

EM í fótbolta 2024
Evrópumótið í fótbolta karla fer fram í Þýskalandi dagana 14. júní til 14. júlí 2024.
Leikirnir

Íhugar að skipta um landslið
Harvey Barnes veltir því nú fyrir sér að skipta um landslið og spila fyrir hönd Skotlands. Barnes hefur leikið einn landsleik fyrir England en skoskur bakgrunnur hans opnar á möguleika á skiptum.

„Strákar, vitið þið hvað þið eruð að gera þarna?"
Kári Árnason fór yfir varnarleik íslenska liðsins eftir tapið gegn Lúxemborg í undankeppni EM. Hann sagði að honum hefði fundist liðið taka skref í síðasta glugga en í gær hefði spilamennskan verið döpur.

Farið að hitna verulega undir Hansi Flick eftir skell gegn Japan
Þýskaland fékk skell gegn Japan í dag 1-4 í æfingaleik. Þýskaland heldur Evrópumótið næsta sumar og tekur því ekki þátt í undankeppni EM.

Ítalía missteig sig gegn Norður Makedóníu | Kósóvó og Sviss gerðu dramatískt jafntefli
Jafntefli var niðurstaðan í síðustu þremur leikjum kvöldsins í undankeppni EM.

Kyle Walker skoraði í jafntefli gegn Úkraínu | Svíþjóð valtaði yfir Eistland
Úkraína og England skildu jöfn þegar liðin mættust í undankeppni EM í dag. England er í efsta sæti C-riðlis með 13 stig.

Belgar með nauman sigur
Belgía vann nauman sigur á Aserbaisjan þegar liðin mættust í undankeppni EM í dag. Belgar eru efstir í F-riðli ásamt Austurríki.

„Þessir strákar verða að stíga upp og gerast leiðtogar í liðinu“
Fyrrum landsliðsmennirnir Lárus Orri Sigurðsson og Kári Árnason kalla eftir að menn stígi upp innan íslenska landsliðsins og taki á sig leiðtogahlutverk. Þeir eiga erfitt með að benda á leiðtoga innan leikmannahópsins í dag.

„Við verðum að gera betur“
Hákon Arnar Haraldsson skoraði mark Íslands í tapinu gegn Lúxemborg í gær. Hann sagði liðið hafa fengið færi til að skora fleiri mörk í leiknum.

Segir að Henderson yrði leiður ef stuðningsmenn sneru baki við honum
Búist er við að Jordan Henderson verði í byrjunarliði Englands sem mætir Úkraínu í undankeppni EM í dag. Gareth Southgate vonast til að stuðningsmenn standi við bakið á liðinu í leiknum.

Brynjar Ingi kallaður inn í landsliðshópinn
Brynjar Ingi Bjarnason hefur verið kallaður inn í landsliðshóp karla í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Bosníu og Hersegóvínu á mánudagskvöldið.

Åge Hareide: Getum ekki gefið svona mörg færi á okkur
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir lærisveina sína hafa gert of mörg mistök og gefið of mörg færi á sér þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Lúxemborg á útivelli í undankeppni EM 2024 í kvöld.

Sjáðu mörkin þegar Lúxemborg fór illa með strákana okkar
Íslenska landsliðið í knattspyrnu fór fýluferð til Lúxemborg því liðið beið lægri hlut gegn heimamönnum í undankeppni EM í kvöld.

Umfjöllun: Lúxemborg - Ísland 3-1 | Martröð í Lúxemborg
Íslenska karlalandsliðið mátti þola ósigur á útivelli gegn Lúxemborg í kvöld. Liðið var slappt bæði andlega og líkamlega. Ísland lenti snemma undir og komst aldrei í takt við eitt eða neitt og úr varð martraðakenndur leikur sem fellur í gleymskunnar dá sem fyrst því það er leikur á mánudag. Lúxemborg vann 3-1 og hefði getað unnið stærra. Það er mikið að hugsa um fyrir Åge Hareide þessa dagana.

„Ég rétti upp höndina og tek ábyrgð á þessu“
Guðlaugur Victor Pálsson tók fulla ábyrgð eftir tap Íslands gegn Lúxemborg í kvöld. Hann sagði frammistöðuna ekki hafa verið boðlega og sagði að liðið yrði af læra af mistökum sínum.

Einkunnir leikmanna íslenska liðsins: Hörður Björgvin átti slakt kvöld
Frammistaða íslensku leikmannanna í tapinu gegn Lúxemborg ytra í undankeppni EM 2024 í kvöld var ekki upp á marga fiska. Varnarlína íslenska liðsins var hvað eftir annað grátt leikin, of mikið bil var á milli línanna hjá liðinu og ekki tókst að skapa nógu mörg færi.

