Erlent

Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Tilkynnt var um ákvörðun Trump seint í gær.
Tilkynnt var um ákvörðun Trump seint í gær. Vísir/EPA

Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. 

Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út samkvæmt lögunum sjálfum.

Löggjöfin var kennd við Lindsey Graham, öldungadeildarþingmann frá Suður-Karólínu sem lést í sumar, og átti að herða aðgerðir gegn fjármagnsflæði sem stendur undir stríðsrekstri Rússa gegn Úkraínu.

Skipti um skoðun

Í frétt AP segir jafnframt að Graham, sem var náinn bandamaður og vinur forsetans, hafi nýlega snúið aftur frá Úkraínu þegar hann lést óvænt í júlí. Hann hafði talað fyrir hertum refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn Rússlandi til að þrýsta á stjórnvöld þar í landi að binda enda á stríðið í Úkraínu. Eftir andlát hans sameinuðust þingmenn úr báðum flokkum um að styðja löggjöfina. Trump undirritaði hana en hefur nú skipt um skoðun.

Markmiðið með aðgerðunum var að svipta Vladimír Pútín forseta Rússlands þeim fjármunum sem Moskva þarf til að halda áfram stríðinu í Úkraínu. Frumvarpið, sem Richard Blumenthal, öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá Connecticut, samdi einnig, fól í sér refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum og bönkum, auk refsiaðgerða gegn svokölluðum skuggaflota olíuskipa sem heldur uppi flutningum á rússneskum orkugjöfum.

Þá var Trump gert að leggja allt að 100 prósenta tolla á fimm stærstu innflytjendur rússneskrar olíu eða jarðgass. Undanþága átti að gilda fyrir ríki sem flytja inn minna en 15 prósent af rússnesku jarðgasi og hafa gripið til verulegra aðgerða til að draga úr þeim innflutningi.

Hafi ekkert með þjóðaröryggi að gera

Blumenthal sagði í yfirlýsingu að Trump væri að snúa baki við „meirihluta Bandaríkjamanna, fulltrúum þeirra í báðum deildum Bandaríkjaþings og evrópskum bandamönnum okkar“.

„Þessar undanþágur hafa ekkert með þjóðaröryggi okkar að gera, heldur snúast þær alfarið um að geðjast Vladimír Pútín,“ sagði Blumenthal.

Í frétt AP segir að ekki hafi komið skýring á því frá Hvíta húsinu hvernig það að fresta gildistökunni þjónaði þjóðarhagsmunum. Ákvörðunin var birt á vef Hvíta hússins seint í gærkvöldi og þar kom fram að skýrsla með rökstuðningi hefði verið send þinginu.

Ákvörðunin kemur engu að síður á sama tíma og Trump hefur í auknum mæli gagnrýnt Volodimír Selenskíj Úkraínuforseta opinberlega og kennt honum um að hafa ekki náð samkomulagi við Pútín um að binda enda á átökin.

„Það er því hans að ákveða hvort hann vilji nota þau eða eitthvað annað. En ég tel að markmiðið sé að lækka bensínverð og að lokum binda enda á stríðið. Þegar stríðinu lýkur mun bensínverðið lækka.“

Kaup á dísilolíu

Ákvörðun Trumps kemur viku eftir að hann vakti athygli með því að segja að Bandaríkin hefðu samið um kaup á dísilolíu frá Rússlandi í því skyni að lækka orkuverð á heimsvísu. Með því var horfið frá margra ára þrýstingi Bandaríkjanna og vestrænna ríkja.

Trump sagði í síðustu viku að Rússland myndi þegar í stað afhenda meira en 300.000 tonn af dísilolíu. Því myndu fylgja 500.000 tonn til viðbótar í nóvember og ein milljón tonna „skömmu síðar“. Rússland myndi síðan afhenda þrjár milljónir tonna til viðbótar „innan skamms tíma“. Nánar á vef Guardian. 

Forsetinn hefur sætt víðtækri gagnrýni vegna tilkynningarinnar. Tólf öldungadeildarþingmenn Bandaríkjanna, þar á meðal sex repúblikanar, skoruðu á Trump að rifta samkomulaginu um dísilolíukaupin.

Selenskíj sagði á föstudag, þegar hann hitti leiðtoga Evrópuríkja í Brussel, að dísilolíusamningurinn myndi leiða til þess að „peningar færu aftur að streyma til Rússlands“.

Missir fylgi í aðdraganda kosninga

Í frétt AP um málið segir að ný könnun frá byrjun október þar sem almenningur var spurður um álit sitt á forsetanum hafi sýnt að margir kenna honum um hærra verðlag og rekja það til stríðsreksturs hans í Íran. Trump hefur síðustu vikur kennt árásum Úkraínumanna á rússneskar olíuhreinsistöðvar um hækkandi orkuverð.

Fylgi hans hefur samkvæmt könnuninni lækkað niður í nær sögulegt lágmark og nú þegar styttist í þingkosningar í nóvember eykst þrýstingur á hann því Repúblikanaflokkurinn á mikið undir við að halda þingmeirihluta sínum í báðum deildum Bandaríkjaþings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×