Sameinuðu þjóðirnar uggandi eftir ítrekaðar árásir á kjarnorkuver Ólafur Björn Sverrisson skrifar 12. ágúst 2022 10:00 Írekað hefur verið ráðist á kjarnorkuverið í Zaporizhia Rússar og Úkraínumenn benda enn hvorir á aðra vegna ítrekaðra árása á stærsta kjarnorkuver Evrópu í austurhluta Úkraínu. Árásir þessar hafa aukið á áhyggjur manna af því árásirnar leiði til stórslyss í kjarnorkuverinu sem hafi óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að svæðið í kringum kjarnorkuverið verði hlutlaust.
Frá þessu er meðal annars greint á vef BBC. Bæði Úkraínumenn og Rússar hafa greint frá því að samtals tíu árásir hafi verið gerðar á kjarnorkuverið í Zaporizhia, bæði skrifstofu þess og eldvarnarkerfi. Öryggisráð SÞ var kallað saman til þess að ræða alvarlegu stöðuna sem upp er komin. Yfirmaður kjarnorkumála hjá ráðinu sagði stöðuna mjög alvarlega og Antonio Guterres, aðalritari segir átökin á svæðinu geta leitt til hörmunga. Bæði Kínverjar og Bandaríkjamenn hafa kallað eftir því að sérfræðingum frá Sameinuðu þjóðunu verði gert kleift að heimsækja kjarnorkuverið en ekkert hefur verið samþykkt í þeim efnum. Bandaríkjamenn hafa einnig kallað eftir því að svæðið verði hlutlaust, enda sé bæði hættulegt og óábyrgt að berjast í kringum stærsta kjarnorkuver Evrópu. Rússar hafa hins vegar alfarið hafnað slíkum bollaleggingum. Úkraínumenn saka jafnframt Rússa um að gera tilraun til þess að umbreyta svæðinu í herstöð Rússneska hersins, Rússar hafa hafnað þeim ásökunum.
Innrás Rússa í Úkraínu Sameinuðu þjóðirnar Rússland Úkraína Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira