Erlent

Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga

Bjarki Sigurðsson skrifar
Atvikið átti sér stað í Kaupmannahöfn.
Atvikið átti sér stað í Kaupmannahöfn. Getty

Kona sem hafði verið að vinna við ræstingar læstist í fangaklefa í dómshúsi í Danmörku. Hún fannst ekki fyrr en þremur dögum síðar. 

Atvikið átti sér stað við Bredgade í Kaupmannahöfn þar sem eystri Landsréttur Danmerkur var áður til húsa. Dómstóllinn flutti fyrir fjórum árum og nú er húsið lítið nýtt en borgaryfirvöld Kaupmannahafnar nota það inn á milli, þó alls ekki daglega. 

Í húsnæðinu eru fangaklefar sem dómurinn notaði og var konan að þrífa einn slíkan þegar klefahurðin lokaðist á eftir henni. Ekki er hægt að opna klefann innan frá, enda voru þar geymdir fangar sem biðu þess að dómurinn tæki mál þeirra fyrir. 

Konan var ekki með farsímann sinn á sér og var því föst inni. Til að bæta gráu ofan á svart var eiginmaður hennar á ferðalagi og vissi ekki að hún væri „horfin“ fyrr en á laugardegi, þremur tökum eftir að konan læstist inni. 

Hann fór að leita að henni og fann reiðhjól hennar við Bredgade. Hann hringdi á lögregluna sem leitaði í húsinu og fann hana í klefanum. 

Konan er sögð bera sig vel eftir atvikið, sem átti sér stað um miðjan september. Hún hefur hafið störf á ný og hefur fyrirtækið breytt verkferlum hjá sér til muna svo starfsmenn geti ekki horfið í þrjá daga án þess að neinn taki eftir því. Þá er búið að breyta hvernig hurðirnar læsast í dómshúsinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×