Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2026 14:53 Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un í kynningarferð nærri hlutlausa svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu í gær. AP/KCNA Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa beðið nágranna sína í norðri um að taka ekki skref sem aukið geta líkurnar á átökum ríkjanna á milli. Norður-Kóreumenn ætla sér að hefja á nýjan leik útsendingar áróðurs yfir landamærin og að auka viðbúnað við hlutlausa svæðið og hafa hótað alvarlegum afleiðingum ef afskiptum af innanríkismálum einræðisríkisins verði ekki hætt.
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsökunar eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust vegna jarðsprengju í síðasta mánuði. Þrír hermenn særðust þegar þeir voru inni á hlutlausa svæðinu (DMZ) en Suður-Kóreumegin innan þess í síðasta mánuði. Einn þeirra virðist hafa gengið á jarðsprengju en tveir eru alvarlega særðir. Samkvæmt Yonhap-fréttaveitu Suður-Kóreu mun standa í bréfinu að jarðsprengjunni og fleirum hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu. Kallað verður eftir því að ráðamenn þar axli ábyrgð og opni á samskiptaleiðir til að koma í veg fyrir frekari stigmögnun. Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa brugðist reiðir við þessum ásökunum. Eftir að Suður-Kóreumenn sökuðu Norður-Kóreu um að bera ábyrgð á jarðsprengjunum, sem er brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna, sendi Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, út yfirlýsingu þar sem hún sparaði ekki stóru orðin. Meðal annars kallaði hún ráðamenn í Suður-Kóreu glæpamenn og kvartaði yfir því að hermenn Suður-Kóreu hefðu ítrekað skotið aðvörunarskotum nærri hermönnum Norður-Kóreu. Þá sagði hún að verið væri að skoða að auka viðbúnað á landamærunum og bæta árásagetu þar. Auk þess yrði mögulega byrjað að básúna aftur áróður yfir landamærin með stórum hátölurum. Í kjölfarið sendu Suður-Kóreumenn þau skilaboð norður að þar á bæ yrðu viðbrögðin við auknum viðbúnaði mikil. Enn frekar voru Norður-Kóreumenn hvattir til að hætta grunnlausum kröfum sínum, hætta að senda hermenn inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og að opna aftur á uppbyggileg samskipti ríkjanna á milli. Samskipti Norður- og Suður-Kóreu þykja ekki góð um þessar mundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, um að bæta þau samskipti. Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu, sem Kim Jong Un einræðisherra hefur kallað „eilífðaróvin“ Norður-Kóreu. Þá hefur spennan milli ríkjanna aukist töluvert eftir að áðurnefndir hermenn frá Suður-Kóreu særðust vegna jarðsprengju sem Suður-Kóreumenn segja að hermenn frá Norður-Kóreu hafi komið fyrir á hlutlausa svæðinu, sem er í trássi við vopnahléssamkomulag ríkjanna frá 1953. Árið 2015 særðust tveir hermenn frá Suður-Kóreu alvarlega vegna jarðsprengju sem hermenn frá Norður-Kóreu voru sakaðir um að koma fyrir Suður-Kóreumegin á hlutlausa svæðinu, nærri varðstöð. Þá jókst spennan milli ríkjanna verulega og var það þá þegar Suður-Kóreumenn hófu aftur að básúna áróður yfir landamæri ríkjanna með stærðarinnar hátölurum.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira