
Kveður Marel og tekur við sem fjármála- og rekstrarstjóri Eyris Invest
Halla Guðrún Jónsdóttir hefur tekið við starfi fjármála- og rekstrarstjóra hjá Eyri Invest hf. Hún kemur til Eyris frá Marel.
Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.
Halla Guðrún Jónsdóttir hefur tekið við starfi fjármála- og rekstrarstjóra hjá Eyri Invest hf. Hún kemur til Eyris frá Marel.
Heimamarkaðurinn hefur sannað sig sem öflugur bakhjarl íslenskra vaxtarfyrirtækja og stökkpallur fyrir þau á alþjóðlega markaði. Hefur þar munað miklu um stuðning íslensku lífeyrissjóðanna og getu þeirra til að fjárfesta í hlutabréfum til langs tíma. Við þurfum að halda í þetta og gera enn betur.
Ný greiningardeild Arion banka segir að horfur séu á meiri hagvexti í ár en áður var talið og að áfram muni „blása byrlega í segl þjóðarskútunnar“.
Greiningardeild Arion banka spáir kröftugum 5,1 prósents hagvexti í ár sem helgast einkum af mikilli fólksfjölgun og hraðari uppsveiflu ferðaþjónustunnar en gert var ráð fyrir í síðustu spá. Stýrivextir Seðlabankans eiga eftir að hækka enn meira á þessu ári vegna þrálátrar verðbólgu og þeir verða tiltölulega háir á spátímabilinu sem nær út árið 2025.
Verðmatsgengi Icelandair samkvæmt greiningu Jakobsson Capital stendur í 3,07 krónum á hlut og er ríflega 60 prósentum hærra en markaðsgengi hlutabréfa flugfélagsins í dag. Flugfélag hefur breyst í „mjög álitlegt arðgreiðslufélag“ miðað við núverandi markaðsgengi.
Formaður ADHD samtakana gagnrýnir að ADHD-lyf séu bönnuð meðal flugliða Icelandair og segir það fornaldarhugsunarhátt. Málið hafi áhrif á fjölda fólks sem nú þurfi að velja á milli starfs síns eða nauðsynlegra lyfja. Starfsfólk getur átt von á að vera sent í tilviljanarkenndar skimanir.
Íslandsbanki ákvað að gefa út almenn skuldabréf í vikunni, þrátt fyrir óhagfellda þróun á skuldabréfamarkaði, í því skyni að byggja upp trú erlendra fjárfesta á bréfum íslenskra banka og til að sýna varkárni á tímum sem litast af viðvarandi markaðssveiflum.
Icelandair tilkynnti áhöfnum sínum að notkun á ADHD-lyfjum sé alfarið bönnuð í dag. Þeir starfsmenn sem eru á slíkum lyfjum þurfa að fá flughæfi sitt metið hjá lækni. Tímafrekt getur verið að vera metinn hæfur aftur eftir notkun lyfjanna.
Ölgerðin, stærsti drykkjarvöruframleiðandi landsins, var í hópi þeirra fjárfesta sem sýndu áhuga á að kaupa fyrirtækjasamstæðuna Veritas fyrr árinu. Óvissa í efnahagslífinu, einkum vegna hækkandi vaxta, þýddi hins vegar að talsverðu munaði í væntingum mögulegra kaupenda og seljenda um verðmiða á félaginu og var söluferlið því sett ótímabundið á ís.
Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures í eitt og hálft ár, mun taka við sem forstjóri Heimkaupa, samkvæmt heimildum Innherja. Hennar verkefni verður að byggja upp nýtt afl á smásölumarkaði en rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.
Arion banki hefur kynnt nýja sparnaðarleið á verðtryggðum sparnaði þar sem binding er styttur úr þremur árum í níutíu daga.
Starfslok Helga S. Gunnarssonar sem forstjóra fasteignafélagsins Regins hf. kostuðu fyrirtækið 48 milljónir króna. Leigutekjur félagsins jukust um sextán prósent á fyrsta fjórðungi ársins borið saman við sama tímabil í fyrra.
Verðmatsgengi Haga er 14 prósentum yfir markaðsgengi þrátt fyrir nokkra lækkun á matinu sem gert var eftir að verslunarsamsteypan birti síðasta uppgjör. Hlutabréfagreinandi segir að miðað við fréttaflutning mætta halda smásölufyrirtæki væru að svíngræða á tímum verðbólgu en uppgjör sýni að svo sé ekki.
Sænska flugvélaleigan Rockton hefur samið um kaup á allt að fjörutíu rafmagnsflugvélum af gerðinni ES-30 frá sænska flugvélaframleiðandanum Heart Aerospace. Með samningnum breytti Rocton fyrri viljayfirlýsingu í skuldbindandi kaupsamning um tuttugu flugvélar og um kauprétt á tuttugu flugvélum til viðbótar.
