Erlent

Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá mótmælunum í París á laugardag.
Frá mótmælunum í París á laugardag. Remon Haazen/Getty Images

Forsætisráðherra Frakklands segist hafa farið fram á það við sveitarstjórnir í Frakklandi að sett verði á takmarkað útgöngubann í nokkrum borgum landsins eftir óeirðir og mótmæli víða um land um helgina. Innanríkisráðherra Frakklands hefur viðurkennt að stjórnvöld hafi misst stjórn á ástandinu í borgum líkt og Paris og Lyon.

Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar upp í kjölfar mótmæla stúdenta sem kalla eftir fjármagni og betri kennsluaðstöðu. Fljótlega fóru mótmælin að vinda upp á sig og hafa hundruð þúsund manna tekið þátt. Tvö þúsund manns hafa verið handteknir í mótmælunum og 150 lögreglumenn slasast.

Guardian hefur eftir Sébastian Lecornu forsætisráðherra landsins að stjórnvöld séu staðráðin í því að koma á lögum og og reglu á ný í landinu. Ekki komi til greina að setja á allsherjarútgöngubann en takmarkað útgöngubann verður sett á í fjórum borgum í norðurhluta Frakklands frá klukkan 20:00 til 06:00 að morgni í nótt og næstu nótt, meðal annars í borginni Lille. Þá hafa borgaryfirvöld í Marseille, sem er næststærsta borg Frakklands, tilkynnt að allar samkomur séu bannaðar í borginni í dag.

Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands sagði í dag að skortur á fyrirhyggju hefði orðið til þess að lögregla hafi ekki ráðið við mótmælin. Upplýsingar yfirvalda hefðu bent til þess að um tvöhundruð þúsund manns myndu taka þátt í mótmælunum á landsvísu. Þeir hefðu hinsvegar reynst vera fimm hundruð þúsund.


Tengdar fréttir

Neitaði að samþykkja af­sögn vegna mót­mælanna

Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×