Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Samúel Karl Ólason og Telma Tómasson skrifa 18. september 2026 07:34 Seðlabanki Japans hækkaði stýrivexti og er vonast til þess að með því megi fá japanska fjárfesta til að líta meira til sinna heimaslóða við fjárfestingar. AP/Shuji Kajiyama Seðlabanki Japans hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 1 prósenti í 1,25 prósent. Slík hækkun hefur ekki verið gerð í 31 ár en þetta er gert til að mæta efnahagslegum þrýstingi heimafyrir og gáfu forsvarsmenn bankans til kynna að frekari hækkanir væru líklegar.
Samkvæmt frétt BBC stendur Japan frammi fyrir ýmsum efnahagslegum áskorunum, þar á meðal viðvarandi veiku jeni, hækkandi verðlagi og fækkun vinnandi fólks. Helstu seðlabankar heims hafa farið sömu leið að undanförnu, ekki síst í ljósi þess að stríðsátök Bandaríkjamanna við Íran og hækkun olíuverðs hefur ýtt undir verðbólgu. Á miðvikudag hækkaði til að mynda bandaríski Seðlabankinn viðmiðunarvexti sína í fyrsta sinn í meira en þrjú ár og Seðlabanki Evrópu hækkaði einnig vexti fyrr í þessum mánuði. Í frétt Wall Street Journal segir að Japanir eigi gífurlega mikið af erlendum hlutabréfum og verðbréfum. Í heildina séu þetta um fimm billjónir dala (tólf núll) en um helmingur þessara bréfa eru skráð í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn Seðlabankans í Japan vonast til þess að með því að hækka vexti, verði hægt að fá meira af þessum peningum aftur heim og auka fjárfestingar þar, í stað þess að peningarnir fari í að halda uppi hlutabréfaverði í Bandaríkjunum og annarsstaðar í heiminum.
Japan Mest lesið Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira