Erlent

Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sally Rooney skrifaði meðal annars Normal People sem varð geysivinsæl.
Sally Rooney skrifaði meðal annars Normal People sem varð geysivinsæl. Getty

Írski metsöluhöfundurinn Sally Rooney hefur tekið bækurnar sínar úr sölu í Bretlandi. Hún styrkir samtök sem styðja Palestínu en eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bretlandi.

Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fyrir verk hennar. 

„Það er óverjandi staða fyrir útgefanda að selja verk rithöfundar án þess að geta greitt honum tekjurnar. Af þeim sökum, og í fullu samráði við Sally, höfum við tekið þá ákvörðun að við getum ekki lengur boðið verk hennar til sölu í Bretlandi á neinu formi. Við erum áfram stoltur útgefandi hennar merkilegu ritverka, sem við munum halda áfram að selja á öðrum markaðssvæðum,“ segir í yfirlýsingunni.

Umrædd samtök heita Palestine Action en þau eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök af breskum yfirvöldum. Í ágúst árið 2025 tilkynnti Rooney að hún ætlaði að gefa allan hagnað af sölu bóka sinna til félagsins. 

Meðal þess sem fulltrúar samtakanna hafa gert, samkvæmt umfjöllun NYT, er að eyðileggja aðstöðu tengda ísraelskum vopnaframleiðanda og brotist inn í stærstu flugherstöð Bretlands þar sem þeir spreyjuðu málningu á tvær flugvélar. Samtökin standa einnig að friðsamlegum mótmælum. Að minnsta kosti þrjú þúsund hafa verið handteknir fyrir tengsl sín við Palestine Action.

Í kjölfar þess forðaðist hún að ferðast til Bretlands og mætti meðal annars ekki á Sky Art-verðlaunahátíðina eftir að hafa hlotið verðlaunin. Alex Bowler, ritstjóri Rooney, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. 

Hefði rithöfundurinn ferðast til landsins gæti hún verið handtekin á þeim forsendum að hún sé hryðjuverkamaður þar sem hún hafi stutt fjárhagslega við hryðjuverkasamtök.

Rooney hefur gefið út fjöldann allan af vinsælum bókmenntum á við Eins og fólk er flest (Normal People), Okkar á milli (Conversations With Friends) og Millileik (Intermezzo).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×