Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2026 08:54 Ívar Ingimarsson rekur ferðaþjónustu og stundar skógrækt ásamt eiginkonu sinni á jörðinni Óseyri við Stöðvarfjörð. Héraðsdómur Austurlands sýknaði Fjarðabyggð af kröfu þeirra um að sveitarfélaginu bæri skylda til að smala ágangsfé sem veldur tjóni á jörðinni. Vísir/Einar Eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjallaskil skikkuðu sveitarfélagið til þess að láta smala ágangsfé af jörðinni þar sem það hefði ratað úr öðru heimalandi. Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfunni á fimmtudag. Ekki hefði verið sýnt fram á að féð hefði ekki komið úr sameiginlegum bithaga þó að ekkert slíkt svæði væri skilgreint í sveitarfélaginu. Sveitarfélög eru aðeins skyldug til að smala ágangsfé ef það kemur úr öðru heimalandi samkvæmt lögunum. Þá hefði ekki verið sannreynt hvaðan féð kom. Innviðaráðuneytið úrskurðaði í sumar að Fjarðabyggð hefði brotið stjórnsýslulög þegar það kannaði ekki hvaðan ágangsféð kom áður en það ákvað að aðhafast ekki. Ívar Ingimarsson, sem á Óseyri ásamt Hrefnu Arnardóttur eiginkonu sinni, segir að ekkert hafi legið fyrir í málinu um hvar sameiginlegir bithagar séu í sveitarfélaginu, aðeins hafi verið gengið út frá því að þeir séu til staðar. „Þar sem sveitarfélagið þurfti ekki að sýna fram á hvar hinir sameiginlegu bithagar eru má þá túlka dóminn þannig að allt ógirt land á Íslandi sé sameiginlegur bithagi. Þá virðist allt ógirt land á Íslandi hafa verið tekið einhverskonar eignarnámi,“ segir Ívar sem telur líklegt að dómnum verði áfrýjað til Landsréttar. Notendur og eigendur þurfi að greiða girðingarkostnað Ekki var girt utan um land Óseyrar. Standi dómurinn spyr Ívar sig hvort að notendur og eigendur sameiginlegs bithaga þurfi ekki að greiða fyrir að girða hann gagnvart heimalandi. Í girðingarlögum sé kveðið á um að þeir skuli greiða áttatíu prósent af kostnaðinum við það. Í mörgum tilfellum geti það kostað tugi milljóna að girða. „Á mörgum svæðum og sveitum eru nú tugir jarða án sauðfjár en einungis örfáar jarðir með sauðfé. Ef allar þessar jarðir fara fram að að sameiginlegi bithaginn sé girtur frá þeirra landi þá verður þetta ansi mikill kostnaður fyrir notendur þessa „sameiginlega“ bithaga,“ segir hann. Til þess að hægt sé að beita því úrræði þurfi þó að finna út úr því hvar sameiginlegir bithagar séu og hverjir eigi þar afnotarétt. Ívari finnst ótrúlegt að dómstóllinn hafi látið sinnuleysi sveitarfélagsins um að bregðast við kvörtunum landeigenda og að rannsaka málið bitna á þeim.
Dómsmál Fjarðabyggð Sauðfé Landbúnaður Stjórnsýsla Sveitarstjórnarmál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Sjá meira