Björguðu særðum hermanni með dróna Samúel Karl Ólason skrifar 21. október 2026 13:54 Skjáskot úr myndbandi sem úkraínskir hermenn birtu á dögunum. Dróninn var notaður til að flytja særðan hermann af víglínunni. Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.
Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert en áður hafa Úkraínumenn notað fjarstýrða róbóta til að flytja særða menn. Það þótti hins vegar ekki hægt að þessu sinni þar sem ógnin vegna rússneskra sjálfsprengidróna og jarðsprengja var mikil, samkvæmt frétt Kyiv Independent. Notast var við sérstakan og stóran dróna til að flytja manninn á brott. Dróninn er hannaður til að flytja stórar sprengjur til óvina og skotfæri og birgðir til úkraínskra hermanna en hermenn nutu aðstoðar framleiðanda hans við að undirbúa og framkvæma björgunina, samkvæmt tilkynningu frá stórfylkinu. Fyrst voru beisli og annað flutt til hans með smærri drónum og síðan var stóra drónanum flogið til hans. Honum tókst síðan að festa sig við drónann og var honum flogið í öryggi. Í heildina var drónanum flogið um 62 kílómetra og stóð björgunin yfir í tæpar 75 mínútur. Úkraínskir hermenn eru iðulega verulega lengi á víglínunni, eins og í þessu tilfelli. Fyrir því eru helst tvær ástæður. Önnur er mannekla en vegna hennar getur verið erfitt að gefa hermönnum frí. Hin er að það að ferðast á víglínuna eða frá henni er einstaklega hættulegt. Þegar hermenn sjást á ferðinni, hvort sem þeir eru rússneskir eða Úkraínumenn, verða þeir fljótt skotmörk stórskotaliðs eða sjálfsprengidróna, eftir því hve margir eru á ferðinni. Þeir geta jafnvel orðið skotmörk beggja og þar að auki geta þeir vísað óvinum á hvar hermenn halda til. Á meðan björgunin stóð yfir var fleiri drónum flogið á svæðinu og umfangsmikið eftirlit haft með rússneskum drónum.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Tækni Tengdar fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum. 21. október 2026 12:18 Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. 20. október 2026 21:12 Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu. 20. október 2026 15:18 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira
Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum. 21. október 2026 12:18
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. 20. október 2026 21:12
Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu. 20. október 2026 15:18