Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. október 2026 07:43 Obar eða Toblerone? Mondelēz eigandi svissneska súkkulaðisins Toblerone ætlar í mál við Catherine's Original breskan vegan súkkulaðiframleiðanda. Ástæðan er formið á súkkulaði breska framleiðandans sem Mondelēz segir að hafi stolið sögufrægu útliti Toblerone súkkulaðsins.
Í umfjöllun breska blaðsins Guardian segir að Mondelēz hafi lagt fram gögn vegna málsins fyrri dómi í London. Fyrirtækið sakar Catherine's Originals um að brjóta gegn vörumerkjarétti með O'bar súkkulaðilengju sem brotin er í bita sem standa uppréttir líkt og Toblerone bitar. Með þessu sé breska fyrirtækið að „villa á sér heimildir,“ líkt og það er orðað í umfjöllun miðilsins. Fram kemur að Catherine's Originals hafi verið stofnað af Catherine Dodd nokkurri árið 2021 þegar hún var unglingur. Um er að ræða lítið fyrirtæki sem framleiðir súkkulaði í Walberton í Sussex á Englandi og selur það á mörkuðum, á netinu eða í áskrift. Súkkulaðistykkin eru tvöhundruð grömm og kosta 9,20 pund í mjólkur- eða dökkri útgáfu, rúmar 1500 krónur og allt að 10,55 pund í framandi bragðtegundum á borð við graskerskrydd eða kanilsnúð, rúmar 1800 krónur. Venjulegt Toblerone kostar í Bretlandi 2,5 pund eða því sem nemur rúmum fjögurhundruð krónum. Guardian eftir eftir Catherine Dodd að súkkulaðistöngin sé í laginu eins og O og það endurspegli orðið Originals (hið upprunalega). Hún segist standa staðfastlega á bakvið vöruna og ímyndina sem fyrirtækinu hafi tekist að skapa. „Við erum algjörlega ósammála kröfunni vegna O'bar og vinnum með lögfræðingum okkar að því að verja okkur. Satt best að segja er þetta frekar ógnvekjandi fyrir lítið fyrirtæki sem við höfum lagt svo mikla alúð og vinnu í að byggja upp. En þó við séum lítið fyrirtæki þá þýðir það ekki að við séum hrædd við að standa vörð um það sem við höfum skapað.“ Í yfirlýsingu frá Mondelēz International, sem á einnig súkkulaðivörimerkið Cadbury og Côte D’Or-kaffið auk Toblerone segir að lögun Toblerone súkkulaðsins sé ein þekktasta og sérstæðasta vöruhönnun Bretlands sem og alls heimsins. Hönnunin hafi verið aðalmerki vörumerkisins frá árinu 1929. Fyrirtækið segir að sér beri skylda til að verja sitt hugverk, það hafi gert tilraunir til að leysa málið með Catherine's Originals undanfarna mánuði án þess að fara í hart en það hafi ekki tekist. Fram kemur í umfjöllun Guardian að breska lágvöruverslunarkeðjan Poundland hafi einnig brennt sig á því að framleiða súkkulaði með líkindum við Toblerone. Fyrirtækið hafi árið 2017 neyðst til þess að fresta útgáfu á Twin Peaks súkkulaðistykki, sem var með tvo upprétta hnúða í stað stakra tinda Toblerone, eftir að Mondelēz setti fyrirtækinu afarkosti. Súkkulaðiði hafi að endingu gefið súkkulaðið út með umbúðum í öðrum lit og öðruvísi útliti.
Bretland Sælgæti Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Sjá meira