Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Í vætunni á sunnudagskvöld í Vestmannaeyjum runnu fjölmargir Þjóðhátíðargestir niður brekkuna í Herjólfsdal í drullusvaðinu sem myndaðist þar. Sumir renndu sér niður viljandi og slösuðu jafnvel grunlausa gesti sem skemmtu sér í brekkunni. Innlent 9. ágúst 2024 19:07
Aðkomumaður ráfaði inn í hús á Þjóðhátíð og lýsti eftir húsráðanda „Sonur minn var á Þjóðhátíð í Eyjum og hann langar til að finna út í hvaða hús hann fór óvart í og sofnaði í sófa (minnir hann) því hann er miður sín og langar til að afsaka sig innilega.“ Lífið 7. ágúst 2024 17:14
„Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola, segir nauðgunarbrandara Patriks Atlasonar skýrt merki um að við eigum enn langt í land með að uppræta nauðgunarmenningu og kynferðisofbeldi. Hún segir mikilvægt að huga að því sem maður segir, og ekki ýta undir nauðgunarmenningu. Innlent 7. ágúst 2024 12:20
Heimilið mitt var botnlausa tjaldið fyrir manninn sem nauðgaði mér Fyrir nokkrum árum síðan var ég spurð: „Hvað er málið með þessa hátíð í Eyjum þar sem konum er nauðgað og fólk talar um þetta sem eðlilegan hlut? Ég hef heyrt þetta kallað nauðgunarhátíð!“ Skoðun 7. ágúst 2024 11:00
Margir urðu brekkunni að bráð Þrátt fyrir ansi slæmt veður skemmtu langflestir sér vel á Þjóðhátíð í ár að sögn formanns Þjóðhátíðarnefndar. Fimmtán þúsund manns voru í Vestmannaeyjum um helgina og lenti brekkan í Herjólfsdal illa í því sunnudagskvöldið. Innlent 6. ágúst 2024 11:52
Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Um 500 manns gistu Herjólfshöll í Vestmannaeyjum en ákveðið var að skjóta yfir Þjóðhátíðargesti þaki í höllinni vegna þess hve mörg tjöld urðu fyrir tjóni vegna veðursins. Jónas Guðbjörn Jónasson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir vel hafa gengið og að gestir hafi gengið vel um. Innlent 5. ágúst 2024 16:47
Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Um fimm hundruð manns leituðu skjóls í Herjólfshöll í nótt vegna veðurs. Annars fór nóttin að mestu vel fram á Þjóðhátíð í Eyjum að sögn lögreglustjóra. Innlent 5. ágúst 2024 13:53
Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Karl Gauti Hjaltason lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir að lögregla hafi enn ekki fengið kynferðisbrot á borð til sín. Sömu sögu er að segja um alvarlegar líkamsárásir og minna er um fíkniefni. Innlent 4. ágúst 2024 19:37
Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Ansi óhugnanlegt myndband frá tendrun brennunnar í Herjólfsdal í gærnótt hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Sökum mikils vinds og óhagstæðrar vindáttar hrundi brennan ofan í dalinn í stað þess að hrynja inn á sig með þeim afleiðingum að bretti þutu á fleygiferð niður brekkuna. Dagur Arnarsson, handboltamaður og sjálfboðaliði á Þjóðhátíð, þurfti að hlaupa fyrir lífi sínu undan brettunum með tilþrifum. Innlent 4. ágúst 2024 16:52
Helgi er fundinn heill á húfi Helgi Ingimar Þórðarson sem hefur verið saknað frá því snemma í morgun er fundinn heill á húfi. Umfangsmikil leit að honum hefur staðið yfir í dag og hefur lögreglan og björgunarsveitarmenn komið að henni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og björgunarbáturinn Þór sömuleiðis ræstur út. Innlent 4. ágúst 2024 14:38
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til aðstoðar við leitina að hinum tvítuga Helga Ingimar Þórðarsyni í Vestmannaeyjum sem hefur verið saknað síðan snemma í morgun. Innlent 4. ágúst 2024 13:25
Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Leit stendur yfir í Vestmannaeyjum að Helga Ingimar Þórðarsyni en hans hefur verið saknað síðan snemma í morgun. Björgunarbáturinn Þór hefur verið ræstur út til leitar á sjó. Innlent 4. ágúst 2024 11:50
Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Töluverður fjöldi þjóðhátíðargesta fékk inn í Herjólfshöllinni í Vestmannaeyjum í nótt vegna hvassviðrisins þar. Formaður þjóðhátíðarnefndar segist ekki eiga von á að veðrið riðli dagskránni á stærsta degi þjóðhátíðar þrátt fyrir að gul viðvörun taki gildi undir kvöld. Innlent 4. ágúst 2024 10:59
Lögregla lýsir eftir Helga Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Helga Ingimar Þórðarsyni. Helgi er 21 árs gamall, 192 cm á hæð og sást síðast klæddur í svartar buxur, svarta hettupeysu og dökkgrænan bomberjakka. Innlent 4. ágúst 2024 10:10
Kom úr sundi að brotnu tjaldinu „Við vorum í sundi og komum bara að þessu þegar allt var komið í sundur,“ segir Friðrik Dúi Þórólfsson 21 árs þjóðhátíðargestur. Hann er á meðal þeirra fjölmörgu sem veðrið í Eyjum hefur leikið grátt. Innlent 3. ágúst 2024 19:35
Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Stöllurnar Kristín María Snorradóttir og Karen Lind Helgadóttir sitja uppi með ónýtt tjald og engan næturstað eftir fyrstu nóttina á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hávaðarok hefur verið í eyjum í morgun og valdið tjóni á tjaldsvæðunum. Innlent 3. ágúst 2024 15:51
Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Engar meiriháttar líkamsárásir eða kynferðisbrot hafa komið upp á þjóðhátið í Vestmannaeyjum til þessa, að sögn lögreglustjórans þar. Fimm sitja í fangaklefa eftir nóttina fyrir ölvun og ólæti. Fólk er byrjað að hæla niður tjöld fyrir hvassviðri sem á að ganga yfir Eyjar í dag. Innlent 3. ágúst 2024 11:08
Íslendingar öllu veðri vanir Jónas Guðbjörn Jónsson formaður þjóðhátíðarnefndar, segir að útlitið sé mjög gott fyrir komandi helgi. Það sé þegar mikil stemning í bænum og í kvöld og um helgina verði stemningin komin í dalinn. Hann segir að við séum Íslendingar og öllu vön, og því skipti ekki öllu máli hvernig veðrið er. Innlent 2. ágúst 2024 23:35
Forsetahjónin mætt til Eyja Halla Tómasdóttir forseti lét sig ekki vanta á fyrsta degi Þjóðhátíðar í Eyjum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók á móti forsetahjónunum ásamt fulltrúum þjóðhátíðarnefndar og leiddi þau um svæðið í Herjólfsdal. Lífið 2. ágúst 2024 19:19
Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Húkkaraballið fór fram í gærkvöldi í Vestmannaeyjum og gekk kvöldið prýðilega vel fyrir utan minniháttar slagsmál og óspektir að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns í Vestmannaeyjum. Innlent 2. ágúst 2024 16:43
Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Framkvæmdastjóri Herjólfs segir mikinn vind og töluverða ölduhæð á morgun ekki hafa áhrif á ferðir Herjólfs fyrir Þjóðhátíð. Gripið hefur verið til sérstakra ráðstafanna á hátíðinni til að bregðast við veðurspánni en formaður Þjóðhátíðarnefndar segir Íslendinga sem betur fer vera öllu vanir. Innlent 2. ágúst 2024 12:03
Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 150 ára afmæli Þjóðhátíð í Eyjum hefur verið fastur liður í menningarlífi Vestmannaeyinga síðan árið 1874. Þessi árlega hátíð, sem á rætur sínar að rekja til 1000 ára afmæli Íslands, er nú einn af helstu menningarviðburðum landsins og þúsundir Íslendingar sækja ár hvert. Skoðun 2. ágúst 2024 07:31
Verið spennt í marga mánuði og nú er loksins komið að þessu Jóhanna Guðrún stígur á svið í kvöld á fyrsta degi Þjóðhátíðar í Eyjum. Þar mun hún frumflytja Þjóðhátíðarlagið í ár, Töfra, ásamt Fjallabræðrum. Jóhanna segist ekki geta beðið en hún mun hafa nóg að gera í Eyjum í ár enda mun hún stíga oftar á svið en bara föstudagskvöldið. Lífið 2. ágúst 2024 07:00
Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Undirbúningur viðbragðsaðila fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er í fullum gangi. Lögregla hefur aukið viðbúnað í Dalnum til að bregðast við tiltölulega nýtilkominni eggvopnamenningu hér á landi. Innlent 1. ágúst 2024 11:42
Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Lögreglan í Vestmannaeyjum er eins klár og hægt er fyrir þjóðhátíð en hún fær þó mikla aðstoð lögreglumanna og fíkniefnahunda af fasta landinu. Sjálfboðaliðar eru líka klárir fyrir þjóðhátíð. Innlent 31. júlí 2024 20:05
Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Bæjarráð Vestamannaeyja samþykkti í gær tillögu að reglum um styrki til efnilegs íþróttafólks í Vestmannaeyjum vegna landsliðsverkefna á vegum Íslands. Bæjarráð skorar á ríkið og ráðherra málaflokksins að styðja betur við afreksstarf á Íslandi og sameiginleg landslið okkar. Innlent 31. júlí 2024 12:15
Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Starfsfólk Herjólfs hefur ekki þurft að kvarta undan verkefnaleysi í sumar því það er nóg að gera alla daga við að flytja fólk á milli lands og eyja, ekki síst ferðamenn. Skipið fer átta ferðir á dag og er meira og minna alltaf fullt af fólki og bílum. Innlent 27. júlí 2024 20:05
Reiknar með 15 þúsund manns í Herjólfsdal Spenna og eftirvænting fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vex og vex með hverjum deginum en formaður þjóðhátíðarnefndar reiknar með 15 þúsund manns í dalinn. Bekkjabílar verða á sínum stað og efnt verður til búningakeppni í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar. Innlent 21. júlí 2024 20:03
Glæsilegt biblíusafn í Vestmannaeyjum Eitt merkilegasta biblíusafn landsins er varðveitt vel og vandlega í eldtraustri geymslu í Vestmannaeyjum en mun þó líta dagsins ljós fyrir almenning í haust. Innlent 21. júlí 2024 16:04
97 ára og gerir við dvergastyttur og málar þær í Eyjum Eitt það allra skemmtilegasta sem Palli í Mörk eins og hann er alltaf kallaður í Vestmannaeyjum gerir er að mála og laga dvergastyttur fyrir Eyjamenn en Palli er rétt að verða 98 ára. Og Palli segist að sjálfsögðu ætla á þjóðhátíð eins og hann hefur alltaf gert. Innlent 19. júlí 2024 20:25