Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Jakob Bjarnar skrifar 23. október 2026 10:57 Einar Sveinbjörnsson segist ekki vanur að henda fram spám svo langt fram í tímann en ýmislegt bendir til að þessi geti orðið raunin. vísir/vilhelm Veður verður snarvitlaust á Íslandi eftir viku. Þetta er ef spár ganga eftir. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segist ekki leggja í vana sinn að henda fram spá svo langt fram í tímann en hér kemur eitt og annað til. „
Bæði spákortin sýna 942 hPa djúpa lægð. Til samanburðar þá var sú sem gekk hér yfir í síðustu viku 934 hPa en sú setti októbermet.“ Einar rýnir sig rauðeigan í spákort nú sem fyrr og ber saman. Spákort ECMWF sýnir dúpa lægð suðvestur af Reykjanesi eftir viku og það sama gerir spá AIFS sem er hermigreindarspá úr ranni ECMWF. Bæði sýna þau það sama. Einar segir tvennt í þessu athyglisvert. Rétt að hafa augun á þessum spám „Í fyrsta lagi er ekkert óvenjulegt að sjá einhverjar tíu til fimmtán daga spár sýna einhverjar svakalegar lægðir sem svo hverfa og sjást ekki meir. En í þessu tilviki hefur þessi myndun dúkkað upp aftur og aftur á þessum tiltekna degi.“ Einar ítrekar að hann setji yfirleitt ekki fram það sem Trausti Jónsson kalli skemmtideild reiknimiðstöðvanna, en þarna eru spár með sama hætti. Kortin sem Einar er að skoða. „Þegar kemur að meiriháttar veðurkerfum langt fram í tímann, og þetta er meiriháttar, horfum við á þessa stóru megindrætti. Spárnar verða alltaf betri og betri. Þær eru orðnar glettilega góðar.“ Einar bendir á að reiknaðar spár um stóru lægðina sem við upplifðum í síðustu viku hafi verið býsna nákvæmar löngu áður en hún skall á. Hitt atriðið, til hliðar við þessar hefðbundnu veðurspár með flóknum eðlisfræðilegum líkönum í stórum tölvum, þetta eru þungir og miklir reikningar, er keyrt á hermigreind. Hermigreindarspá orðin glettilega nákvæm „Segjum að þetta gangi eftir, þá er ótrúlegt að hermigreindarspáin geti spáð svona nákvæmlega langt fram í tímann,“ segir Einar og líkir hermigreindarspánni við skáktölvu, hún læri inn á endurtekningar. Það má alltaf búast við lægðum á þessum árstíma og Einar segir að þetta þurfi ekki að ganga eftir. Efniviðurinn í þessa lægð er enn fjarlægur, rótin er enn vestur af Alaska og hún á eftir að ferðast yfir þvera Norður-Ameríku. „Maður sér hvað veldur þessu, sem er samspil ólíkra loftmassa og skarps lægðardrags í háloftunum sem dregur sig yfir heit miðríki Bandaríkjanna, sem veldur þessari dýpkun úti á Atlantshafinu.“ Einar leggur áherslu á að vetur á Íslandi sé desember, janúar, febrúar og kannski mars.vísir/vilhelm Einar segist eftir langa starfsævi vera farinn að kannast við þetta, sama sagan endurtaki sig í sífellu. Hvað veturinn hins vegar varðar, og þá erum við að tala um desember, janúar og febrúar, jafnvel mars, þá er hann undir hattinum á Ofur-El Ninjo. Stefnir í rólegan en kaldan vetur „Þetta er þegar norðurhjarinn hefur kólnað og er kominn í vetrarástand. Þá sýna svona spálíkön langt fram í tímann ótrúlega mikið og gott samræmi.“ En þessi spálíkön eru keyrð á níu ólíkum tölvum víða um heim og þær bornar saman. Þær benda allar í sömu áttina; gert er ráð fyrir því að meginlægðabrautin liggi sunnarlega þvert yfir Bandaríkin og þá yfir til meginlands Evrópu. „Við verðum að miklu leyti í skjóli fyrir lægðunum að jafnaði. Það er skortur á almennilegum vetri í Norður-Kanada sem leiðir til þess að það verður háþrýstingur yfir Grænlandi. Það býður upp á ríkjandi norðanáttir.“ Að sögn Einars er óvissa með hitann almennt í vetur en í þrálátum norðanáttum er yfirleitt kalt.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira