Úkraína
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 78 ›
Breskir blaðamenn náðu því á myndband þegar Rússar réðust á þá Mesti fjöldaflótti í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar er skollinn á. Hundruð þúsunda reyna að flýja Maríupol en Rússar eru sagðir hafa virt vopnahlé þar að vettugi. 56 eru komnir til Íslands frá Úkraínu. Erlent 5.3.2022 20:03
Blinken og Kuleba hittust í Póllandi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Úkraínu, Antony Blinken og Dmytro Kuleba áttu fund á landamærum Úkraínu og Póllands í dag. Kuleba sagði það merki um veikleika að NATO neiti að setja á flugbann yfir Úkraínu. Erlent 5.3.2022 19:30
Viðræður Rússa og Úkraínumanna halda áfram á mánudag Þriðji fundur Rússa og Úkraínumanna um mögulegan frið á svæðinu verður haldinn á mánudaginn. Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, biðlaði eftir frekari aðstoð Bandaríkjanna á fundi með öldungadeildaþingmönnum í dag. Erlent 5.3.2022 17:46
Segir Vesturlönd haga sér eins og glæpamenn Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, sagði við fjölmiðla í dag að Vesturlönd séu að haga sér eins og glæpamenn með því að beita Rússa efnahagslegum refsiaðgerðum vegna innrásarinnar en ráðamenn í Rússlandi hafa reyndar viljað kalla hana „sérstaka hernaðaraðgerð.“ Erlent 5.3.2022 13:57
Óvíst hvort Rússar virði vopnahlé á allri útgönguleiðinni Unnið er að því að rýma borgirnar Maríupol og Volnovakha. Samið hefur verið um vopnahlé á ríflega tvö hundruð kílómetra leið frá borgunum til Zaporizhzhia í norðri en borgarráð Maríupol efast um að Rússar efni samninginn að fullu. Erlent 5.3.2022 10:36
Vaktin: Skelfilegt ástand í Mariupol Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu á tíunda degi innrásar Rússa í landið. Rússneski herinn hefur samþykkt að leggja tímabundið niður vopn sín til að almennir borgarar geti flúið borgirnar Maríupol og Volnovakha. Erlent 5.3.2022 07:25
Börn taka umræðuna inn á sig Stríðið í Úkraínu hvílir þungt á sumum börnum hér á landi en sum reyna að hugsa sem minnst um það. Sálfræðingur segir að foreldrar geti með sinni hegðun haft áhrif á hversu mikið börnin taki stríðið og afleiðingarnar af því inn á sig. Innlent 4.3.2022 19:59
Skorar sérstaklega á eigendur fjölmiðla á Íslandi Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, skorar á alla sem vettlingi geta valdið að leggja söfnuninni lið en alveg sérstaklega eigendur fjölmiðla á Íslandi. Innlent 4.3.2022 16:40
Vill að loftvarnaflautur ómi í öllum borgum Evrópu Íbúa Kænugarðs líður eins og hún hafi ferðast aftur í tímann. Hún segir að fáir hafi gert ráð fyrir allsherjar hernaðarinnrás Rússa inn í Úkraínu og margir íbúar hafi jafnvel sýnt gáleysi. Erlent 4.3.2022 15:13
Opna dyrnar fyrir flóttafólki frá Úkraínu Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að virkja tiltekna grein Útlendingalaganna sem opnar á móttöku flóttafólks frá Úkraínu án sérstakra ferla. Forsætisráðherra segir um tímabundið leyfi að ræða en aðstæður í Evrópu séu einstakar um þessar mundir. Innlent 4.3.2022 14:42
Á fjórða hundrað almennra borgara fallið í átökunum en líklega mun fleiri Að minnsta kosti 331 almennur borgari hefur fallið og 675 særst í innrás Rússa í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna sem telur þó að talan sé mun hærri. Erlent 4.3.2022 14:35
Flugbann ekki í kortunum hjá NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagins ætla ekki að setja á flugbann yfir Úkraínu. Þetta tilkynnti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, nú fyrir skömmu en málið var til umræðu eftir ítrekuð áköll ráðamanna í Úkraínu. Erlent 4.3.2022 13:31
Bjóða flóttafólki og aðstandendum í kvöldmat í Guðrúnartúni Matsalur auglýsingastofunnar Pipar/TBWA við Guðrúnartún verður mögulegur griðastaður flóttafólks frá Úkraínu og aðstandenda þeirra á kvöldverðartíma á virkum dögum næstu vikurnar. Innlent 4.3.2022 13:17
Geislavirkni mælist ekki meiri í Zaporizhzhia Mælingar við Zaporizhizhia, kjarnorkuverið í suðurhluta Úkraínu, benda til að geislavirk efni hafi ekki lekið út í umhverfið eftir að eldur brann þar í nótt. Þetta segir Rafael Grossi yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA). Erlent 4.3.2022 12:47
Rússar loka á erlenda fjölmiðla Yfirvöld í Rússlandi hafa lokað vefsíðum BBC, Voice of America, Radio Free Europe, Deutsche Welle og Meduza. Fjölmiðlarnir eru allir sakaðir um að dreifa „falsfréttum“ um innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 4.3.2022 11:46
