Íslendingar erlendis

Dansandi HM-kallinn sem stelur senunni leik eftir leik
„Ég veit ekki alveg hvort ég sé búinn að slá í gegn en við erum allavega mætt á HM að styðja íslenska landsliðið, það er ekkert annað hægt að gera,“ segir Karl Brynjólfsson sem hefur slegið í gegn í stúkunni með einstökum danssporum á leikjum íslenska liðsins.

HM-maðurinn segir alla hljóta að skilja hitann
Sterkar tilfinningar HM-mannsins svokallaða yfir leikjum á stórmótum hafa vakið mikla athygli og kátínu landsmanna. Hann er nú staddur í Gautaborg og segir hvern einasta Íslending hljóta að skilja hitann.

Íslenskar systur taka þátt í undankeppni Eurovision í Danmörku
Íslensku systurnar Brynja Mary og Sara Victoria Sverrisdætur munu taka þátt í undankeppni danska ríkisútvarpsins fyrir Eurovision. Þær kalla sig Eyjaa og ber framlagið nafnið I Was Gonna Marry Him.

Gleði hjá okkar stuðningsfólki í Gautaborg: Myndir
Íslensku stuðningsmennirnir komu saman í Gautaborg í dag fyrir fyrsta leik Íslands í milliriðli sem er á móti Grænhöfðaeyjum á eftir.

Sjáðu stemninguna á nýja stuðsvæði Íslendinga í Gautaborg
Íslenska handboltalandsliðið hefur fært sig yfir frá Kristianstad til Gautaborgar og í dag komu stuðningsmenn liðsins saman á nýju stuðningsmannasvæði í Gautaborg.

Rappaði fyrir átrúnaðargoðið: „Ég verð bara eins og kleina í svona aðstæðum“
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir var viðmælandi í fyrsta þætti af glænýrri þáttaröð af Tónlistarmönnunum okkar sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gær.

Hamsturshjól eða hamingja: „Núna vakna ég glöð alla morgna“
„Ég viðurkenni alveg að það var skrýtin tilfinning að segja yfirmanninum mínum að ég væri að segja upp eftir 15 ár í góðu starfi. Með fjárhagslegt öryggi og öllu því sem fylgir. En starfið var hætt að gefa mér lífsfyllingu. Mér fannst ég vera orðin eins og hamstur í hamsturshjólinu sem bara hljóp og hljóp,“ segir Jónína Fjeldsted sem nú rekur kaffihúsið Lekaff í Kaupmannahöfn.

Skin og skúrir í Kristianstad - myndasyrpa
Það var mikill tilfinningarússibandi sem átti sér stað í kringum leik Íslands og Ungverjalands á heimsmeistaramótinu í handbolta karla sem spilaður var í Kristianstad í Svíþjóð í gærkvöldi. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fangaði nokkur frábær augnablik sem sjá má í myndaspyrpunni sem fylgir þessari frétt.

Stuðningsfólk íslenska liðsins hefur tekið yfir Kristianstad: Myndir
Það er mikil gleði meðal íslensku stuðningsmannanna sem hafa fjölmennt til Svíþjóðar til að hvetja strákana okkar áfram á móti Ungverjum í kvöld.

Fékk 180 þúsund króna rafmagnsreikning: „Þetta eru bara tölurnar sem við erum að eiga við hérna“
Hækkandi rafmagnsverð knýr áfram verðbólguna í Svíþjóð, sem hefur ekki verið meiri í rúma þrjá áratugi. Íslendingur sem búsettur er í Svíþjóð segist finna vel fyrir hækkunum en hann fékk reikning upp á 180 þúsund krónur fyrir síðasta mánuð. Margir hafi skrúfað niður hitann og sitji heima í úlpu og ullarsokkum. Íslendingar megi hrósa happi að vera ekki á evrópskum orkumarkaði.

Myndir frá mögnuðu kvöldi í Kristianstad
Íslendingar hófu heimsmeistaramótið í handbolta 2023 af fítonskrafti og unnu Portúgali í fyrsta leik sínum, 30-26.

Tryllt stemning í Íslendingapartýi fyrir leikinn
Það styttist óðum í fyrsta leik Íslands á HM í handbolta sem fram fer í kvöld. Stefán Árni Pálsson tók púlsinn á stemningunni hjá íslenskum stuðningsmönnum er þeir hituðu upp fyrir leikinn í Kristianstad.

Myndasyrpa: Bumbukallar, börn og fótboltakempur í banastuði
Spennan eykst með hverri mínútunni sem líður á meðal íslenskra stuðningsmanna í Kristianstad í Svíþjóð. Ísland leikur sinn fyrsta leik á HM í kvöld gegn Portúgal.

Selur fornfrægt leikhús í Stokkhólmi til bandaríska risans Live Entertainment
Athafnamaðurinn Kristján Ra Kristjánsson, sem hefur rekið og verið eigandi að leikhúsinu Göta Lejon í Stokkhólmi allt frá árinu 2008, hefur gengið frá sölu á fyrirtækinu til dótturfélags í eigu bandaríska risans Live Nation Entertainment sem er skráð í kauphöllina í New York. Ætla má að kaupverðið sé yfir einn milljarður króna.

Chanel Björk segir skilið við Kastljósið og lætur drauminn rætast
Fjölmiðlakonan Chanel Björk stendur á tímamótum um þessar mundir. Blaðamaður ræddi við Chanel en hún er nýflutt til London sem hana hefur lengi dreymt um að gera.

Þórir Hergeirsson þjálfari ársins í Noregi
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, var í gærkvöldi valinn þjálfari ársins á Idrettsgallaen, uppgjörshátíð norskra íþrótta.

Elísabet Jökulsdóttir fékk nýra
Skáldkonan Elísabet Jökulsdóttir er komin með nýtt nýra. Í byrjun síðasta árs var hún komin á lokastig nýrnabilunar.

Settist í sófann hjá Jimmy Fallon: „Þetta fer algjörlega í minningabankann“
Thelma Sigurhansdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að setjast í sófa þáttastjórnandans Jimmy Fallon á meðan á auglýsingahléi við upptökur á kvöldþáttunum vinsælu „The Tonight Show with Jimmy Fallon“ stóð í desember síðastliðnum. Hún segir Fallon mikinn karakter en indælan.

Inga Þórsdóttir hlýtur virt alþjóðleg verðlaun á sviði næringarfræði
Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði og fyrrverandi forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, hlaut heiðursverðlaun Alþjóðasamtaka næringarfræði og vísinda (e. International Union of Nutritional Sciences) í desember síðastliðnum.

Hrafnhildur flogin út í lokakeppni Miss Universe
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Miss Universe Iceland, hélt síðastliðinn miðvikudag vestur um haf til að taka þátt í aðalkeppni Miss Universe.

Ólafur Arnalds og Sandrayati giftu sig á Balí
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds og söngkonan Sandrayati gengu í hjónaband á milli jóla og nýárs. Brúðkaupið fór fram 26. desember á Balí, en Sandrayati er alin upp á eyjunni fögru. Hjónin eiga einstaklega fallegt hús á Balí og eyða miklum tíma þar.

Ætla ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafa borist
Einungis ófullnægjandi gögn hafa borist ríkislögreglustjóra frá lögreglunni í dóminíska lýðveldinu í máli Hrafnhildar Lilju sem myrt var fyrir fjórtán árum. Þetta segir yfirlögregluþjónn sem ætlar ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafi borist.

Íslendingar á Tenerife með magakveisu eftir hangikjötsveislu
Nokkur fjöldi Íslendinga á Tenerife veiktist illa af magapest í kjölfar hangikjötsveislu á jóladag sem haldin var á íslenska veitingastaðnum Nostalgíu. Ekki er ljóst hvort um matareitrun sé að ræða en eigandi staðarins telur að um 40% gesta hafi veikst.

Norðmenn furða sig á Tenerife-æði Íslendinga
Vísi hefur borist fyrirspurn frá norskum blaðamanni sem spyr hvort þetta fái staðist, að 2,4 prósent þjóðarinnar dvelji á Tenerife yfir jólin? Getur það verið?

Leiðindaveður á Tenerife yfir jólin
Íslendingar hafa aldrei verið fleiri á Tenerife yfir jól og áramót. Áætlað er að þeir séu milli átta og níu þúsund talsins eða rétt tæplega helmingi fleiri en voru í fyrra.

Frægir framleiða Thor´s skyr: Væntanlega í Walmart fljótlega á næsta ári
„Við vorum á fundi með forstjóra Walmart um daginn. Auðvitað hefði ég ekkert fengið þann fund sísvona nema fyrir Terry Crews en mér þykir mjög líklegt að Thor‘s skyrið verði komið í um 4500 verslanir fljótlega á næsta ári,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck einn af stofnendum Thor's skyr sem framleitt er í Bandaríkjunum.

Rigning og rok á Tene: „Við verðum bara inni“
Gul viðvörun er í gildi á Kanaríeyjum og rigning og rok hefur verið á Tenerife síðan í gær. Fjölmargir Íslendingar eyða jólunum á eyjaklasanum en láta veðrið ekki eyðileggja stemninguna.

„Það er allt í einu orðið gæðastimpill að vera Íslendingur“
„Ég er farin að finna núna hvað Íslendingatengslin eru mikil í kvikmyndageiranum erlendis. Þar sem það er orðið þekkt að það að ráða Íslending í vinnu þýðir að þú ert að fá góðan starfskraft. Sem skilar alltaf einverju nýju,“ segir Árni Filippuson kvikmyndatökumaður með meiru.

Með mál Söndru Sigrúnar á borðinu en geti ekki beitt sér sem stendur
Yfirvöld hér á landi eru meðvituð um mál Söndru Sigrúnar Fenton. Dómsmálaráðuneytið getur hins vegar ekki beitt sér í máli hennar fyrr en lögð hefur verið inn umsókn til þar til bærra yfirvalda í Virginíuríki í Bandaríkjunum.

Áhugamálið varð að atvinnu: Frá Egilsstöðum um alla Evrópu
Stefán Númi Stefánsson er eini atvinnumaður Íslands í amerískum fótbolta og leikur með stórliði Potsdam Royals í Þýskalandi. Sem ungur drengur á Egilsstöðum óraði hann ekki fyrir því að komast á þann stað sem hann er á í dag.