undanförnu gegnt þar stöðu viðskiptastjóra. Viðskipti innlent 3.4.2023 09:22
Stilla upp ráðgjöfum fyrir viðræður um stærsta samruna Íslandssögunnar Rúmlega mánuði eftir að stjórn Íslandabanka féllst á beiðni Kviku um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu félaganna, sem yrði þá verðmætasti banki landsins, hafa bankarnir gengið frá ráðningum á helstu lögfræði- og fjármálaráðgjöfum sínum fyrir samrunaferlið. Vænta má þess að viðræðurnar, sem hafa farið nokkuð hægt af stað, verði tímafrekar og krefjandi, meðal annars vegna væntanlegra skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Innherji 28.3.2023 17:29
Spá 75 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 75 punkta í næstu viku þannig að þeir fari úr 6,5 prósentum í 7,25 prósent. Viðskipti innlent 15.3.2023 08:45
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
Í tilefni dagsins Það var hálf einmanalegt í hinu svokallaða „Félagi kvenna í Kauphöllinni“ í júní 2021 þegar bankinn var skráður á markað. Þó dró fljótt til tíðinda og á tæplega tveimur árum hafa bæst við þrjár öflugar konur í stöður forstjóra hjá skráðum félögum. Í dag, þegar við höldum upp á Alþjóðlegan baráttudag kvenna, er ágætt að minna sig á hvert við erum komin og hvert við stefnum. Skoðun 8.3.2023 13:31
Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi. Neytendur 4.3.2023 09:42
„Sjálfsagt að bregðast við fyrirspurn umboðsmanns“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun bregðast við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis vegna umdeildrar sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Þetta segir Bjarni í skriflegu svari til fréttastofu. Innlent 3.3.2023 17:19
Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. Innlent 3.3.2023 10:11
Segja söluna á ÍSB stjórnsýslulegan hroða sem verði að fást botn í Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur nú lokið umfjöllun sinni á skýrslu ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka (ÍSB). Nefndarálit minnihluta nefndarinnar er harðort og afgerandi. Innlent 28.2.2023 13:51