Óvissustig vegna átaka í Úkraínu – Tæknilegt óöryggi Til hvaða aðgerða er skynsamlegt að grípa til við aðstæður sem þessar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig eflaust nú. Skoðun 4.3.2022 11:30
Myndskeið sýnir stærstu flugvél heims gjörónýta Myndskeið, sem sagt er vera úr fréttaútsendingu rússneska ríkissjónvarpsins, virðist taka af allan vafa um það að stærsta flugvél mannkynssögunnar, hin úkraínska Antonov 225, hefur gjöreyðilagst. Myndirnar sýna það miklar skemmdir á risaþotunni að erfitt er að ímynda sér að henni verði flogið framar. Erlent 4.3.2022 11:22
Telja Úkraínumenn ekki geta varist í lengri tíma Varnir Úkraínumanna gegn innrás Rússa hafa verið mun betri en sérfræðingar og embættismenn bjuggust við. Ólíklegt er þó að Úkraínumenn geti haldið aftur af Rússneska birninum til lengdar. Erlent 4.3.2022 11:18
Menningin veitir von þegar kreppir að Úkraínskur kollegi sendi mér þessi skilaboð: „Flestir tónlistarmenn eru í fremstu víglínu í augnablikinu. Ég hef það gott í neðanjarðarbyrgi. Við þurfum stuðning alþjóðlega menningargeirans við að vernda landið okkar núna.“ Skoðun 4.3.2022 10:31
Rússar ná Zaporizhzhia á sitt vald Rússneskar hersveitir hafa náð Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu á sitt vald. Um er að ræða stærsta kjarnorkuver Evrópu, sem hefur sætt stöðugum árásum síðustu daga. Eldur kom upp í verinu í nótt en nýjustu fregnir herma að engin hætta sé á ferðum eins og er. Erlent 4.3.2022 08:46
Rússar í fimmtán ára fangelsi segi þeir „falsfréttir“ af stríðinu Rússar eiga yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisvist gerist þeir sekir um að flytja falsfréttir um stríð þeirra í Úkraínu. Þetta samþykkti neðri deild rússneska þingsins einróma í morgun. Erlent 4.3.2022 08:12
Segir Rússa vilja endurtaka Tjsernóbíl-slysið Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu sakar Rússa um að hafa viljandi skotið sprengjum á kjarnorkuver í nótt. Hann segir þá hafa verið fullmeðvitaða um hætturnar sem því fylgja og sakar þá um að vilja endurtaka harmleikinn í Tsjernóbíl. Erlent 4.3.2022 07:49
Velunnari UNICEF hyggst jafna framlög upp að fimmtán milljónum króna UNICEF á Íslandi stendur nú í neyðarsöfnun fyrir Úkraínu og velunnari samtakanna, sem vill ekki láta nafns síns getið, hefur nú ákveðið að jafna þau framlög sem berast í söfnunina, upp að fimmtán miljónum króna. Innlent 4.3.2022 07:06
Rússar standi ekki við loforð um útgönguleiðir Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu. Árásir Rússa á stærsta kjarnorkuver Evrópu vöktu hörð viðbrögð víða um heim, eftir að eldur kviknaði í einni byggingu versins í nótt. Erlent 4.3.2022 06:29
Eldur kviknaði í stærsta kjarnorkuveri Evrópu í kjölfar árása Rússa Búið er að slökkva eld sem kviknaði í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu í nótt. Eldurinn er sagður hafa brotist út í kjölfar skotárása Rússa og náð til þriðju, fjórðu og fimmtu hæðar æfingabyggingar. Erlent 4.3.2022 05:59
Úkraínska landsliðið óskar eftir frestun á umspilsleik Úkraínska karlalandsliðið í fótbolta hefur sótt um frestun á leik sínum gegn Skotlandi sem á að fara fram síðar í mánuðinum, en leikurinn er liður í umspili um laust sæti á HM í Katar í desember. Fótbolti 3.3.2022 23:31
„Þetta er allt af völdum eins brjálaðs manns“ Vinkonur frá Úkraínu og Rússlandi sem búa í Hveragerði stóðu hlið við hlið í mótmælum fyrir utan rússneska sendiráðið í Reykjavík í morgun. Þær segja stríðið vera þeim ákaflega þungbært. Innlent 3.3.2022 21:01
Svona er staðan eftir eina viku af bardögum í Úkraínu Ein vika er í dag frá því að innrás Rússa inn í Úkraínu hófst. Erlent 3.3.2022 20:00
Zelensky segir Rússa ráðast á önnur nágrannaríki falli Úkraína Þúsundir manna hafa fallið og um milljón manns hafa flúið land frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir viku. Blóðugir bardagar eru í Mariupol sem sætt hefur stanslausum loftárásum sólarhringum saman og hafnarborgin Kherson er fallin. Erlent 3.3.2022 19:21
Frá Kænugarði til Íslands: „Við erum enn hrædd“ Það voru miklir fagnaðarfundir í Leifsstöð í nótt þegar tvær úkraínskar konur og börnin þeirra þrjú komu til landsins eftir vikulangt ferðalag frá Kænugarði í Úkraínu. Eiginmenn kvennanna beggja komust ekki út úr Úkraínu og hafa nú tekið upp vopn til að berjast gegn innrásarhernum. Innlent 3.3.2022 19:00