Arion banki hefur ákveðið að að lækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum sem bera breytilega vexti frá og með deginum í dag um 0,15 prósent og verða því 2,79 prósent. Þetta á við um lán sem þegar hafa verið veitt og ný útlán.
Eftir að feðgarnir Árni Oddur og Þórður Magnússon hafa farið með tögl og hagldir í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel sem hefur löngum verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni, allt frá stofnun um síðustu aldamót er fjárfestingafélagið nú á tímamótum með uppstokkun í stjórn og brotthvarfi Þórðar sem stjórnarformanns til meira en tuttugu ára. Umdeild fjármögnun Eyris undir lok síðasta árs þegar styrkja þurfti fjárhagsstöðuna reyndist afdrifarík og jók mjög stuðning hluthafa við sjónarmið minni fjárfesta í eigendahópnum, stundum nefndir „órólega deildin“, um að tímabært væri að gera gagngerar breytingar á starfsemi stærsta fjárfestingafélags landsins.
Metsætanýting var hjá Icelandair í apríl en heildarfjöldi farþega var um 296 þúsund og um 22 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra þegar farþegar voru 242 þúsund. Sætaframboð í apríl jókst um 17 prósent miðað við fyrra ár.
Farþegum PLAY fjölgaði mikið í apríl og voru 102.499 talsins, samanborið við 86.661 farþega í mars. Sætanýtingin nam 80,8 prósentum. Hér er um að ræða verulegan vöxt frá sama tíma í fyrra, þegar farþegar voru 36.669 og sætanýtingin 72,4%. Farþegafjöldinn sem næst þrefaldaðist á milli ára. Svo segir í tilkynningu frá Play.
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra.
Guðný Helga Herbertsdóttir og Haraldur Þórðarson verða bæði áfram forstjórar eftir sameiningu Vátryggingafélags Íslands (VÍS) og Fossa.
Hluti af stefnumótun Íslandsbanka sem samþykkt var í mars var að horfa til vaxtar. Skoða átti tækifæri á sviði trygginga og í eignastýringu. Bankastjóri Íslandsbanka sagði að Kvika ræki tryggingafélag og væri öflugt á sviði eignastýringar. „Það var því ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu,“ en Íslandsbanki á ekki tryggingafélag.
Ellý Ármannsdóttir, listakona og hóptímakennari hjá Reebok Fitness, mun starfa sem flugfreyja hjá Icelandair í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Jón Brynjar Ólafsson hefur verið ráðinn til Sýnar og mun hann leiða fjármál sem er deild á sviði fjármála og stefnumótunar. Deildin nær yfir uppgjör og reikningsskil, hagdeild og innheimtu og mun Jón Brynjar vera forstöðumaður þeirrar deildar.
Verð á hlutabréfum Marel lækkaði í gær um 17,56 prósent og fór markaðsvirði félagsins úr 452 milljörðum niður í 381 milljarð. Eignarhlutur Eyrir Invest, stærsta hluthafinn í Marel, rýrnaði um 19,5 milljörða króna vegna lækkunarinnar. Hlutur tveggja stærsta eigenda Eyris, feðganna Þórðar Magnússonar og Árna Odds Þórðarsonar rýrnaði um 7,5 milljarða vegna lækkana gærdagsins.
Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 7,5 prósent, sem er þriðja mesta lækkun vísitölunnar frá fjármálahruni og endurspeglar vonbrigði markaðarins með uppgjör Marels og Festi. Fjárfestar óttast að uppgjörin, sem litast einkum af áhrifum hækkandi vaxta og verðbólgu, kunni að vera vísbending um það sem er í vændum hjá öðrum skráðum félögum.
Úrvalsvísitalan ætti að ná fyrri hæðum – um 3.400 stig – við áramót ef þróun hlutabréfamarkaðarins verður með svipuðum hætti og í kringum síðustu aldamót. Miðað við reynsluna þá tók það vísitöluna tvö og hálft ár að ná fyrri hæðum eftir umtalsverðar lækkanir. Að meðaltali er markaðurinn vanmetinn um 20 prósent, miðað við hlutabréfagreiningar Jakobsson Capital.
Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til Verona á Ítalíu og Fuerteventura á Kanaríeyjum.
Viðræður um samruna Íslandsbanka og Kviku eru umfangsmiklar. Bæði félög hafa ráðið fjárhagslega ráðgjafa og er unnið að því að meta samlegð af samruna bankanna og í senn meta stöðu sameinaðs félags á markaði.
Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka. Greint var frá því í morgun að Björn Berg Gunnarsson, sem hefur starfað við bankann í sextán ár, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu, hafi látið af störfum.
Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka, er hættur störfum fyrir bankann. Hann hefur starfað fyrir bankann í sextán ár.