Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið ákærður fyrir morðið á Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmanni Íhaldsflokksins. Kerry var fyrst handtekinn þann 11. júlí í tengslum við málið en fer fyrir Westminster-héraðsdóm í Bretlandi á þriðjudaginn. Erlent 20.7.2026 23:23
Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Breski spunameistarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Alastair Campbell, sem var lengi vel talsmaður Tony Blair, er staddur á Íslandi til að taka viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Campbell er feginn að komast undan hitanum á Bretlandi í kuldann og rigninguna á Íslandi. Lífið 20.7.2026 15:43
Vill færa Bretum von á nýjan leik Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik. Erlent 20.7.2026 13:18
Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, stefnir á að halda áfram að þjálfa liðið fram yfir Evrópumótið 2028. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir skiptingarnar sínar þegar England reyndi að halda forystunni á móti Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 16. júlí 2026 15:16
„Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ „Þetta er sennilega dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum, sem er merkilegt í ljósi þess að þessar þjóðir hafa sjaldan mæst og hafa ekki leikið landsleik núna í rúm tuttugu ár,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og fótboltaáhugamaður, um undanúrslitaviðureign Englands og Argentínu sem fram fer í kvöld. Fótbolti 15. júlí 2026 14:45
Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Kobbie Mainoo, leikmaður enska landsliðsins, hefur boðið Tyler Adams, sem greindist með heilabilun, á leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Adams eyddi nær öllu sparifénu sínu til þess að komast til Atlanta. Fótbolti 15. júlí 2026 14:15
Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Breska ofurfyrirsætan, leikkonan og tónlistarkonan Cara Delevingne prýðir nýja forsíðu sumarblaðs tímaritsins Playboy. Þar situr hún fyrir með sígarettu, í latex korsiletti og ber að neðan. Lífið 15. júlí 2026 14:03
Haaland hunsaði Holland Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri. Lífið 15. júlí 2026 11:29
„Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni. Fótbolti 15. júlí 2026 11:00
Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Eldri unglingar í Bretlandi þurfa innan tíðar, ef boðuð löggjöf um samfélagsmiðla nær fram að ganga, að sætta sig við að komast ekki á samfélagsmiðla sína eftir miðnættið. Erlent 15. júlí 2026 07:50
Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Breska hryðjuverkalögreglan segir morðið á stjórnmálakonunni Ann Widdecombe hafa verið markvissa árás. 28 ára gamall maður er í haldi lögreglu. Erlent 14. júlí 2026 16:57
David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast. Lífið 14. júlí 2026 16:50
Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu. Erlent 13. júlí 2026 14:40
Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk Hryðjuverkalögreglan í Bretlandi hefur tekið við rannsókn á andláti Ann Widdecombe sem talin hafa verið myrt. Þessi breyting varð eftir að „nýjar upplýsingar og sönnunargögn“ litu dagsins ljós. Erlent 13. júlí 2026 14:02
Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Kryddpían Mel C var næstum því rekin úr stúlknabandinu Spice Girls eftir orðaskak við samstarfskonu sína Viktoríu Beckham. Þetta gerðist eftir BRIT verðlaunahátíðina fyrir tuttugu árum síðan en Mel C rifjaði atvikið upp í hlaðvarpi á dögunum. Tónlist 13. júlí 2026 13:31
Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. Erlent 13. júlí 2026 09:47
„Mikil saga og mikill sársauki“ Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Fótbolti 12. júlí 2026 15:16
Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra 28 ára karlmaður er í haldi lögreglunnar grunaður um að hafa myrt Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmann. Hún fannst látin á heimili sínu á fimmtudag. Erlent 12. júlí 2026 09:53
Var látin í sólarhring áður en hún fannst Lögreglan í Devonskíri í Bretlandi telur Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmann, hafa verið látna í sólarhring áður en hún fannst. 26 ára karlmaður var handtekinn í tengslum við málið en honum sleppt úr haldi og er hann ekki talinn tengjast andlátinu. Erlent 11. júlí 2026 16:44
Dermot Murnaghan er látinn Dermot Murnaghan, fyrrverandi sjónvarpsþulur og sjónvarpskynnir Sky News, er látinn 68 ára að aldri. Erlent 11. júlí 2026 13:10
Súrrealískt að spila golf með Trump Harry Kane, framherji og fyrirliði enska landsliðsins, staðfesti á blaðamannafundi í gær að hann hafi spilað golf með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann lýsir því sem heldur „súrrelísrki upplifun“. Fótbolti 11. júlí 2026 12:17
Manninum sleppt úr haldi Manninum sem handtekinn var í gær grunaður um tengsl við morðið á bresku stjórnmálakonunni Ann Widdecombe hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Erlent 11. júlí 2026 11:31
Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Harry Bretaprins og Meghan Markle, hertogahjónin af Sussex, og börn þeirra Archie prins og Lillíbet prinsessa hafa heimsótt Karl Bretakonung og Kamillu drottningu. Lífið 10. júlí 2026 18:13
Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Lögreglan í Bretlandi hefur handtekið karlmann á þrítugsaldri í bænum Newton Abbot í Devonskíri, sem grunaður er í tengslum við morðrannsókn á Ann Widdecombe, breskri stjórnmálakonu. Erlent 10. júlí 2026 17:38