Fótbolti

Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Como tolleruðu Cesc Fàbregas eftir að þeir tryggðu sér sæti í Meistaradeildinni í vor.
Leikmenn Como tolleruðu Cesc Fàbregas eftir að þeir tryggðu sér sæti í Meistaradeildinni í vor. EPA/DAVIDE CASENTINI

Cesc Fàbregas, þjálfari ítalska liðsins Como, er mjög spenntur fyrir því tækifæri að fá að taka á móti Manchester United í leik riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta annað kvöld.

Fyrrverandi stjarna Arsenal tjáði sig um Manchester United eftir að hafa stýrt liði sínu til 3-1 sigurs gegn Fiorentina í ítölsku deildinni.

„Þetta er frábært lið. Fyrir aðeins þremur árum, þegar við vorum í Seríu B, hefði verið óhugsandi að Manchester United kæmi á Sinigaglia-leikvanginn – en á miðvikudag mun einmitt það gerast. Fyrir okkur er þetta draumur sem rætist; við ætlum að grípa tækifærið,“ sagði Cesc Fàbregas.

Como hefur aldrei tekið þátt í Evrópukeppni í 119 ára sögu félagsins.

Félagið frá Langbarðalandi – sem hefur tvisvar orðið gjaldþrota á síðustu tveimur áratugum – lék í D-deildinni árið 2019. Það sneri aftur í efstu deild Ítalíu í maí 2024 eftir að hafa komist upp um deild í þriðja sinn á sex tímabilum.

„Það er stórkostlegt að undirbúa sig fyrir svona dásamlega leiki en við megum aldrei gleyma því að Sería A er það mikilvægasta fyrir okkur,“ sagði Fàbregas.

„Fyrir okkur er hver dagur mikilvægt skref í okkar þróun. Við erum nýtt félag – ekki hvað sögu okkar varðar, heldur vegna þess að við byrjuðum frá grunni fyrir þremur árum. Þess vegna verðum við að fara varlega í því hvernig við tökumst á við mjög margar aðstæður.“

Ítalska smáliðið vann fyrsta leik sinn í Meistaradeildinni gegn Leipzig á heimavelli, 4-1, en tapaði 3-2 gegn Feyenoord á útivelli í síðustu viku.

Fàbregas viðurkennir að fyrsta tímabil félagsins í Meistaradeildinni verði lærdómsríkt fyrir alla.

„Við erum komnir hingað í Meistaradeildina fimm árum á undan áætlun. Meistaradeildin er einstök gjöf sem kom í kjölfar stórkostlegs tímabils í fyrra. Meistaradeildin er erfiðasta keppni sem til er – á hærra stigi en jafnvel heimsmeistaramótið eða Evrópumótið,“ sagði Fàbregas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×