Alfreð: Ég býst við því að gera betur í svona færum
Alfreð Finnbogason leiddi sóknarlínu Íslands í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Lúxemborg 3-1 á útivelli í undankeppni EM 2024. Hann var að sjálfsögðu svekktur með ýmsa hluti í leiknum og þá sérstaklega það að leikmenn Íslands hafi ekki verið skarpir í báðum teigum leiksins.

Portúgalir og Skotar í góðri stöðu eftir leiki kvöldsins
Sex leikir fóru fram í kvöld í undankeppni EM í Þýskalandi á næsta ári. Skotar unnu öruggan sigur á Kýpur og þá vann Portúgal útisigur gegn Slóvakíu í riðli Íslands.

„Við gefum þeim mörk og erum ekki að klára færin okkar“
Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði íslenska landsliðsins var svekktur eftir tapið gegn Lúxemborg í kvöld. Hann sagði liðið hafa gert mistök á báðum endum vallarins.

Íslenska þjóðin á X-inu: „Svo sem alltaf verið meiri handboltaþjóð“
Íslenskir fótboltaáhugamenn létu skoðun sína á frammistöðu íslenska karlandsliðins í leik liðsins gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024 á samfélagsmiðlinum X-inu.

Sextán ára unglingur skoraði í risasigri Spánverja
Spánverjar voru í miklu stuði í kvöld þegar þeir mættu Georgíu á útivelli í undankeppni Evrópumótsins á næsta ári. Spænska liðið vann 7-1 sigur og fer upp í annað sæti A-riðils.

Byrjunarlið Íslands: Þrjár breytingar síðan gegn Portúgal
Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Lúxemborg nú á eftir síðan í síðasta leik gegn Portúgal. Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson fá tækifæri í byrjunarliðinu.

Reknir af tökustað í Lúx þegar hitað var upp fyrir leikinn
Ísland mætir Lúxemborg í undankeppni EM í kvöld á Stade de Luxemborg vellinum. Leikurinn hefst klukkan 18:45. Leikurinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 18:00.

Væri gaman að setja afmælisþrennu gegn Lúxemborg
„Þetta er mjög mikilvægur leikur, við megum ekki tapa og þurfum að sækja þrjú stig ef við ætlum að taka þátt í þessum riðli, það er bara svoleiðis,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði íslenska landsliðsins en liðið mætir Lúxemborg ytra í kvöld og það í undankeppni EM.

Vatnspásur í hitanum í Lúxemborg
Mikill hiti er í Lúxemborg þar sem Ísland mætir heimamönnum í undankeppni EM 2024 í fótbolta karla í kvöld.

„Ætlum að sýna þeim hversu góðir í fótbolta við erum“
„Við erum búnir að eiga flotta æfingaviku í Þýskalandi og núna æft einu sinni hér í Lúxemborg. Á þessum tíma höfum við náð að fara yfir fullt af hlutum, góðum hlutum sem við gerðum í síðasta glugga og svo hlutir sem við þurfum að gera á móti Lúxemborg,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemborg sem fer fram ytra klukkan 18:45 í kvöld.

„Munum setja í fimmta gír og sækja á þá alveg frá byrjun“
„Vonandi er þetta hópur sem getur keppt á hæsta stigi fyrir Íslands hönd,“ segir Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, eftir æfingu landsliðsins í Lúxemborg í gær.

Stoðsendingaþrenna hjá Eriksen og Lewandowski slökkti í Færeyingum
Allir leikir dagsins í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer sumarið 2024 er nú lokið. Hinn danski Christian Eriksen, leikmaður Manchester United, lagði upp þrjú mörk í 4-0 sigri Danmerkur á San Marínó. Þá skoraði Robert Lewandowski, framherji Barcelona bæði mörk Póllands í 2-0 sigri á Færeyjum.

„Væri ekki hér ef ég hefði ekki trú á því að við gætum farið á annað stórmót“
Jóhann Berg Guðmundsson, starfandi landsliðsfyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í fjarveru Arons Einar Gunnarssonar, hefur tröllatrú á því að íslenska landsliðinu takist að tryggja sig inn á annað stórmót.

Mikilvægi leiksins kýrskýrt í huga Åge: „Verðum að mæta til leiks á fullu gasi“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, sat fyrir svörum á blaðamannafundi liðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024 á morgun. Íslenska landsliðið verður að sækja þrjú stig til þess að halda möguleikum sínum í riðlinum á floti.

Nóg komið af nefndum: Jóhann Berg ræddi við Katrínu í morgun
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, lagði það til við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands í morgun að Ísland þyrfti á þjóðarleikvangi, líkt og liðið spilar á í Lúxemborg á morgun, að halda hér heima.