Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2026 23:15 Stefán Árni Pálsson ræddi við Atla Frey Haraldsson Katrínarson á göngum Menntaskólans í Kópavogi þar sem hann stundar nám ásamt því að slá í gegn í Bónusdeildinni. Sýn Sport Hinn sextán ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur slegið í gegn í Bónus deild karla í körfubolta í byrjun móts og hann var í viðtali í nýjasta Körfuboltakvöldi.
Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Bónus Körfuboltakvölds, heimsótti Atla í skólann en hann stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi. „Það var skemmtilegt að koma í Bónusdeildina og ég hef fengið alveg svakalega mikla athygli frá öllum. Þetta er geggjað,“ sagði Atli Freyr. Enginn táningur hefur skilað jafnmikii í fyrstu þremur leikjum sínum í sögu úrvalsdeildar karla. Meðaltölin hans í fyrstu þremur leikjunum eru 15,7 stig og 11,7 fráköst en hann er að skila 25,3 framlagsstigum í leik sem er það langhæsta af öllum leikmönnum Vals og það þriðja mesta af íslenskum leikmönnum deildarinnar til þessa. Sýna honum skilning Stefán ræddi við Atla á göngum skólans en strákurinn hélt upp á sextán ára afmæli sitt í apríl síðastliðnum. Klippa: Stefán Árni hitti Atla Frey í MK Atli er á afreksbraut í MK og kennarar sýna íþróttaiðkun hans skilning. Þennan sama dag var æfing hjá Valsliðinu í hádeginu og hann fékk fyrir vikið leyfi í tveimur kennslustundum. „Ég fæ leyfi til að sleppa þessum tímum en vinn það upp í staðinn seinna,“ sagði Atli. Mömmu og pabba fannst hann vera svo góð fyrirmynd Atli er búinn að æfa körfubolta í sjö ár og byrjaði í körfu hjá Pálmari Ragnarssyni. „Hann var fyrsti þjálfarinn minn og ástæðan fyrir því að ég byrjaði í körfubolta. Mömmu og pabba fannst hann vera svo góð fyrirmynd og hugsuðu: Setjum hann bara í körfuna. Hann er geggjaður hann Pálmar,“ sagði Atli. Var ekki að búast við þessu Atli er að stíga sín fyrstu skref í Bónusdeildinni í vetur en bjóst hann við að standa sig svona vel? „Nei, ég var ekki að búast við því að ég myndi skora tíu stig yfir höfuð í einhverjum af þessum leikjum. Ég var bara glaður að fá einhverjar mínútur og ég var alls ekki að búast við þessu,“ sagði Atli. Honum fannst hann ekki tilbúinn að spila með meistaraflokki síðasta vetur en eftir flott sumar með sextán ára landsliðinu þá fann hann strax að hann væri tilbúinn að spila með „gömlu körlunum“, eins og hann sagði í léttum tón. Ekki með egóið til að stefna á NBA Atli hefur sett stefnuna á það að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum og verða atvinnumaður í körfubolta í framhaldinu. „Spila í Evrópu eða Bandaríkjunum og vera atvinnumaður í körfubolta. Það er markmiðið,“ sagði Atli en er draumurinn NBA? „Já, auðvitað, en ég er ekki með það egó. Ég sé mig kannski í NBA en ég veit ekki með það,“ sagði Atli hreinskilinn. Atli ætlar fyrst að hjálpa Val að vinna Íslandsmeistaratitilinn. „Það er langtímamarkmiðið en svo langar mig bara að vinna alla leiki, gera mitt besta og gera það besta fyrir liðið,“ sagði Atli en það má sjá viðtalið við hann hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Handbolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn