Landbúnaður
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 42 ›
MS ætlar í miklar framkvæmdir á Selfossi og á Akureyri Mjólkursamsalan (MS) ætlar að ráðast í nokkra milljarða króna framkvæmdir á Akureyri og á Selfossi á nýju ári með byggingu nýrra húsa og endurnýjun véla og tækja á stöðunum. Afkoma Mjólkursamsölunnar var með allra besta móti á nýliðnu ári. Innlent 8.1.2022 14:00
Nautin í Hvammi svolgra í sig bjór alla daga Nautin á bænum Hvammi í Ölfusi njóta lífsins á hverjum degi því þau eru alin upp á bjór og hrati af bjór, sem þau eru sólgin í. Eftir að þeim er slátrað verður til kjöt með bjórkeim, sem margir kunna vel að meta. Innlent 31.12.2021 07:35
Íslensk ull slær í gegn í vinsælum útivistarfatnaði Íslensk ull er heldur betur að slá í gegn á Íslandi og í útlöndum, ekki bara í lopapeysum því nú er hún líka komin í vinsælan útivistarfatnað til einangrunar. Talsmaður sauðfjárbænda segir bændur mjög stolta af vinsældum ullarinnar. Innlent 28.12.2021 13:07
Á blóðslóð Fjölmiðlarnir, sem fara með fjórða valdið, eru komnir alvarlega út af sporinu. Undanfarið hafa þeir gerst ginningarfífl nokkurra lýðskrumara (Ingu Sæland og félaga) og öfgamanna (útlendra dýraverndarsamtaka og innlendra nettrölla). Skoðun 27.12.2021 14:01
Borða svið á Selfossi á aðfangadagskvöld Reykdal Magnússon á Selfossi slær ekki slöku við því hann, sem er að verða 87 ára gengur 10 kílómetra á dag ganginn í blokkinni, þar sem hann býr. Hann notar peninga í göngunni og svo koma líka svið og rófustappa við sögu þegar Reykdal er annars vegar. Innlent 22.12.2021 20:13
Fjör í fjárhúsum landsins Það er mikið líf og fjör í fjárhúsum landsins á þessum tíma árs því nú stendur fengitíminn yfir. Passað er vel upp á að velja bestu hrútana á ærnar þannig að það komi falleg og vel gerð lömb í heiminn næsta vor. Innlent 21.12.2021 20:05
Veiruskita herjar á kýr Veiruskita í kúm hefur geisað á Eyjafjarðarsvæðinu að undanförnu og virðist nú vera farin að stinga sér niður í Þingeyjarsýslum og á Héraði. Biðlað er til bænda að huga að sóttvörnum til að forðast að fá smitið inn á kúabú. Innlent 20.12.2021 14:01
„Undir niðri ríkir sorg í samfélagi bænda“ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, var viðstaddur fundi bænda í Njálsbúð í gær þar sem fjallað var um umfjöllun um blóðmerahald. Málið hefur verið til mikillar umfjöllunar undanfarið og margir gagnrýnt blóðbændur. Innlent 15.12.2021 18:47
Skipar starfshóp til að fjalla um blóðmerahald Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Innlent 9.12.2021 14:45
Ekkert spurt um aðbúnað dýra í útlöndum Formaður Bændasamtakanna segir íslenska neytendur ekki hafa hugmynd um hvernig farið er með þau dýr í útlöndum og við hvernig aðbúnað þau lifa þegar kjöt af gripunum eru flutt inn til Íslands. Hann krefst þess að sömu kröfur verði gerðar til innfluttra matvæla eins og gert er til innlendrar matvælaframleiðslu þegar aðbúnaðarreglugerð dýra er annars vegar. Innlent 5.12.2021 13:16
Höfnuðu nýju svínabúi í Árborg vegna fjölda andmæla Bæjarstjórn Árborgar hefur samþykkt tillögu skipulags- og byggingarnefndar sveitarfélagsins, sem lagði til að fallið yrði frá áformum um deiliskipulag fyrir svínabú á jörðinni Hólar. Þá lagði nefndin einnig til að fallið yrði frá hugmyndum um að skilgreina iðnaðarsvæði á umræddum stað. Innlent 3.12.2021 08:13
Mæðgin úr Bitrufirði sitja þrjá tíma á dag í skólabíl Strákurinn og mamma hans á bænum Þambárvöllum við Bitrufjörð gætu verið þau sem búa við lengstan skólaakstur allra á Íslandi um þessar mundir. Þau verja þremur klukkustundum á dag í skólabílnum. Innlent 2.12.2021 22:22
Fær engar bætur eftir sauðburðarslys á bæ frænku sinnar Kona, sem slasaðist er kind rakst utan í hana með þeim afleiðingum að hún datt aftur fyrir sig og slasaðist á öxl, fær hvorki bætur úr hönd frænku sinnar né VÍS. Innlent 29.11.2021 19:03
Svandís er spennt fyrir nýju ráðuneyti en mun sakna þess gamla Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra og nýr ráðherra matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar, kveðst spennt fyrir nýju ráðuneyti og sér mörg tækifæri á borði. Innlent 28.11.2021 20:53
Svandís og Guðmundur fara í nýja ráðherrastóla Eins og búist var við verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Innlent 28.11.2021 11:59
Mjólkin hækkar í verði Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að hækka lágmarksverð sem kúabændur fá fyrir mjólk. Þá hækkar einnig heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Viðskipti innlent 26.11.2021 23:48
Velferð dýra skal alltaf ráða för Á lögbýlinu Lágafelli hefur verið stundaður blóðbúskapur frá árinu 1985, samhliða ræktun hrossa. Óhætt er að segja að sú mynd sem dregin var upp af rekstrinum í umfjöllun fjölmiðla í vikunni, er ekki í neinu samræmi við það sem almennt gengur og gerist í þessum geira. Skoðun 26.11.2021 10:31
Fordæma illa meðferð á blóðmerum Alþjóðasamtök íslenska hestsins (FEIF) fordæma illa meðferð á hryssum sem blóð er tekið úr á íslenskum bæjum. Þau segjast styðja að íslensk stjórnvöld stöðvi blóðmerahald alfarið hér á landi. Innlent 25.11.2021 12:29
Sauðfjárbændur gleðjast yfir Hrútaskránni – „Jólabókin í ár“ segir formaðurinn Sauðfjárbændur landsins ráða sér vart yfir kæti þessa dagana því Hrútaskráin er komin út. Í skránni er yfirlit yfir bestu kynbótahrúta landsins á Sauðfjársæðingarstöðvunum á Vesturlandi og Suðurlandi. „Jólabókin í ár“, segir formaður Félags sauðfjárbænda. Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá. Innlent 20.11.2021 13:16
Handprjónarar bæta hag íslenskra sauðfjárbænda Sauðfjárbændur gleðjast núna yfir hærra ullarverði en íslenskt handprjónaband hefur slegið í gegn meðal prjónafólks, bæði hérlendis og erlendis. Ullarvinnslufyrirtækið Ístex hefur ekki undan við framleiðsluna. Innlent 18.11.2021 22:44
Ríkið sýknað af milljarða kröfum vegna útboðs tollkvóta Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum heildverslunarinnar Ásbjörns Ólafssonar ehf., um endurgreiðslu útboðsgjalds vegna innflutnings á landbúnaðarvörum. Hefði fyrirtækið haft betur hefði ríkið þurft að endurgreiða útboðsgjöld að upphæð yfir fjórir milljarðar króna sem innheimt hafa verið af innflutningsfyrirtækjum frá því árið 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Félags atvinnurekenda. Innherji 18.11.2021 15:27
Nýtt hestakyn á Íslandi? Hestamenn klóra sér nú í höfðinu vegna hesta, sem hafa verið í einangrun í stóði á bæ í Landbrot í Skaftárhreppi í sextíu ár. Hestarnir hafa aldrei komið inn í hesthús, hófarnir hafa aldrei verið klipptir, tennur ekki raspaðar og þeir hafa ekki fengið ormalyf. Hestarnir eru þó ótrúlega vel á sig komnir en allir mjög litlir og er jafnvel talað um nýtt hestakyn í því sambandi. Innlent 17.11.2021 20:10
Yfirvöld víða á tánum vegna tilvika fuglaflensu Alþjóðlegu dýraheilbrigðisstofnuninni (OIE) hefur borist nokkur fjöldi tilkynninga síðustu daga um alvarlega fuglaflensu í Evrópu og Asíu. Þá hefur 21 maður greinst með undirtýpu H5N6 í Kína á þessu ári, fleiri en allt árið 2020. Erlent 16.11.2021 08:59
Blóm allan sólarhringinn á Selfossi Nýr blómasjálfsali í nýja miðbænum á Selfossi hefur slegið í gegn, ekki síst hjá karlmönnum, sem fara í sjálfsalann á kvöldin og jafnvel á nóttunni um helgar til að kaupa blóm handa elskunni sinni. Innlent 15.11.2021 20:15
Háskóli Íslands og landbúnaður Háskólaprófessorinn Þórólfur Matthíasson (ÞM) er sérlegur áhugamaður um landbúnað eins og glöggt kom fram í þættinum Á Sprengisandi um helgina. Því miður gat ég ekki þegið boð um að sitja þáttinn með honum þar sem ég var búin að lofa mér annað. Skoðun 15.11.2021 17:33
Hinn langþráði stjórnarsáttmáli Mörg stór og mikilvæg mál bíða þess að á þeim verði tekið af djörfung og dug. Vonandi taka hinir þjóðlegu íhaldsflokkarnir sem nú vinna að stjórnarsáttmála sig á og gerast framfarasinnaðir og alþjóðlegir því mikið liggur við fyrir þjóðina. Hér eru nokkur mál sem spennandi er að sjá hvort og þá hvernig tekið verður á í sáttmálanum. Skoðun 13.11.2021 16:00
Enginn þarf að vera svangur á Vesturlandi um helgina Íbúar á Vesturlandi þurfa ekki að óttast matarleysi um helgina því þar verður farand – matarmarkaður í dag og á morgun þar sem matarbíll hlaðin vörum framleiddum á Vesturlandi fer um svæðið. Framtakið kemur í veg fyrir hópmyndun á einum stað. Innlent 13.11.2021 12:31
Merkileg dráttarvél gefin á Hvanneyri Ein merkilegasta dráttarvél landsins er nú komin á Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri en það var Kristján Helgi Bjartmarsson, sem er mikill eljumaður og fagurkerri, sem færði safninu vélina að gjöf. Vélin, sem er gangfær er snúið í gang. Innlent 9.11.2021 20:30
Bændur munu taka DNA sýni úr öllum kvígum Kúabændur munu þurfa að taka DNA sýni úr öllum kvígum frá næstu áramótum vegna erfðamengisúrvals í nautgriparækt. Tilgangur verkefnisins er að fá betri mjólkurkýr fyrr í fjósin hjá bændum. Í dag eru um fimm hundruð kúabú í landinu og hefur þeim fækkað mikið síðustu ár. Innlent 4.11.2021 20:16
Fundu erfðagalla í sæðingahrúti sem veldur gulri fitu Í ljós hefur komið að sæðingahrútur sem átti í kringum 600 afkvæmi í vor hafi verið með erfðagalla sem gerir það að verkum að kjötfitan verður gul. Ekki er um sjúkdóm að ræða né er hættulegt að borða kjötið en það þykir ólystugt. Innlent 3.11.2021 08:07