Veður

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Bjarki Sigurðsson skrifar
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. 
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.  Vísir/Vilhelm

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Þetta kemur fram í samfélagsmiðlafærslu Einars. Aðstæður verði líklegast mjög slæmar við brúnir Eystrahorns á Hvalnesi og í Hvaldal. 

„Stórvarasamt ökumönnum og ekki hjálpar náttmyrkrið til. Og e.t.v. víðar á þessari leið sem þekkt er fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda,“ skrifar Einar. 

Búast megi við miklum iðuköstum, sandfoki og grjótkasti. Vindaspá Veðurstofunnar geri ráð fyrir staðbundnum streng um 24 til 27 m/s yfir sjónum og í fjallahæð megi sjá spágildi allt að 45 m/s. Ástandið muni vara til miðnættis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×